Vildi Apple koma hingað? Landsvirkjun tjáir sig ekki um það

landsvirkj12.jpg
Auglýsing

Ákvörðun Apple um að fjár­festa fyrir 1,7 millj­arða evra, um 255 millj­arða króna, í gagna­verum í Dan­mörku og Írlandi, hefur vakið athygli í dag, en Apple til­kynnti um gagna­vers­upp­bygg­ingu með til­kynn­ingu til kaup­hallar í nótt. Ein ástæðan fyrir því að Apple byggir upp á þessum stöðum er sú að gagna­verin verða knúin áfram með vist­vænni orku, það er orku sem unnin er úr end­ur­nýj­an­legum orku­gjöf­um, að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá Apple. Búist er við því að gagna­verin verði til­búin til notk­unar árið 2017 og muni veita um 300 starfs­mönnum vinnu til fram­tíð­ar, á hvorum stað.

Lands­virkjun hefur á und­an­förnum árum sinnt mark­aðs­starfi sem miðar að því að fá gagna­ver hingað til lands. Að sögn Magn­úsar Þórs Gylfa­son­ar, yfir­manns sam­skipta­sviðs Lands­virkj­un­ar, hefur eft­ir­spurn vegna orku­kaupa fyrir gagna­ver auk­ist að und­an­förnu. Hann var ekki til­bú­inn að tjá sig um hvort Apple hefði sýnt því áhuga að koma hingað til lands. „Vegna þess hve eft­ir­spurn gagna­ver­anna er mik­il, og sam­keppni þeirra á milli hörð, er Lands­virkjun að jafn­aði ekki heim­ilt að upp­lýsa við hvaða aðila fyr­ir­tækið á í við­ræðum við hverju sinn­i,“ sagði Magnús Þór í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans.

Hann segir enn­fremur að það sjá­ist á ákvörðun App­le, að fyr­ir­tæki horfi til þess að nýta umhverf­is­væna end­ur­nýj­an­lega orku, þar sem við­skipta­vin­irnir séu farnir að gera kröfu um slíkt í meira mæli en áður. „Það sést af ákvörðun Apple að fyr­ir­tækið leggur mikla áherslu á að gagna­ver þess séu knúin end­ur­nýj­an­legri orku. Þetta er í takt við stefnu vax­andi fjölda erlendra stór­fyr­ir­tækja sem þjón­usta kröfu­harða við­skipta­vini með sterka umhverf­is­vit­und. Hér á Íslandi finnum við fyrir vax­andi áhuga slíkra aðila. Sá áhugi styrkir trú okkar um að sú end­ur­nýj­an­lega orka sem við getum boðið við­skipta­vinum okkar auki sam­keppn­is­hæfni fyr­ir­tæk­is­ins og muni skila okkur auknum fjölda tæki­færa í fram­tíð­inn­i,“ segir í svari Magn­úsar Þórs.

Auglýsing

Apple er verðmætasta fyrirtæki heims, og hefur átt mikilli velgengni að fagna undanfarin ár. Apple er verð­mætasta fyr­ir­tæki heims, og hefur átt mik­illi vel­gengni að fagna und­an­farin ár.

Apple hefur að und­an­förnu verið að horfa til auk­inna fjár­fest­inga enda er þetta verð­mætasta fyr­ir­tæki heims með fulla vasa fjár eftir ótrú­lega vel­gengni und­an­farna mán­uði. Félagið skil­aði hagn­aði upp á 18 millj­arða Banda­ríkja­dala á síð­ustu þremur mán­uðum árs­ins í fyrra, eða um 2.300 millj­arða króna, og mun­aði þar ekki síst um gríð­ar­lega mikla sölu á iPhone 6 sím­an­um. Hann seld­ist í tæp­lega 80 millj­ónum ein­taka á síð­ustu þremur mán­uðum árs­ins í fyrra, eða sem nemur um 860 þús­und ein­tökum á degi hverjum að með­al­tali á tíma­bil­inu.

Þá átti fyr­ir­tækið 178 millj­arða Banda­ríkjdala í lausu fé, í lok síð­asta árs, eða sem nemur 23 þús­und millj­örðum króna. Þetta fé er fyr­ir­tækið nú að nota til fjár­fest­inga, en spurst hefur út að und­an­förnu að fyr­ir­tækið hygg­ist koma nýjum raf­magns­bíl í sölu árið 2020 og þannig koma sér fyrir á bíla­mark­aði. Þetta hefur þó ekki enn verið stað­fest með til­kynn­ingu til kaup­hallar en búist er við tíð­indum af þessum áformum áður en langt um líð­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None