Sigurður G., markaðsmisnotkunin og arðsemin af því að haga segli eftir vindum

siggiggudjonsson.jpg
Auglýsing

Lög­mað­ur­inn Sig­urður G. Guð­jóns­son er mikið ólík­inda­tól. Hann talar tæpitungu­laust, er óhræddur að hjóla fast í mann­inn á opin­berum vett­vangi, er ekki alltaf að láta stað­reyndir þvæl­ast fyrir sér og hefur tekið að sér að gæta hags­muna ótrú­lega fjöl­breyti­legs hóps manna. Á milli þess sem hann tínir upp rusl af miklum móð sam­fé­lag­inu öllu til heilla.

Aðlög­un­ar­hæfni Sig­urðar G. að mál­stað skjól­stæð­inga sinna má meðal ann­ars sjá í þremur málum sem hann hefur flutt fyrir dóm­stól­um.

Sig­urður G. er lög­maður þeirra manna sem stóðu að fjár­fest­ing­ar­fé­lag­inu Sund, sem síðar var breytt í IceCapi­tal og er nú gjald­þrota. Síðla árs 2010 tók hér­aðs­dómur Reykja­víkur fyrir mál Arion banka gegn félag­inu vegna van­efnda á lána­samn­ingi. Í mál­inu bar lög­maður Sund/Icecapital, Sig­urður G., fyrir sig að félagið hefði verið mis­notað mark­aðs­mis­notk­un­ar­til­burðum Kaup­þings, fyr­ir­renn­ara Arion banka, til að kaupa hluta­bréf bank­anum til að hafa áhrif verð­myndun hans. Þá hafi rekstur Kaup­þings eftir árið 2006 verið „einn blekk­ing­ar­leikur af hálfu stjórn­enda bank­ans" og fjár­festar hafi „bæði verið blekktir og beittir svik­um". Í mála­til­bún­aði Sunds/IceCapi­tal segir auk þess að stjórn­endur Kaup­þings hafi „á árunum 2007 til 2008 unnið mark­visst þágu ein­stakra hlut­hafa sinna og tekið stöðu gegn íslensku krón­unn­i". Á grund­velli þess­ara raka fór Sig­urður G. fram að skjól­stæð­ingur hans yrði ekki bund­inn af lánasamn­ingn­um. Hér­aðs­dómur hafn­aði þessum rökum og Hæsti­réttur stað­festi þá nið­ur­stöðu nokkrum mán­uðum síð­ar. IceCapi­tal var gert að greiða Arion banka 3,5 millj­arða króna.

Auglýsing

Sami hópur var aftur mættur fyrir dóm­stóla vorið 2011, nú vegna dótt­ur­fé­lags IceCapital, Iceproperties, sem eig­end­urnir vildu ekki gefa upp til gjald­þrota­skipta þrátt fyrir him­in­háar skuld­ir. Í mál­flutn­ingi fyrir dómi kom fram í máli lög­manns Iceproperties, Sig­urðar G., að hann teldi skjól­stæð­inga sína hafa verið fórn­ar­lömb mark­aðs­mis­notk­unar af hendi Glitnis banka þegar þeir keyptu bréf í honum fyrir um átta millj­arða króna, sem  voru fengnir að láni hjá Glitni. Þess má geta að Sig­urður G. var stjórn­ar­maður í Glitni fyrir hrun. Dóm­stólar keyptu ekki rök Sig­urðar G. og Iceproperties var gefið upp til gjald­þrota­skipta.

Spólum nú áfram um nokkur ár og sami Sig­urður G., sem taldi aðra skjól­stæð­inga sína vera fórn­ar­lömb mark­aðs­mis­notk­unar Kaup­þings og Glitn­is, er mættur fyrir dóm­stóla að verja Sig­ur­jón Þ. Árna­son, fyrrum banka­stjóra Lands­bank­ans, í tveimur málum þar sem honum er gefið að hafa stundað mark­aðs­mis­notkun ásamt öðrum starfs­mönnum bank­ans. Í IMON-­mál­inu svo­kall­aða var Sig­ur­jón var sýkn­aður í mál­inu í hér­aðs­dómi, þar sem einn dóm­ari af þremur taldi að það ætti að sak­fella hann, en það verður tekið fyrir í Hæsta­rétti 21. sept­em­ber næst­kom­andi. Í stærra mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli var hann sak­felldur og dæmdur í tólf mán­aða fang­elsi fyrir mark­aðs­mis­notk­un. Það mál bíður þess að verða tekið fyrir í Hæsta­rétti.

Af hverju er verið að rifja þetta upp? Jú, vegna þess að í síð­ustu viku skil­aði félag Sig­urðar G., sem heitir í höf­uðið á honum sjálfum, árs­reikn­ingi sem sýndi að lög­mað­ur­inn rekur afar arð­bæra starf­semi. Alls nam hagn­aður félags­ins í fyrra rúmum 70 millj­ónum króna og heild­ar­eignir þess voru 171 milljón króna. Það þýðir að Sig­urður G. hefur verið að hala inn um 5,8 millj­ónum króna á mán­uði í fyrra.

Í bak­her­berg­inu eru menn sam­mála um að árangur Sig­urðar G. sýni að það marg­borgar sig að haga seglum eftir vindi. Og tekj­urnar má síðan nota til hjálpa við yfir­töku á óþægi­legum fjöl­miðlum.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None