Dómgreindarbrestur og að láta gögnin tala

Panamaskjölin
Auglýsing

Afhjúp­andi umfjöllun um Panama­skjölin svo­nefndu heldur áfram að gera mikið gagn fyrir sam­fé­lag­ið, en í gær var Kast­ljós RÚV með hluta gagn­anna til umfjöll­un­ar. Það hefur komið í ljós á þessum tímum að RÚV gegnir mik­il­vægu hlut­verki, og það skiptir máli að þar sé vel haldið um þræði án nokk­urs póli­tísks þrýst­ings. Eiga blaða­menn RÚV hrós skilið fyrir góða vinnu.

Í þætt­inum var meðal ann­ars fjallað um mál­efni fram­kvæmda­stjóra tveggja líf­eyr­is­sjóða, sem áttu aflands­fé­lög án þess að upp­lýsa stjórnir þeirra um það, tengsl stjórn­mála­manna við aflands­fé­lög, tengsl þáver­andi for­manns banka­ráðs Seðla­banka Íslands og einnig tengsl ­manna sem gegnt hafa trún­að­ar­störfum fyrir stjórn­mála­flokka, ýmist sem starfs­menn eða for­ystu­menn. 

Þetta er stóra mynd­in, ef nöfn manna eru tekin út svo útlín­urnar standi upp úr. Í ljósi þess sem Ísland hefur gengið í gegn­um, með útrás fjár­mála­kerf­is­ins, hruni þess, neyð­ar­lög­um, setn­ingu fjár­magns­hafta og síðan end­ur­reisn­ar­starfi, þá verður ekki annað séð, en að þessi umfjöllun sé ekki aðeins mik­il­væg fyrir íslenskt sam­fé­lag, held­ur ­nauð­syn­legur hluti af upp­gjör­inu við þessa miklu atburði. Það verður að fara í gegnum allt sem að þessu snýr. Vita­skuld er mesta alvaran í þeim alvar­legu lög­brotum sem þegar hafa verið stað­fest með dómum Hæsta­rétt­ar, en það má ekki gleyma því að sið­ferð­is­leg álita­mál skipta einnig miklu máli.

Auglýsing

Brugð­ist var við því þegar það kom í ljós að Vil­hjálmur Þor­steins­son, fjár­festir og fyrr­ver­andi gjald­keri Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, hafði átt félag á Tortóla sem var í Panama­skjöl­un­um, þvert á það sem skilja mátti af fyrri yfir­lýs­ingum hans. Vil­hjálmur er eig­andi 15,98 pró­sent hluta­fjár í Kjarn­an­um, og hefur reynst félag­inu vel á stuttu ævi­skeiði, sem telur þrjú ár í ágúst næst­kom­andi, enda með mikla reynslu af nýsköp­un­ar­starfi og rekstri fyr­ir­tækja á upp­bygg­ing­ar­tíma, og komið að ófá­um slíkum verk­efnum á sínum ferli.

Vék hann strax úr stjórn Kjarn­ans sökum þessa. Þetta var dóm­greind­ar­brestur af hans hálfu, en hann hefur nú fjallað með mun ítar­legri hætti um þessi við­skipti en hann gerði áður, og meðal ann­ars skýrt það að engin skatt­svik hafi verið á ferð­inni eða óeðli­leg fyr­ir­greiðsla. Þetta hefði betur mátt koma fram fyrr. 

Eins og vikið hefur verið að áður á þessum vett­vangi, þá virð­ist það vera aðkallandi, að koma upp­lýs­ingum um við­skipta­leg tengsl allra þeirra sem gegna trún­að­ar­störfum fyrir stjórn­mála­flokka - skiptir þá engu máli hvaða flokkur eða ein­stak­lingur á í hlut - upp á yfir­borð­ið. Best væri að gera þetta með laga­skyldu, þar sem fjár­hags­upp­lýs­ingar og við­skipti væru uppi á borðum hjá öllum kjörnum full­trúum á Alþingi og æðstu stjórn stjórn­mála­flokka. Það ekki óeðli­legt að gera þessa kröfu í því mikla starfi sem býður stjórn­mál­anna hér á landi við að end­ur­heimta traust. Það mun taka langan tíma til við­bót­ar, en það er áhrifa­mikið að láta gögnin tala. Hvort sem það eru fjöl­miðlar sem draga þau fram, eða ein­stak­ling­arnir sjálf­ir.

Íslenskt atvinnu­líf þarf síðan líka að horfa í eigin barm, og velta því upp hvernig æski­leg­ast er að haga þessum mál­um. Ræða Björg­ólfs Jóhanns­son­ar, for­manns Sam­taka atvinnu­lífs­ins (SA), á árs­fundi SA á dög­un­um, var mik­il­vægt inn­legg, en þar tal­aði hann með afar skýrum hætti gegn skatta­skjólum og þeim athöfnum manna, að reyna að kom­ast undan því að greiða skatta í sam­eig­in­legan sjóð lands­manna.

Þýska blað­ið Südd­eutsche Zeit­ung komst upp­haf­lega yfir gögnin frá panamísku lög­fræði­stof­unni Mossack Fon­seca, og deildi með alþjóð­legum sam­tökum rann­sókn­ar­blaða­manna, ICIJ, Reykja­vík Media og 109 öðrum fjöl­miðlum víðs­vegar um heim. Um er að ræða 11,5 millj­ónir skjala upp á tæp þrjú tera­bæti.

Kjarn­inn hefur ekki fengið aðgang að öllum gögn­un­um, heldur aðeins fjallað um hluta þeirra, í sam­starfi við Reykja­vík Media. Það var gert ítar­lega og vel

Umfjöll­unin um Panama­skjölin er mik­il­væg, eins og áður seg­ir, og við­kvæm þess vegna. Það skiptir máli að þeir sem fjalla um skjölin og greina þau, einkum frum­birt­ingar á efni, vandi til verka og hlífi eng­um. Gögnin verða opin­ber á end­an­um, og þá mun fólk geta skoðað þau. Kjarn­inn mun vanda til verka þegar kemur að Panama­skjöl­un­um, og halda áfram vönd­uðum vinnu­brögð­um, þar sem hags­munir les­enda ráða för, en ekki neinna ann­arra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None