Skilur Jón Ásgeir ekki niðurstöðu Hæstaréttar í Aurum-málinu?

jaj.jpg
Auglýsing

Jón Ásgeir Jóhann­es­son skrifar reglu­lega greinar í Frétta­blað­ið, sem hann átti einu sinni en er nú í eigu eig­in­konu hans. Grein­arnar snú­ast vana­lega um ofsóknir sem hann hefur orðið fyrir að ósekju. Slíkar má lesa hér, hér, hér, hér og hér. Eina und­an­tekn­ingin frá þessu leið­ar­stefi var mýkri grein sem Jón Ásgeir skrif­aði nokkrum dögum eftir að skýrsla Rann­sókn­ar­nefndar Alþingis hafði opin­berað alla ævin­týra­legu van­hæfn­ina, græðgina og skeyt­ing­ar­leysið sem átti sér stað í íslensku við­skipta- og fjár­mála­lífi á árunum fyrir hrun. Þar sagð­ist hann hafa misst sjónar á góðum gildum en ætl­aði að leggja sitt af mörkum til "að byggja Ísland upp að nýju."

Og í dag skrif­aði hann enn eina grein­ina í Frétta­blaðið, nú í til­efni þess að Hæsti­réttur hefur ómerkt dóm hér­aðs­dóms í Aur­um-­mál­inu. Í grein­inni er kunn­ug­legt stef. Hann kvartar yfir því að hafa þurft að verja hendur sínar í 13 ár og að til­gang­ur­inn virð­ist vera „sá að koma mér í fang­elsi hvað sem það kostar“. Hann segir ákæru­valdið hafa eytt millj­örðum króna af fé íslenskra skatt­greið­enda síð­ustu 13 ár til að reyna að reyna að finna ein­hvern glæp svo hægt sé að taka hann úr umferð.

Í grein­inni lætur Jón Ásgeir sem að Hæsti­réttur hafi ómerkt nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms með því að blessa lygar Ólafs Þórs Hauks­son­ar, sér­staks sak­sókn­ara, sem hann kallar „óheið­ar­legan emb­ætt­is­mann“, um að hann hafi ekki vitað að með­dóm­ari í Aur­um-­mál­inu, Sverrir Ólafs­son, væri bróðir Ólafs Ólafs­son­ar, sem hlaut þungan dóm í Al-T­hani mál­inu svo­kall­aða. Jón Ásgeir seg­ir: „Hver trúir því að 100 manna her­lið sér­staks sak­sókn­ara kunni ekki á Google þar sem tengslin liggja fyr­ir? Hvaða hugs­an­lega ástæðu hafði hér­aðs­dóm­ar­inn til þess að ljúga til um sam­skipti sín við sér­stakan sak­sókn­ara? Skiptir ekki máli að bréf liggur frammi í mál­inu frá með­dóm­ar­anum sem styður frá­sögn hér­aðs­dóm­ar­ans? Af hverju er svona rugl í kerf­inu tekið út á okkur sem vorum sýkn­að­ir? Ekki er við okkur að sakast um það sem gerð­ist. Eigum við ekki að njóta vafans? Það er skelfi­legt að upp­lifa þá til­finn­ingu að Hæstiréttur haldi hlífi­skildi yfir óheið­ar­legum emb­ætt­is­manni en láti rétt­indi fjög­urra ein­stak­linga lönd og leið.“

Auglýsing

Í bak­her­berg­inu hafa margir klórað sér fast í höfð­inu vegna greinar Jóns Ásgeirs, því hún ber þess ekki merki að hann hafi lesið nið­ur­stöðu Hæsta­réttar í mál­inu. Þar kemur nefni­lega skýrt fram að engu máli skipti hvort sér­stakur sak­sókn­ari hafi vitað hvort menn­irnir tveir væru bræð­ur. Það sem skipti máli fyrir Hæsta­rétt er það sem Sverrir sagði í við­tölum við fjöl­miðla 9. júní 2014. Við frétta­stofu RÚV sagði hann m.a.:  „… Ég trúi því ekki í eina sek­úndu að sér­stakur sak­sókn­ari hafi ekki vitað af mínum tengslum strax í upp­hafi. Ef hann vissi ekki af mínum tengsl­um, þá ber það vott um afskap­lega léleg og yfir­borðs­kennd vinnu­brögð. Mér finnst við­brögð hans, sko, hæpin og mér finnst þetta bera vott um örvænt­ing­ar­fullar og jafn­vel óheið­ar­legar aðgerð­ir. Og hann grípur til þeirra á erf­iðum tímum þegar að trú­verð­ug­leiki hans stofn­unar er eig­in­lega í mol­u­m.“

Í sjón­varps­fréttum saman kvöld bætt­ust eft­ir­far­andi ummæli Sverris við frétt­ina: „„Ég trúi því fast­lega að sér­stakur sak­sókn­ari hafi vitað allan tím­ann hver ég var, hann telji það hins vegar kost að full­yrða núna að hann hafi ekki vitað það. Það laum­ast að mér sá grunur að sak­sókn­ari sé í raun­inni að gera þetta til þess að veikja dóm­inn.“

Í nið­ur­stöðu Hæsta­réttar segir að hann telji „óhjá­kvæmi­legt að virtum atvikum máls­ins að líta svo á að ummæli með­dóms­manns­ins gæfu til­efni til að draga með réttu í efa að hann hefði verið óhlut­drægur í garð ákæru­valds­ins fyrir upp­kvaðn­ingu hér­aðs­dóms­ins.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None