Sjálfstæðisflokkurinn gefur ekki upp hversu mikið hann er búinn að endurgreiða af styrkjum

bjarni.jpg
Auglýsing

Fram­kvæmda­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Þórður Þór­ar­ins­son, vill ekki gefa upp hversu stóran hluta af 56 millj­óna króna styrkjum sem flokk­ur­inn fékk frá FL Group og Lands­bank­anum í lok árs 2006 er búið að end­ur­greiða. Hann segir flokk­inn ekki vilja tjá sig í smá­at­riðum um ein­staka liði í bók­haldi hans.

„Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var eini flokk­ur­inn sem ákvað að end­ur­greiða háa styrki sem hann hlaut árið 2006. Flokk­ur­inn hefur end­ur­greitt árlega af rekstr­arfé sínu. Áætl­anir ganga úr frá því að klára að end­ur­greiða styrk­ina fyrir árið 2018,“ segir Þórð­ur.

Kjarn­inn hafði sam­band við Júl­íus Þor­finns­son, fram­kvæmda­stjóra Stoða, sem áður hétu FL Group og spurði hann hvort og hversu mikið Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi greitt til baka. Hann sagði félagið hafa ákveðið að tjá sig hvorki af eða á um mál­ið.

Auglýsing

Páll Bene­dikts­son, upp­lýs­inga­full­trúi slita­bús Lands­bank­ans, segir það ekki geta upp­lýst um greiðslur ein­stakra við­skipta­vina. Það eigi einnig við um end­ur­greiðslur á styrkj­um. Því geti búið hvorki sagt til um hvort né hversu mikið Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi greitt til baka af styrkjum sín­um.

Var búinn að greiða 18 millj­ónir króna árið 2013



Styrkirnir voru veittir í lok árs 2006 og námu sam­tals 56 millj­ónum króna. Vorið 2009 sagði Bjarni Bene­dikts­son, þá nýkjör­inn for­maður flokks­ins, að styrkirnir yrðu end­ur­greidd­ir.

Á lands­fundi flokks­ins 2013 kom fram í máli Jón­mundar Guð­mars­son, þáver­andi fram­kvæmda­stjóra Sjálf­stæð­is­flokks­ins, að flokk­ur­inn hefði þegar end­ur­greitt um 18 millj­ónir króna. Sam­kvæmt því stóðu þá 38 millj­ónir króna eftir árið 2013.

Rík­is­end­ur­skoðun birtir árlega útdrátt úr árs­reikn­ingi stjórn­mála­flokka. Síð­asti birti útdráttur fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn er fyrir árið 2013. Þar kemur fram að flokk­ur­inn tap­aði 127 millj­ónum króna á því ári, en vert er að taka fram að kosið var til Alþingis 2013 og gjöld því hærri en ella. Skuldir flokks­ins námu 386 millj­ónum króna í lok þess árs en eigið fé var 417 millj­ónir króna. Það lækk­aði úr 543 millj­ónum króna árið áður.

Engar upp­lýs­ingar um end­ur­greiðslur á styrkj­unum til FL Group og Lands­bank­ans er að finna í útdrætt­in­um.

Ýmis fjár­mála- og fjár­fest­inga­fyr­ir­tæki styrktu stjórn­mála­flokka á árunum fyrir hrun um háar fjár­hæð­ir. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er eini flokk­ur­inn sem ætlar sér að end­ur­greiða þá styrki.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent