Víglundur og Sigurður G. verða kannski með uppistand

viglundur.jpg
Auglýsing

Nú þegar myndin er tek­ist að skýr­ast enn frekar, varð­andi losun fjár­magns­hafta, þá blasir við enn eitt jákvæða skrefið sem stigið er í end­ur­reisn­inni á íslenska hag­kerf­inu eftir hrun fjár­mála­kerf­is­ins. Núna hefur Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn fengið sitt til baka og er far­inn frá land­inu, eftir góð störf í þágu Íslands. Það reynd­ist Íslandi vel að fá gjald­eyr­is­lán frá sjóðn­um. Ices­ave málið er úr sög­unni, og losun fjár­magns­haft­anna er á næsta leyti. Skuldir hafa verið lækk­aðar hratt, og hag­kerfið hefur eflst. Þrátt fyrir póli­tísk átök, sem eru for­dæma­laus í sögu lands­ins, þá hefur þessi árangur náðst fram, og eiga stjórn­mála­menn hrós skilið fyrir það.

Ríkið á 98 pró­sent í Lands­bank­anum og mun að öllum lík­indum eign­ast allt hlutafé Íslands­banka líka, sam­kvæmt til­boði kröfu­hafa Glitn­is. Hlutur rík­is­ins í Arion banka er þrettán pró­sent.

Nú er sem sagt að koma á dag­inn, að íslenska ríkið er að koma einkar vel út úr því, að hafa fengið kröfu­haf­ana að borð­inu og inn í hlut­hafa­hóp­inn, þegar bank­arnir voru end­ur­reistir eftir hið for­dæma­laus hrun Kaup­þings, Glitnis og Lands­bank­ans dag­ana 7. til 9. októ­ber. Stóra myndin er sú, að ríkið er nú með almanna­hags­muni í fang­inu, og fjár­magns­höftin hafa allan tím­ann tryggt það að kröfu­hafar gætu ekki farið úr landi með ávinn­ing úr kerf­inu. Banka­kerfið var end­ur­skipu­lagt í sam­starfi við kröfu­hafa, og réttur Íslands var virtur til þess að stýra ferð­inni þegar á reyndi.

Auglýsing

Víglundur Þor­steins­son og Sig­urður G. Guð­jóns­son hrl. hafa marg­ít­rekað sakað ráða­menn þjóð­ar­inn­ar, þing­menn, ráð­herra og emb­ætt­is­menn, um lög­brot við end­ur­reisn­ina, og sagt að kröfu­hafar hafi náð 400 til 500 millj­örðum af heim­ilum og fyr­ir­tækj­u­m. Brynjar Níels­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks sem situr í stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd, var fengin til að fara yfir málið þegar þeir félagar höfðu komið því til þings­ins með bréfi og skil­aði skýrslu 17. febr­úar síð­ast­lið­inn. Í henni tók Brynjar ekki undir ásak­anir Víglundur um að svikum og blekk­ingum hefði verið beitt við end­ur­reisn banka­kerf­is­ins til að gæta hags­muna erlendra aðila. Það gerðu raunar fæst­ir, sem höfðu kynnt sér mál­ið.

Það er kannski til of mik­ils mælst að þeir félagar biðj­ist afsök­unar á frum­hlaupi sínu, nú þegar ríkið er að fara eign­ast stóran hluta af þessum „ávinn­ing­i“, sem kröfu­haf­arnir höfðu reyndar aldrei tök á því að borga til sín. En þeir gætu kannski breytt aðeins um tón á blaða­mann­fundum sín­um, og verið með uppi­stand í stað­inn fyrir full­yrð­ingar um að nafn­greint fólk út í bæ væri að fremja lög­brot gagn­vart almenn­ingi.

Hlut­deild rík­is­ins í eigin fé end­ur­reista banka­kerf­is­ins, ef til yfir­töku á öllu hlutafé Íslands­banka kem­ur, verður um 463,6 millj­arðar króna, eða nálægt tveimur þriðju af öllu eigið fé í fjár­mála­kerf­inu. Þetta er góð staða til að byggja á fyrir fram­hald­ið, og býður aug­ljós­lega upp á tæki­færi til hag­ræð­ingar og styrk­ingar á fjár­mála­kerfi, sem hefur almanna­hags­muni að leið­ar­ljósi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None