Yfirvofandi nýliðunarvandi: Meðalaldur lífeindafræðinga 55 ár

Vala Jónsdóttir og Katrín Rún Jóhannsdóttir
15416922713-1ded9deb5a-z.jpg
Auglýsing

Á Land­spít­ala starfa 162 líf­einda­fræð­ing­ar. Helm­ingur þeirra er 58 ára eða eldri og fjórð­ungur verður 64 ára eða eldri á þessu ári. Á næstu árum þarf Land­spít­ali því að ráða þónokkurn fjölda líf­einda­fræð­inga. Í ár útskrif­ast 11 nem­endur með BS gráðu í líf­einda­fræði frá Háskóla Íslands. Til að fá starfs­rétt­indi þarf auk BS gráðunnar að taka eitt ár í diplóma­námi á meist­ara­stigi og munu 6 nem­endur útskrif­ast með starfs­rétt­indi í ár. Störf líf­einda­fræð­inga eru marg­vís­leg innan heil­brigð­is­stofn­anna, en þar starfa líf­einda­fræð­ingar m.a. við erfða­rann­sóknir og fóst­ur­skiman­ir, almennar blóð­rann­sókn­ir, krabba­meins­grein­ing­ar, grein­ingar á sýk­ing­ar­völd­um, grein­ingar á ónæm­is­fræð­i­sjúk­dóm­um, stjórnun hjarta- og lungna­véla í hjarta­að­gerð­um, hjarta­óm­anir o.fl. Fjöldi líf­einda­fræð­inga starfar einnig í einka­reknum fyr­ir­tækj­um, m.a. við þróun lyfja, eft­ir­lit, gæða­stjórn­un, grein­ingu á inni­haldi mat­vara o.fl.

Grunn­laun  nýút­skrif­aðs líf­einda­fræð­ings sem hefur störf á Land­spít­ala eru sam­kvæmt stofn­ana- og kjara­samn­ingum kr. 295.944. Til að tryggja öryggi sjúk­linga meiga nýút­skrif­aðir líf­einda­fræð­ingar á Land­spít­ala ekki taka vaktir fyrr en eftir 6-12 mán­uði í starfi. Því þurfa nýút­skrif­aðir að láta sér grunn­launin duga, þar til þeir geta híft launin upp með næt­ur­vinnu og bak­vökt­um.

Á rann­sókn­ar­sviði voru fram­kvæmdar tæpar 2 millj­ónir rann­sókna fyrir utan allar mynd­grein­ingar árið 2014. Til vinnslu þess­ara sýna er nauð­syn­legt að hafa líf­enda­fræð­inga að störf­um. Erf­ið­lega gengur að ráða nýút­skrif­aða líf­einda­fræð­inga til starfa á Land­spít­ala og veldur það því að starf­stéttin eld­ist, álag á starfs­menn eykst, hætta á mis­tökum eykst og bið­tími leng­ist. Mik­il­vægt er að end­ur­nýjun hefj­ist strax því ann­ars stöndum við frammi fyrir því að glata verð­mætri þekk­ingu eldri starfs­manna.

Auglýsing

Minni­hluti nýút­skrif­aðra líf­einda­fræð­inga hefur störf á Land­spít­ala. Grunn­laun líf­einda­fræð­inga sem vinna á öðrum rík­is­reknum stofn­unum en spít­ölum lands­ins eru hærri. Aðrar stofn­anir bjóða einnig betri vinnu­tíma, þar sem spít­alar lands­ins eru einu vinnu­staðir líf­einda­fræð­inga sem krefj­ast vakta­vinnu.

Verk­fall Félags líf­einda­fræð­inga, sem er hluti af BHM, hefur nú staðið yfir frá klukkan 8 til 12 á virkum dögum síð­ast­liðnar 5 vik­ur. Áhrif þess að líf­enda­fræð­ingar leggi niður störf hálfan dag eru mik­il; ekki er hægt að vinna öll sýni sem koma inn, sjúk­lingar þurfa að bíða lengur eftir nið­ur­stöðum og grein­ingar á sjúk­dómum tefj­ast. Ljóst er að staðan í heil­brigð­is­kerf­inu er slæm en ef ekk­ert er að gert mun hún versna hratt á næstu árum. Þó svo að líf­einda­fræð­ingum þyki sárt að fara í verk­fall er það nauð­syn­legt vegna þess að nýliðun í þess­ari stétt er lítin sem engin eins og staðan er í dag og því verður að breyta. Eðli­leg nýliðun er nauð­syn­leg ef mögu­legt á að vera að reka nútíma heil­brigð­is­þjón­ustu á Íslandi.

Höf­undar eru líf­einda­fræði­nemar sem eru ann­ars vegar , að klára fjórða ár og hins vegar að klára þriðja ár. Báðar íhuga þær alvar­lega að flytja til Norð­ur­landa að loknu námi til að geta unnið í betra starfs­um­hverfi á launum við hæfi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None