Lítið álver á að fara rísa við Hafursstaði - Hvað eru Kínverjarnir að hugsa?

Kína
Auglýsing

Klappir Develop­ment ehf. í sam­starfi við Kín­verska fjár­festa - þar sem vafa­lítið er stutt í kín­verska ríkið - vilja reisa 120 þús­und tonna álver við Haf­urs­staði í Skaga­byggð. Sam­kvæmt fjár­laga­frum­varpi sem nú er til með­ferðar á Alþingi, þá er gert ráð fyrir að rík­is­sjóður leggi und­ir­bún­ingi verk­efn­is­ins til 30 millj­ónir króna. For­svars­menn Klappa höfðu áður beðið um 70 millj­ón­ir, til að kanna ýmsa þætti verk­efn­is­ins. 



Óhætt er að segja að þeir séu bjart­sýnir á að álverið verði að veru­leika, því í við­tali við Morg­un­blaðið 23. nóv­em­ber lét Ingvar Unn­steinn Skúla­son, for­svars­maður Klappa, hafa eftir sér að ef ekk­ert óvænt gerð­ist þá yrði til­kynnt um bygg­ingu álvers­ins næsta vor, eða eftir innan við hálft ár. 

Þetta verður að telj­ast með nokkrum ólík­ind­um, í ljósi aðstæðna í áliðn­aði þessa dag­ana. Álverð hefur hríð­fallið að und­an­förnu, og stærstu álf­ram­leið­endur heims­ins hafa hag­rætt í rekstri. Þannig hefur Rio Tin­to, sem rekur álver í Straums­vík, lokað fjórum álverum á sex árum og selt eign­ar­hluti í fjórum öðr­um.

Stjórn­endur Rio Tinto hafa enn fremur upp­lýst um að álverið sé rekið með tapi þessa dag­ana. 

Auglýsing

Nú skal ekk­ert full­yrt um hvernig rekst­ur­inn muni ganga í álver­inu við Haf­urs­staði - ef það mun rísa - en margt vekur upp spurn­ing­ar. Til dæmis yrði þetta 120 þús­und tonna álver eitt það minnsta í heimi, í iðn­aði þar sem stærð­ar­hag­kvæmni hefur verið leið­ar­ljós í rekstr­ar­þróun und­an­farna ára­tugi. Álver hafa verið sífellt að stækka, og nýbygg­ingar á 120 þús­und tonna álverum þekkj­ast varla.

Ál.

Þegar for­sendur verk­efn­is­ins eru skoð­að­ar, hlýtur kast­ljósið að bein­ast að því á hvaða verði raf­orka verður keypt. Varla kemur til álita að nið­ur­greiða stór­kost­lega raf­orku í þetta litla álver, á hefð­bundna mæli­kvarða?



Það hlýtur að skýr­ast innan tíðar hverjar eru for­sendur þessa verk­efn­is, og þá hvort það verður að veru­leika. Kín­verjar eru oft sagðir vera að hugsa marga leiki fram í tím­ann, þegar þeir taka við­skipta­á­kvarð­an­ir, og ekki síst þess vegna er aðkallandi að leggja öll spilin á borðið sem varða þetta verk­efni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None