Misnotkun á hugtakinu hópefli

Tinni Kári Jóhannesson og Þorsteinn V. Einarsson
15374638614_39887d4f67_b.jpg
Auglýsing

Okk­ur, stofn­endum nýs fyr­ir­tækis á hópeflis- og liðs­heild­ar­mark­aðn­um, er það hjart­ans mál að leið­rétta mis­notk­un­ina á hug­tak­inu hópefli.

Í okkar huga er hópefli hug­tak yfir liðs­heild­ar­vinnu sem byggir á kenn­ingum um reynslu­nám. Nám í þeim skiln­ingi felur í sér að draga lær­dóm af reynslu undir hand­leiðslu sér­fræð­inga til að öðl­ast aukna færni sem hópein­ing. Dýpt lær­dóms­ins veltur að miklu leyti á hversu krefj­andi hópeflið er, hve hæfir leið­bein­endur eru og hve mót­tæki­legir þátt­tak­endur eru fyrir ferl­ið. Þarna drögum við fram lyk­il­orð: reynslu­nám, lær­dóm­ur, hand­leiðsla, sér­fræð­ing­ar, hópein­ing. Efumst um að sum fyr­ir­tæki sem segj­ast bjóða upp á hópefli hafi nokkurn tím­ann heyrt þessi hug­tök nefnd. Alla­vega ekki í sam­hengi við hópefli.

Raun­veru­legt hópefli er byggt upp eins og nám; með mark­mið og ætl­aða nið­ur­stöðu. Raun­veru­legt hópefli er skipu­lagt og fram­kvæmt af leið­bein­endum sem hafa reynslu af hóp­þró­un­ar­vinnu og þekk­ingu á hóp­þró­un­ar­fræð­um. Trú­verð­ugra tel ég að í ofan á lag hafi leið­bein­endur reynslu af stjórnun mannauðs, ekki bara sem sprelli­gos­ar.

Auglýsing

Flestir þekkja klisj­una: "Mannauð­ur­inn er mik­il­væg­asta auð­lind fyr­ir­tæk­is­ins”. Ef þessi klisja er sönn þá hlýtur að skipta gíf­ur­legu máli hvernig þessi auð­lind starfar. Að sjálf­sögðu er búið að rann­saka trilljón sinnum hvað skiptir mestu máli til að mannauð­ur­inn skili sem mestri fram­legð. Þar á blaði kemur oft fram starfs­á­nægja, mórall, sam­skipti við sam­starfs­fólk eða vinnu­staða­menn­ing. Jafn­vel á undan launa­kjör­um. Hugs­an­lega eru þessar stað­reyndir ástæðan fyrir því að allt of margir eru farnir að tala um hópefli til að lokka til sín við­skipti. Vit­neskjan um mik­il­vægi ánægðs starfs­fólks og góðrar sam­vinnu er í loft­inu.

Þó það kunni að vera gaman að fara saman í keilu, bíó, á djam­mið, lasertag eða hlaupa um bæinn með hár­kollu þá leiðir sú afþrey­ing ekki endi­lega af sér aukna starfs­á­nægju eða betri vinnu­staða­menn­ingu. Kannski er það ekki mark­miðið og von­andi ekki, enda afþrey­ingin sem var nefnd ágætis afþrey­ing. En köllum afþr­ey­ing­una ekki hópefli af því að það hljómar vel. Köllum afþr­ey­ingu bara áfram afþr­ey­ingu en ruglum henni ekki saman við hópefli.

Höf­undar eru stofn­endur Úthópía ehf.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None