Icesave enn pólitískt vopn í íslenskri stjórnmálaumræðu

icesavenota-1.png
Auglýsing

Þótt tvö og hálft ár sé liðið frá því að EFTA dóm­stóll­inn hafn­aði öllum kröfum Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA (ESA) í Ices­a­ve-­mál­inu svo­kall­aða, að morgni dags þann 28. jan­úar 2013, er málið fjarri því gleymt.

Á vor­þingi Alþing­is, sem hófst í jan­úar og lauk í síð­ustu viku, kom Ices­ave til að mynda fyrir í 38 ræðum þing­manna. Til­efnið var alls­kon­ar. Stundum var það í umræðum um störf þings­ins, stundum í umræðum um Evr­ópu­mál, stundum í umræðum um þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­ur. Ices­ave kom meira að segja fram í umræðum um ramma­á­ætlun og mak­ríl­frum­varp­ið.

Það kemur kannski ekki að öllu leyti á óvart en Fram­sókn­ar­menn eru þeir sem tala mest allra um Ices­a­ve. Orðið kom fyrir í alls ell­efu ræðum þeirra á þing­inu sem var að ljúka. Ásmundur Einar Daða­son, þing­maður flokks­ins, not­aði til dæmis tæki­færið þegar nákvæm­lega tvö ár voru liðin frá nið­ur­stöðu EFTA dóm­stóls­ins og lét eft­ir­far­andi orð falla: „Virðu­legi for­seti. Hér fer kurr um stjórn­ar­and­stöð­una. Ég vil byrja á því að óska þjóð­inni til ham­ingju með það að í dag eru tvö ár síðan íslenska þjóðin sigr­aði Ices­a­ve-­málið og sigr­aði ESA og Evr­ópu­sam­bandið fyrir dóm­stól­um, þvert á það sem allir héldu fram að væri mögu­leg­t.“

Auglýsing

Þor­steinn Sæmunds­son, flokks­bróðir Ásmundar Ein­ars, sagði sama dag: „Já, það er full ástæða til að taka undir ham­ingju­óskir til Íslend­inga með þennan bjarta og fal­lega dag sem markar tveggja ára afmæli fulln­að­ar­sig­urs í Ices­a­ve-­mál­inu. Ég veit ekki af hverju menn eru svona „sart“ yfir þessu, það er eins og hér sé ein­hver und­ir­liggj­andi óánægja með þetta sem ég trúi ekki að sé til.“

Eft­ir­minni­leg­asta Ices­a­ve-ræðan kom hins vegar undir lok þings­ins, þegar Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra þrum­aði eft­ir­far­andi yfir þing­heimi: „Það skiptir greini­lega máli hver það er og hverjir eru við borð­ið. Það er alveg aug­ljóst. Og svo tala menn um kjark­leysi hér. Hver er það sem þorði að standa uppi í hár­inu á kröfu­höf­um? Ekki hv. þm. Össur Skarp­héð­ins­son. Hver er það sem þorði að taka á Ices­a­ve. Ekki hv. þm. Sig­ríður Ingi­björg Inga­dótt­ir. Og hver þorði að lækka lán heim­il­anna? Ekki Sam­fylk­ingin og ekki Vinstri græn. Hvar er kjark­ur­inn? Hræsni stjórn­ar­and­stöð­unnar er það sem stendur upp úr og hefur alltaf gert“.

Sá sem minnt­ist oft­ast allra á Ices­ave í ræðum sínum á yfir­stand­andi þingi var hins vegar Birgitta Jóns­dótt­ir, þing­maður Pírata, eða alls sex sinn­um.

Þá kom Ices­ave fyrir í alls þremur umsögnum umsögnun til þing­nefnda. Í öllum til­vik­unum komu umsagn­irnar þar sem rætt var um Ices­ave frá InDefence-hópn­um.

Og frá ára­mótum hefur Ices­ave komið 168 sinnum fyrir í íslenskum fjöl­miðl­um.

Í bak­her­berg­inu hefur því verið bent á að þótt langt sé um liðið frá því að loka­nið­ur­staða fékkst í Ices­a­ve-­málið þá lifir það samt sem áður enn góðu lífi sem póli­tísk vopn í íslenskri stjórn­mála­um­ræðu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None