Kjarninn birtir ákæru í Stím-málinu í heild sinni

sersakVef.jpg
Auglýsing

Sér­stakur sak­sókn­ari birti þremur mönn­um: Lárusi Weld­ing, Jóhann­esi Bald­urs­syni og Þor­valdi Lúð­vík Sig­ur­jóns­syni, ákæru í síð­ustu viku í hinu svo­kall­aða Stím-­máli. Hinir tveir fyrr­nefndu eru ákærðir fyrir umboðs­svik en Þor­valdur Lúð­vík fyrir hlut­deild  í slík­um. Kjarn­inn hefur ákæruna undir hönd­um. Hana má lesa í heild sinni hér.

Tug­millj­arðar til að kaupa óselj­an­leg bréf



Málið snýst ann­ars vegar um tug­millj­arða króna lán­veit­ingar til félags­ins Stím ehf., í nóv­em­ber 2007 og jan­úar 2008. Stím var búið til af starfs­mönnum Glitnis í þeim til­gangi að kaupa hluta­bréf í bank­anum sjálfum og stærsta eig­anda hans, FL Group, sem bank­inn sat uppi með á veltu­bók sinni. Eng­inn mark­aður var fyrir bréfin á því verði sem Stím greiddi fyrir þau.

Lýstar kröfur í bú Stím þegar það fór á haus­inn voru rúm­lega 24 millj­arðar króna. 0,06 pró­sent fékkst upp í kröf­urn­ar. Ljóst er að fjár­tjón lán­veit­enda, Glitn­is, var því gríð­ar­legt. Lárus Weld­ing er ákærður fyrir umboðs­svik í tveimur liðum vegna lán­veit­ing­anna sem áttu sér stað í nóv­em­ber 2007 og í jan­úar 2008, en hann var for­stjóri Glitnis á þeim tíma.

Sjóðs­fé­lagar látnir taka högg Sögu



Hins vegar snýst málið um kaup fag­fjár­festa­sjóðs­ins GLB  FX á víkj­andi skulda­bréfi af Saga Capi­tal í ágúst 2008. Saga hafði lánað Stím millj­arð króna en þegar ljóst varð að Stím var komið með nei­kvætt eigið fé setti, sam­kvæmt ákæru, Þor­valdur Lúð­vík Sig­ur­jóns­son, þáver­andi for­stjóri og eig­andi í Sögu Capital, mik­inn þrýst­ing á Glitni að kaupa af sér skulda­bréf­ið. Það var loks gert í ágúst 2008, skömmu fyrir banka­hrun, og öll upp­hæðin auk vaxta end­ur­greidd til Sögu Capi­tal. Hún nam um 1,2 millj­arði króna.

Kaup­and­inn var umræddur sjóð­ur, GLB FX. Með því var tap vegna Stím fært af Sögu Capi­tal yfir á þá sem áttu hlut­deild í sjóðn­um. Þar á meðal voru íslenskir líf­eyr­is­sjóð­ir. Jóhannes Bald­urs­son var fram­kvæmda­stjóri mark­aðsvið­skipta Glitnis á þessum tíma og tók, sam­kvæmt ákæru, ákvarð­anir um að kaupa hið verð­litla skulda­bréf á fullu verði. Hann er ákærður fyrir umboðs­svik. Þor­valdur Lúð­vík er síðan ákærður fyrir hlut­deild í umboðs­svik­um.

Auglýsing

„VICT­OR­Y!“



Í ákærunni stendur að umboðs­svik Jóhann­esar hafi falist í að mis­nota aðstöðu sína gagn­vart umsjón­ar­mönnum sjóðs­ins, en hann var yfir­maður þeirra, með því að gefa öðrum þeirra fyr­ir­mæli um að ráð­stafa rúm­lega 1,2 millj­arði króna til kaupa á víkj­andi skulda­bréfi „sem honum var full­kunn­ugt um að var án raun­veru­legra trygg­inga og von­lítið eða von­laust að feng­ist greitt. Ráð­stöf­unin var gerð til hags­bóta fyrir Sögu Capi­tal og var í beinni and­stöðu við hags­muni eig­enda sjóðs­ins“.

Í ákærunni stendur einnig að „Frá des­em­ber 2007 og fram í júlí 2008 var ákærði Þor­valdur Lúð­vík í miklum sam­skiptum við ákærða Jóhannes og aðra starfs­menn Glitnis vegna sífellt versn­andi stöðu Stíms og þar með yfir­vof­andi fjár­tjóns­hættu Sögu Capi­tal vegna víkj­andi kröfu sinn­ar. Áhyggjur ákærða Þor­valdar Lúð­viks koma meðal ann­ars fram í sam­skiptum við end­ur­skoð­endur Sögu Capi­tal og til­raunum hans til að fá frá Glitni ein­hvers konar skað­leys­is­yf­ir­lýs­ingu svo kröf­una þyrfti ekki að afskrifa eða var­úð­ar­færa í bókum Sögu Capi­tal. Gögn máls­ins sýna að Þor­valdi Lúð­vík var full­kunn­ugt um bág­borna stöðu skuld­ar­ans Stíms sam­kvæmt hinu víkj­andi skulda­bréfi og að hann hafi knúið á um að Glitnir myndi finna lausn á mál­inu með þeim hætti að Saga Capi­tal fengi efndir fjár­kröfu sinn­ar. Sam­kvæmt gögnum máls­ins virð­ast ákærðu hafa verið búnir að sam­mæl­ast um að Saga Capi­tal fengi kröfu sína á hendur skuld­ar­anum Stími greidda að fullu, nokkru fyrir við­skiptin í ágúst 2008“. Í ákærunni er einnig greint frá því að „Ákærði Jóhannes hafði sam­band við ákærða Þor­vald Lúð­vík á hádegi 14. ágúst 2008 með tölvu­pósti. Í meg­in­máli hans stóð ein­ung­is: „GLB FX (Glitnir sjóðir hf., GLB FX) kt.5212069420“.

"Fimm mín­útum síðar framsendi ákærði Þor­valdur Lúð­vík póst­inn til sam­starfs­manna sinna hjá Sögu Capi­tal og sagði í meg­in­máli pósts­ins orð­rétt: „VICT­OR­Y!“ Seinna sama dag gaf ákærði Þor­valdur Lúð­vík þessum sömu sam­starfs­mönnum fyr­ir­mæli um að útbúa fram­virkan samn­ing um sölu á víkj­andi skulda­bréf­inu til GLB FX[...]á­kærði Þor­valdur Lúð­vík var í senn for­stjóri Sögu Capi­tal og eig­andi að 12% hluta­fjár í fjár­fest­inga­bank­anum [...]Hafði ákærði Þor­valdur Lúð­vík því per­sónu­lega og fjár­hags­lega hags­muni af því að við­skiptin með hið víkj­andi skulda­bréf yrðu að veru­leika“.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None