Hátíðarhöld og byltingar

Sóley Tómasdóttir
Auglýsing

„Í ár eru 100 ár síðan konur feng­u ­kosn­inga­rétt á Ísland­i.” Þetta var ein algeng­asta setn­ing árs­ins, í ræðum og ­riti – á sam­fé­lags­miðlum og í opin­berum umræðum og einka­sam­töl­um. Póli­tískur ann­áll árs­ins hlýtur að taka mið af því.

Opin­ber hátíð­ar­höld

Afmæl­is­árið hefur gefið til­efni til að líta ­yfir far­inn veg, þakka fyrir bar­áttu og fram­lag for­mæðra okkar og fagna þeim ár­angri sem náðst hefur í jafn­rétt­is­bar­átt­unni. Ekki síður hefur árið vak­ið ­fólk til umhugs­unar um allt það sem enn er ógert – um órétt­lætið sem ríkir í sam­fé­lag­inu í dag, heilum 100 árum eftir að konur öðl­uð­ust form­leg lýð­ræð­is­rétt­indi á við karla.

Reykja­vík­ur­borg lét ekki sitt eftir liggja á árinu heldur fagn­aði árunum 100 með 100 við­burð­um. Mark­miðið var að hampa þeim árangri sem hefur náðst og hvetja til fram­fara á sviði jafn­rétt­is­mála á sama tíma. Á heima­síðu borg­ar­innar má skoða tæm­and­i lista yfir við­burð­ina sem voru fjöl­breyttir og áhrifa­rík­ir.

Auglýsing

Tíma­mótin hafa þegar haft áhrif til­ fram­tíð­ar. Hátíð­ar­fundur kvenna í borg­ar­stjórn sam­þykkti að setja á lagg­irn­ar of­beld­is­varn­ar­nefnd, menn­ing­ar­merk­ingar um konur og sýn­ingar á verkum kvenna munu standa áfram og stelp­urnar úr Stelpur rokka og Stelpur filma munu hafa á­hrif um ókomna tíð svo fátt eitt sé nefnt af 100 verk­efnum borg­ar­inn­ar. Því til við­bótar stóðu ríki, fyr­ir­tæki og félaga­sam­tök að ýmsum hátíð­ar­höldum með­ ­veg­legum hætti.

Gras­rótin

Það er eins með kven­frels­is­bar­átt­una og aðra mann­rétt­inda­bar­áttu, hún verður seint háð af hinu opin­bera. Þó Reykja­vík­ur­borg sé öll af vilja gerð og beiti sér sem stjórn­vald, sveit­ar­fé­lag og sam­starfs­að­ili að bættu sam­fé­lagi, þá verður þekk­ing­in, kraft­ur­inn og gróskan alltaf mest í gras­rót­inni.

Á meðan hið opin­bera fagn­aði á sinn hátt hristi gras­rótin upp í sam­fé­lag­inu. Gras­rótin vildi engin hel­vítis blóm, heldur frels­að­i ­geir­vört­urnar, afhjúpaði sex­dags­leik­ann, tal­aði upp­hátt, skil­aði skömminni, stóð saman og sigr­aði Skrekk.

Miðað við allt og allt var afmæl­is­árið eins og best verður á kos­ið. Hátíð­legt og bylt­ing­ar­kennt á sama tíma. Sagan (og hið hvers­dags­lega mis­rétti sam­tím­ans) varð gras­rót­inni inn­blástur sem vakt­i ­sam­fé­lagið til umhugs­unar og krafð­ist aðgerða, úrbóta og raun­veru­legrar sann­girni.

Fram­haldið

Á næsta ári verður 101 ár frá því kon­ur ­fengu kosn­inga­rétt á Íslandi. Öll afmæli eru stór og við eigum að taka hverj­u­m degi fagn­andi. Við­fangs­efnin eru ærin, við megum auð­vitað vera þakk­lát fyr­ir­ ár­angur og bar­áttu for­mæðra okkar en verðum að halda ótrauð áfram.

Á meðan 10 ára stelpur eru kall­aðar hór­ur, á meðan rétt­ar­kerfið tekur harðar á búða­hnupli en nauðg­un­um, á meðan karl­ar tala við­stöðu­laust við karla um karla í fjöl­miðl­um, á meðan launa­munur kynj­anna er til staðar og kona hefur aldrei verið seðla­banka­stjóri, á meðan hvít­ur mið­aldra gagn­kyn­hneigður karl er við­miðið og allt annað frá­vik, á með­an mis­réttið er jafn aug­ljóst og yfir­þyrm­andi og raun ber vitni – þá ber okkur að halda áfram. Öllum í sam­ein­ingu.

Ára­móta­heit­ið mitt í ár: Að verða rót­tæk­ari og ákveðn­ari, beita mér fyrir fleiri og stærri skrefum í átt að jafn­rétti, inn­blásin af bar­áttu­anda for­mæðra minna og kom­and­i kyn­slóða. Ég skora á þig les­andi góð­ur, á Kjarn­ann og aðra fjöl­miðla, á sam­starfs­fólk mitt í borg­ar­stjórn, annað sveit­ar­stjórn­ar­fólk, þing­menn, ­fyr­ir­tæki og félaga­sam­tök að gera slíkt hið sama. Í sam­ein­ingu getum við þannig ­gert þetta hátíð­lega bylt­ing­arár sem brátt er að baki að upp­haf­inu að ein­hverju stór­kost­legu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁrið 2015
None