sigmundur_bjarni.jpg
Auglýsing

Á meðan áhyggj­urnar magn­ast upp í heims­bú­skapn­um, meðal ann­ars vegna vand­ræða í Kína, er uppi stór­merki­leg staða á Íslandi. Skuldir rík­is­sjóðs hafa verið greiddar til­tölu­lega hratt niður að und­an­förnu, eru nú komnar niður í 63 pró­sent af árlegri lands­fram­leiðslu, en þær voru yfir 100 pró­sent af lands­fram­leiðslu eftir hrun­ið.

Sér­stak­lega hefur staðan batnað hvað erlendar skuld­bind­ingar varð­ar. Áætl­unin um losun fjár­magnas­hafta hefur fengið góðar við­tök­ur, bæði hjá stjórn­mála­mönnum og einnig hjá þeim sem greina stöðu Íslands erlend­is, þar á meðal láns­hæf­is­mats­fyr­ir­tækj­um. Almenn til­trú virð­ist vera á því að Ísland geti losað um höft, og losað um spenn­una á krón­una, þannig að stöð­ug­leika hag­kerf­is­ins sé ekki ógn­að.

kronueignir

Auglýsing

Það sem einnig er áhuga­vert við stöð­una, er að íslenska ríkið getur bætt stöðu sína stór­kost­lega í þessum aðgerð­um, ekki aðeins með því að fá mörg hund­ruð millj­arða í sinn hlut, heldur getur einnig skap­ast mik­il­væg staða þegar kemur að því að stýra end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins.

Páll Harð­ar­son, for­stjóri Kaup­hallar Íslands, hefur bent á að það geti verið hætta í því fólgin að greiða niður rík­is­skulda­bréf, og um leið draga hratt úr fram­boði af rík­is­skulda­bréf­um. Það kunni að valda miklu ójafn­vægi á mark­aði og valda mik­illi þenslu.

Hvernig sem fer, þá verður það tölu­verður vandi fyrir stjórn­völd að halda þannig á spöð­unum að jafn­vægi verði ekki rask­að. Einn mögu­leik­inn sem ríkið mun standa frammi fyrir er að vinna upp gríð­ar­lega upp­safn­aða skekkju í opin­bera líf­eyr­is­kerf­inu, en hún nemur hátt í sex hund­ruð millj­örðum króna eins og mál standa nú. Einnig gæti ríkið styrkt inn­viði lands­ins, t.d. með nauð­syn­legum end­ur­bótum í heil­brigð­is­kerf­inu, vega­kerf­inu eða þjóð­görð­um, svo fátt eitt sé nefnt.

Einn mögu­leik­inn sem getur komið upp, er að íslenska ríkið eign­ist eign­ar­hlut­ina í fjár­mála­fyr­ir­tækj­unum end­ur­reistu, Arion banka og Íslands­banka, að nán­ast öllu leyti, en ríkið á Lands­bank­ann að nán­ast öllu leyti núna. Þá væri ríkið komið með svo til allt fjár­mála­kerfið í fang­ið, og mikil verð­mæti á sama tíma, þar sem eigið fé banka­kerf­is­ins er nú nálægt 600 millj­örðum króna. Síðan þegar kæmi að sölu á hlut­un­um, þá myndi málið vand­ast og mik­il­vægt að allt ferlið væri algjör­lega gagn­sætt svo að almenn­ingur hefði á því traust. Ann­ars er voð­inn vís.

Það er óhætt að segja að áhyggj­ur ­stjórn­mála­manna og ýmissa fjár­festa séu svo­lítið ann­ars eðlis í flestum öðrum lönd­um, en eru fyrir hendi á Íslandi núna, jafn­vel þó vaxta­hækk­anir og verð­bólgu­þrýst­ingur séu til umræðu. Áætl­unin um losun hafta er risa­vax­inn atburður sem getur haft mikil áhrif til langrar fram­tíð­ar, þegar henni er hrint í fram­kvæmd.

Vonum það besta...

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None