Bakherbergið: Framsókn með Sjálfstæðisflokkinn í vasanum

mars.jpg
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra er sig­ur­veg­ari dags­ins, segja menn í bak­her­berg­inu. Ekki af því að leið­rétt­ingin er svo vel heppnuð eða hafin yfir gagn­rýni – alveg hreint alls ekki eins og stundum hefur komið fram í bak­her­berg­inu – heldur frekar af því að í dag kom í ljós að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er með Sjálf­stæð­is­flokk­inn í vas­an­um.

Umfangs­mesta þjóð­nýt­ing á einka­rétt­ar­legum per­sónu­legum skuld­bind­ingum fólks sem ráð­ist hefur verið í, að mestu að óþörfu, er nú í þann mund að kom­ast til fram­kvæmda. Þessar per­sónu­legu skuld­bind­ingar hafa akkúrat jafn margar ólíkar for­sendur að baki þeim og sem nemur fjölda þeirra sem þjóð­nýttar eru. Meðal ann­ars vegna þessa atriðis er ómögu­legt að tala um for­sendu­brest hjá öll­um. For­sendur fjár­fest­ing­anna voru æði mis­jafn­ar, og fjár­hag­ur­inn sömu­leið­is. Sumir höfðu náð að hagn­ast vel á fast­eigna­bólunni, á meðan aðrir höfðu ekki gert það. Svo­leiðis er nú lífs­ins gang­ur. En að tala um almenna aðgerð, með því að horfa ein­angrað á tveggja ára verð­bólgu­tíma­bil, óháð raun­veru­legum for­sendum skuld­bind­ing­anna, er af þessum sökum tóm della. Það er reyndar huggun að stjórn­mála­menn­irnir eru ekk­ert að fela þetta, heldur leggja ein­fald­lega spilin á borðið (Seðla­bank­inn var reyndar fyrir löngu búinn að því, óum­beð­inn), og tala nokkuð skýrt þvert gegn stað­reynd­un­um. Það gerir stöð­una skýr­ari en hún væri ann­ars.

Heild­ar­um­fang þjóð­nýt­ing­ar­inn­ar, þvert á inn­tak hægri stefn­unnar sem sumir flokks­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins segj­ast aðhyllast, nemur um 80 millj­örðum króna. Þetta fólk er hljótt núna, kyngir því sem reynd­ust ekki vera nein prinsipp, og brosir síðan breitt í faðmi Fram­sókn­ar­flokks­ins. Fyrir utan örfáa, helstan að nefna lang­sam­lega besta þing­mann flokks­ins, Pétur H. Blön­dal. Tæp­lega helm­ing­ur­inn af þessum 80 millj­örð­um, eða tæp­lega 40 millj­arð­ar, fer til fólks sem er núna með meira en 13 millj­óna jákvætt eigið fé í fast­eign sinni. Eng­inn veit hvers vegna þetta er gert, nema þeir sem að þessu standa vita­skuld. Þessi gjöf í gegnum leidrett­ing.is er óþörf. Á sama tíma og lang­veik börn þjást vegna þess að þessir sömu stjórn­mála­menn vilja ekki láta fé í þjón­ustu fyrir þau, eða stuðn­ing við aðstand­endur þeirra. Það sama má segja um öryrkja og geð­sjúka, sem margir eiga ekki fast­eign og eru háðir opin­berri þjónustu. Þeir fá ekk­ert. Þetta er stað­an.

Auglýsing

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn liggur núna í valn­um, gjör­sam­lega ráð­þrota og prinsipp­laus. Brynjar Níels­son hrl., Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, og ýmsir fleiri full­trúar flokks­ins sem talað hafa af óskap­legri ástríðu um ráð­deild í rík­is­rekstri, ekki síst í Bít­inu á Bylgj­unni, standa nú í sam­ein­ingu að því að ausa tugum millj­arða úr rík­is­sjóði. Þetta gera þeir fyrir framan fólkið sem þeir hafa skammað fyrir fram­úr­keyrslu á árlegum fjár­heim­ildum – jafn­vel þó gildar ástæður séu fyrir þeim. Þetta gera þeir líka vit­andi það að þetta er tóm della og upp­hæðir eru risa­vaxnar í öllu sam­hengi.

Og meg­in­þungi ábyrgð­ar­innar á þess­ari stöðu liggur hjá þeim ráð­herra rík­is­stjórn­ar­inn­ar, sem hefur að mörgu leyti staðið sig vel á anna­sömum tíma. Það er að segja fram að þessu. Það er Bjarni Bene­dikts­son. Hann er fjár­mála­ráð­herra og for­maður þjóð­nýt­ing­ar­flokks­ins, flokks óráðsíu í rík­is­rekstri, flokks und­ir­gefni gagn­vart Fram­sókn­ar­flokkn­um, segja menn í bak­her­berg­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None