Hvar fékk DV miða á Justin Bieber til að gefa með áskriftartilboðum?

Bieber DV
Auglýsing

DV hefur boðið upp á áskrift­ar­til­boð um jól og ára­mót. Eitt til­boðið hefur vakið meiri athygli en hin, en þar er þeim sem ger­ast á­skrif­endur að DV í þrjú ár boðið að fá miða á Justin Bieber tón­leik­anna í Kórn­um í sept­em­ber í kaup­bæti. Sam­tals myndi slík áskrift kosta við­kom­andi 114.840 krón­ur, sem verður að telj­ast ansi dýr biti fyrir þá sem hug­leiða að fá sér­ á­skrift ein­vörð­ungu fyrir mið­anna eft­ir­sóttu.

Ljóst er á ummælum sem fallið hafa við aug­lýs­ingu DV á til­boð­inu á Face­book að ekki ríkir mikil kátína með umrætt til­boð. Mið­ill­inn er á­sak­aður um sið­leysi og ýmis­legt verra. Það fór nefni­lega varla fram­hjá mörg­um að miðar á tón­leika Bieber seld­ust upp á skot­stundu og mun færri komust að en vildi, þrátt fyrir að alls hafi 19 þús­und miðar verið í boði.

Það vakna upp ýmsar spurn­ingar vegna áskrift­ar­til­boðs DV. Í fyrsta lagi velta margir fyrir sér hvernir fjöl­mið­ill­inn fékk miða til að láta ­fylgja með til­boð­inu, þegar þús­undir aðdá­enda sátu eftir með sárt ennið þeg­ar miða­salan fór fram á Tix.is fyrir skemmst­u. 

Auglýsing

Í öðru lagi hefur Tix gefið það út að það sé ekki undir neinum kring­um­stæðum leyfi­legt að end­ur­selja miða á tón­leik­anna með fjár­hags­legum hagn­aði og að allir miðar sem verði end­ur­seld­ir ­með þeim hætti verði ógild­ir. Vel má færa rök fyrir þvi að DV hafi tölu­verðan fjár­hags­legan hag af því að binda fólk sem áskrif­endur í heil þrjú ár og fá fyrir tæp­lega 115 þús­und krón­ur, þegar miðar á Bieber kost­uðu frá 15.990 til 29.990 krón­ur.



Í þriðja velta ýmsir fyr­ir­ ­sér hvort aðdá­endur Bieber, sem alla jafna eru börn og tán­ing­ar, séu sá mark­hópur sem DV ætti helst að vera að sækja sér nýja áskrif­endur í.

Þetta er ekki í fyrsta s­inn sem áskrift­ar­til­boð DV vekja athygli. Í apríl síð­ast­liðnum stað­festi áfrýj­un­ar­nefnd neyt­enda­mála ákvörð­un ­Neyt­enda­stofu um að ­banna við­skipta­hætti DV þegar dag­blaðið aug­lýsti „frí­an“ iPad með áskrift að ­blað­inu. Áskrift að DV hafi verið 334,9 pró­sent dýr­ari en rað­greiðslur af iPa­d ­fyrstu þrjá mán­uð­ina en 167,5 pró­sent rest­ina af 36 mán­aða bindi­tím­an­um. Í úr­skurði Neyt­enda­stofu sagð­i að „á grund­velli fyr­ir­lggj­andi gagna verð­i ekki annað ályktað en að kostn­aður vegna iPad spjald­tölv­unnar í áskrift­ar­leið DV sé inni­fal­inn í verði áskrift­ar.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None