Auglýsing

Ég verð að við­ur­kenna það, að ég brosti út í annað þegar Heiðar Guð­jóns­son útskýrði um dag­inn af hverju hann tók út miðju­nafnið sitt. Hann var upp­nefndur máv­ur­inn. Fyrstu við­brögðin mín voru „kommon maður - þetta var bara grín,” en bara-grínið getur sært og setið eft­ir. Og stundum byrjar alvar­legt ein­elti sem góð­lát­legt grín.

Þó margir haldi að eft­ir­nafn mitt sé borið fram Maaaaa­ak, þá er það borið fram Mokk. Aa verður o-hljóð, eins og í Kaaber, Waage og Haar­de. Mokk rímar við alls kon­ar, smokk og fokk og fram­sækn­ustu skóla­lóð­ar­skáldin rím­uðu það við tott. Þetta var ekk­ert í gaggó neitt, ónei, þessi sudda­orð fuku á skóla­lóð­inni í Ísak­skóla. En þetta var nú bara góð­lát­legt grín hjá ein­hverjum eldri strákum (8 ára, ég var 6 ára) sem stundum var leyst sem að strákar verði nú alltaf bara strákar (ok hversu ömur­leg er sú lína sam­t?). Sem betur fer hafði ég heilan ætt­boga sem lent hafði í sömu stríðn­inni, svo ég gat huggað mig við að þetta væri í það minnsta ófrum­legt.

Versta stríðn­in, eða úti­lok­un­in, kom síðan í sjötta bekk. Ný stúlka byrj­aði í bekknum en hafði víst gengið áður í Aust­ur­bæj­ar­skól­ann. Henni lík­aði eitt­hvað illa við það hversu vel ég og æsku­vin­kona hennar náðum saman og hóf ein­hvers konar bak­tjalda­makk og stofn­aði hat­urs­hóp sem beind­ist gegn mér. Mér skilst samt að þau hafi nú bara hist reglu­lega og spilað en þetta hafði samt áhrif á mig. Eftir sjötta bekk fór ég í sum­ar­búðir í Banda­ríkj­unum og fékk að sjá að heim­ur­inn væri stærri en Aust­ur­bæj­ar­skól­inn svo þessi óvild beit ekki svo mikið á mig þarna í upp­hafi. En þetta hélt áfram út grunn­skól­ann.

Auglýsing

Þá fóru að koma sms-­skeyti úr hennar núm­eri þar sem hótað var ofbeldi á borð við að stinga umferð­ar­keilu upp í rass­gatið á mér.

Í átt­unda bekk fengum við svo mörg GSM-síma í ferm­ing­ar­gjöf. Þá fóru að koma sms-­skeyti úr hennar núm­eri þar sem hótað var ofbeldi á borð við að stinga umferð­ar­keilu upp í rass­gatið á mér. Skila­boðin voru skrifuð á ensku, kannski til að vera töff eða eitt­hvað. Ég ætl­aði alltaf að sýna for­eldrum og kenn­urum skila­boð­in, en svo var sím­anum mínum stolið í bún­ings­klef­anum í ball­et­in­um. Svo hélt þetta áfram og ýmis­legt var skrifað um mig á vegg­ina í skól­an­um. Ég skrif­aði einu sinni smá um hana á vegg í dönsku­stof­unni, með yfir­strik­un­arpenna sem náð­ist af með munn­vatni. Ég svitn­aði allan tím­ann sem ég skrif­aði það. Og strok­aði svo út.

En talandi um ball­et­inn. Það sem ég var þakk­lát fyrir þennan ball­et. Þó ég hafi á svip­uðum tíma fattað að ég ætti kannski ekki fram­tíð fyrir mér á þessum vett­vangi, þá sótti ég í þetta í gaggó. Ball­et­inn var tóm­stund sem ekki var bundin við hverfi, eins og margt tóm­stund­ar­starf, svo þar var annar mórall „í bekkn­um” en í Austó. Ég átti marga vini þar - en - nema hvað - ég var alltaf að stríða einni stelp­unni þar. Þá fannst mér það rosa­lega létt­vægt, en ég er nýbúin að átta mig á að ég lagði hana í ein­elti. Og af hverju? Af því að mér leið svo illa í skól­anum mínum út af einni beyglu. Kannski leið þeirri sem var með þetta hat­ara­fé­lag illa ann­ars staðar og tók það út svona. En ég hefði átt að vera betri mann­eskja en að varpa þessu yfir á hina stúlk­una.

Fyr­ir­gefðu, nafna mín. Ég skamm­ast mín ógur­lega.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiKjaftæði
None