Þorgerður Katrín þolir ekki stjórnmálamenn sem vilja endalaust láta klappa fyrir sér

18963223538_d96bb80416_b.jpg
Auglýsing

Við­tal við Þor­gerði Katríni Gunn­ars­dótt­ur, fyrrum vara­for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í Frétta­blað­inu í dag hefur vakið verð­skuld­aða athygli. Þar talar hún tæpitungu­laust og gagn­rýnir flokk sinn fyrir að vera tré­hest­ur. Ljóst er að fleiri deila skoðun Þor­gerðar Katrín­ar, enda mælist fylgi Sjálf­stæð­is­flokks sögu­lega lítið um þessar mund­ir.

Í við­tal­inu tekur Þor­gerður Katrín þó, að minnsta kosti með annarri hend­inni, upp hansk­ann fyrir for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins og segir að ef ekki væri fyrir "Bjarna Ben þá væri flokk­ur­inn í verri mál­um. Eftir stendur að það er óánægja innan flokks­ins og menn vilja sjá tekið raun­veru­lega á málum sem hafa verið tabú innan flokks­ins".

Hún nefnir síðan land­bún­að­ar­mál, jöfnun atkvæða og skort á getu til þess að læra af nýjum fram­boð­um, eins og Pírötum og Besta flokki Jóns Gnarr í stað þess að tala þau nið­ur, sem dæmi um mál sem þurfi að taka á.

Auglýsing

Í bak­her­berg­inu vakti hins vegar mesta athygli að í við­tal­inu sagði Þor­gerður Katrín að við sem þjóð getum ekki "verið með leið­toga sem senda út skoð­ana­könnun áður en þeir mynda sér skoð­un. Ég þoli það ekki. Maður er ekki í póli­tík til að standa á svið­inu og fá enda­laust klapp".

Þarna er Þor­gerður Katrín að tala um popúl­isma og eng­inn flokkur á Íslandi hefur legið undir meiri ámæli fyrir að stunda slíkan en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, sam­starfs­flokkur Sjálf­stæð­is­flokks hennar í rík­is­stjórn. Lífs­s­eigni Fram­sókn­ar hvílir ann­ars vegar á mjög hörðum kjarna á lands­byggð­inni, sem ójafnt kosn­inga­vægi tryggir að skilar sér í meiri völdum en atkvæði segja til um, og ótrú­legri leikni til að stela kosn­inga­þrumum með ein­földum en stór­kalla­legum kosn­inga­lof­orð­um, sem oft snúa að þeim málum sem skoð­ana­kann­anir sýna að séu lík­leg til vin­sælda þann mán­uð­inn.

Rík­is­stjórnin sem nú situr hefur síðan heldur betur verið dug­leg við að halda risa­sam­komur til að láta klappa fyrir sér, þegar hún telur sig hafa efnt eitt­hvað. Áður en að "Leið­rétt­ing­in" kom til fram­kvæmda var búið að halda þrjá kynn­ing­ar­fundi (30. nóv­em­ber 2013, 26. mars 2014 og 10. nóv­em­ber 2014), þar af tvo í Hörpu, til að fara yfir útfærslu máls­ins. Þegar áætlun um losun hafta var kynnt í júní síð­ast­liðnum var aftur blásið í her­lúðra og þjóð­inni stefnt í Hörpu til að hylla for­ingj­anna fyrir að vinna vinn­una sína. For­ystu­menn stjórn­ar­flokk­anna voru í öllum til­fellum á stóra svið­inu og auð­vitað var sjón­varpað beint frá öllu sam­an.

Því virð­ist yfir­lýs­ing Þor­gerðar Katrínar um óþol gagn­vart klapp-þurf­andi stjórn­málafor­ingjum ekki síst hafa beinst að Bjarna Bene­dikts­syni og félaga hans á valda­stóli, for­sæt­is­ráð­herr­anum Sig­mundi Davíð Gunn­laugs­syni.

Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson kynna útfærslu og umfang leiðréttingarinnar í nóvember 2014. Bjarni Bene­dikts­son og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son kynna útfærslu og umfang leið­rétt­ing­ar­innar í nóv­em­ber 2014.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None