FME segir Víglund fara með rangt mál, rannsókn hafin á gagnaleka

vigundur_gagnrynir.copy_.013.jpg
Auglýsing

Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) hefur hafnað mála­til­bún­aði Víg­lundar Þor­steins­sonar sem hefur ásakað stjórn­mála­menn, emb­ætt­is­menn og eft­ir­lits­að­ila um að hafa fært erlendum kröfu­höfum föllnu bank­anna þriggja 300- 400 millj­arða króna þegar samið var við þá um end­ur­reisn íslenska banka­kerf­is­ins.

Víglundur vill meina að þessi upp­hæð hefði með réttu átt að fara í að lækka lán íslenskra fyr­ir­tækja og heim­ila um þessa upp­hæð og með því að skila þeim ekki fénu hefði þeir aðilar sem komu að ákvörð­un­inni mögu­lega framið stór­felld lög­brot. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hefur sagt að málið sé grafal­var­legt, að með þeim samn­ingum sem gerðir voru hafi hund­ruð millj­arða króna verið færðir til kröfu­hafa og hefur boðað rann­sókn á mál­inu.

"Því er rang­lega haldið fram að Fjár­mála­eft­ir­litið hafi með stofnúr­skurði mælt fyrir um afskriftir á ein­stökum lán­um," segir í til­kynn­ingu FME.

Auglýsing

Segja Víglund oftúlka gögnin



Fjár­mála­eft­ir­litið birti í gær­kvöld til­kynn­ingu um málið á heima­síðu sinni. Þar stendur meðal ann­ars: "Því er rang­lega haldið fram að Fjár­mála­eft­ir­litið hafi með stofnúr­skurði mælt fyrir um afskriftir á ein­stökum lán­um. Eins og áður greinir tók Fjár­mála­eft­ir­litið ákvarð­anir um hvaða eignir og skuldir færu yfir til nýju bank­anna og eftir hvaða ferli skyldi meta virði þeirra. Þau fylgi­skjöl sem nú hafa birst opin­ber­lega, drög að stof­nefna­hags­reikn­ingum bank­anna þriggja frá í októ­ber 2008, höfðu þann eina til­gang að leiða fram gróft mat á efna­hag bank­anna við upp­haf rekst­urs þeirra, stöðu sem fyr­ir­fram var vitað að tæki breyt­ingum á grund­velli áður­nefnds mats­ferl­is. Enn­fremur er rétt að benda á að FME kveður almennt ekki upp úrskurði.

Fjár­mála­eft­ir­litið harmar að gögn sem þessi með ítar­legum upp­lýs­ingum um ein­staka við­skipta­vini bank­anna birt­ist opin­ber­lega. FME hefur til skoð­unar hvort í birt­ing­unni felist brot á 58. gr. laga 161/2002."

Sú grein snýst um brot á banka­leynd. Kjarn­inn greindi frá því fyrr í vik­unni að FME telji gögnin sem Víglundur sendi á alþing­is­menn og fjöl­miðla ekki hafa lekið frá sér. Nú er hins vegar ljóst að rann­sókn er hafin á því hvaðan gögnin komu. Í bréfi sem Víglundur sendi Ein­ari K. Guð­finns­syni, for­seta Alþing­is, sagði hann að það hefði atvikast svo að „ókunnur aðili sem ég hef nefnt hinn „nýja litla síma­mann“ sendi mér alla stofnúr­skurði FME um nýju bankana“. Sam­kvæmt til­kynn­ingu FME eru þau gögn sem Víglundur sendi alls ekki stofnúr­skurðir um nýju bank­ana.

Hægt er að lesa til­kynn­ingu FME í heild sinni hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None