Sparkvarpið – Werder Bremen og tímarnir tveir

Umfjöll­un­ar­efni vik­unnar að þessu sinni er Werder Bremen sem spilar í efstu deild í Þýska­landi. Þeir Þor­geir og Þór­hallur taka stöð­una á gengi liðs­ins sem hefur verið væg­ast sagt lélegt síð­ustu ár eftir að hafa verið einn besti klúbbur Evr­ópu í byrjun ald­ar­inn­ar. Werder Brem­en, sem eru nefndir eftir ánni Weser í norð­vestur Þýska­landi, eru kóng­arnir í norðr­inu ásamt Hamburger SV en bæði lið eiga í hættu á að falla um deild á þessu tíma­bili.



Fjallað er um sögu liðs­ins en aðal­lega tvo þjálf­ara sem eiga gríð­ar­lega stóran þátt í vel­gengi Bremen síð­ustu ára­tugi. Otto Reha­gel þjálf­aði liðið í fjórtán ár en tók við þeim árið 1981. Hann náði að breyta miðl­ungs­liði í eitt besta lið Þýska­lands á 9. ára­tugnum og byrjun þess 10. Bremen voru nán­ast alltaf í topp­bar­áttu undir hans stjórn en Þjóð­verj­inn er þekktur fyrir agaðan varn­ar­leik eins og sást þegar Grikkir unnu EM 2004 undir hans stjórn. Kall­aður Otto ll útaf hann end­aði svo oft í öðru sæti, vann deild­ina tvisvar með Die Werderaner ásamt fleiri bik­ur­um. Thomas Schaaf er hinn þjálf­ar­inn sem sparkvarpið fjallar um en hann tók við Bremen árið 1999. Hann afrek­aði það að vera 40 ár sam­fleytt hjá klúbbnum sem leik­maður og þjálf­ari. Undir hans stjórn var liðið eitt það skemmti­leg­asta í evr­ópu, ólíkt for­vera hans Otto spil­uðu Bremen aggresí­van sókn­ar­bolta undir Schaaf. Hann vann deild­ina árið 2004 og þjálf­aði liðið í 14 ár áður en hann hætti eftir slæmt gengi árið 2013. 



Þrátt fyrir slæmt gengi síð­ustu ár er ennþá líf í klúbbn­um, margir fyrrum leik­menn vinna í kringum klúbb­inn og nýr þjálf­ari tók við þeim síð­ast­lið­inn októ­ber en hann heitir Florian Kohfeldt. Farið var yfir fram­tíð klúbbs­ins, frá­bæra leik­menn sem hafa spilað fyrir lið­ið, költ leik­menn og óvenju­legan ríg þeirra við Schalke 04. Eitt er víst, róm­an­tíkin er ennþá til staðar hjá þeim grænu og fyrrum app­el­sínu­gulu.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023