Umbylting landbúnaðar eitt mesta framfaramál samtímans

BillGates.jpg
Auglýsing

Stofnun rík­ustu hjóna heims­ins, Bill and Melinda Gates Founda­tion, hefur á und­an­förnum árum stutt við rann­sóknir og þró­un­ar­starf sem snýr að ræktun á svæðum í Afr­íku, þar sem erf­ið­lega hefur gengið að koma upp búskap, meðal ann­ars ávaxta- og græn­met­is­fram­leiðslu. Útlit er að fyrir að vinna stofn­un­ar­innar hafi nú þegar umbylt mögu­leikum í álf­unni, meðal ann­ars þegar kemur að ban­ana­rækt. Rann­sóknir á genat­ískri ávaxta­ræktun hafa skotið stoðum undir að hugs­an­lega séu þær lyk­ill­inn að því að eyða hung­ursneyð í heim­in­um, eða í það minnsta minnka hana stór­kost­lega, fyrir árið 2030.

Bill Gates, stofn­andi Microsoft, gerir þetta að umtals­efni í ítar­legri grein sem birt er á vefnum The Verge, þar sem hann hefur verið gesta­rit­stjóri í febr­ú­ar­mán­uði. Í grein­inni bendir hann á að Sam­ein­uðu þjóð­irnar áætli að 800 millj­ónir manna í heim­inum hafi ekki nægi­lega góðan aðgang að mat, og þjá­ist því vegna hung­urs. Gates segir að fram­þróun í land­bún­aði, þar sem ræktun verður áreið­an­legri og geti farið fram við erf­ið­ari aðstæður en nú þekkist, sé lyk­ill­inn að því að eyða hung­ursneyð. Miklar fram­farir hafi átt sér stað að und­an­förnu, sem sýni að mögu­legt sé að rækta upp ávexti og græn­meti á svæðum sem hafi átt erfitt upp­drátt­ar. Nefnir Gates dæmi um eitt mesta ban­ana­land í heimi, Úganda, sem hafi upp­lifað miklar sveiflur í ban­ana­rækt, meðal ann­ars vegna þess að ræktun hefur reglu­lega hrun­ið. Með því styðja rann­sóknir og þró­un­ar­starf í land­bún­aði, sem miði að því að gera ræktun við erf­iðar aðstæður mögu­legri en nú er, geti gríð­ar­leg tæki­færi skap­ast.

https://www.youtu­be.com/watch?v=t­du7d74WbBo

Auglýsing

Bill Gates lýkur grein sinni á að benda á að með því að ná árangri í land­bún­aði þar sem mat­væla­fram­leiðsla er ann­ars veg­ar, eigi að vera hægt að stækka til muna svæðin í Afr­íku þar sem ræktun fer fram. Með til­heyr­andi aukn­ingu á fram­leiðslu mat­væla, sem vinni gegn hung­ursneyð í heim­in­um. Ekki síst af þessum ástæðum sé aukin fram­þróun land­bún­aðar eitt mesta fram­fara­mál sam­tím­ans.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None