Stjórnarandstaðan sendir ESB bréf og segir ríkisstjórnina ekki hafa umboð

esbmynd.jpg
Auglýsing

Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir á Alþingi hafa sent sam­eig­in­legt bréf til stofn­ana Evr­ópu­sam­bands­ins vegna ákvörð­unar rík­is­stjórn­ar­innar um að slíta við­ræðum um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu til fjöl­miðla.

„Á fundi for­manna þing­flokka í morgun ósk­uðu for­menn þing­flokka stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna eftir því að for­seti Alþingis kæmi þeim skýru skila­boðum á fram­færi við Evr­ópu­sam­bandið að bréf rík­is­stjórn­ar­innar frá í gær ætti ekki stoð í ákvörð­unum Alþingis og að ályktun Alþingis frá árinu 2009 væri enn í fullu gildi. Því var hafn­að. For­mönnum stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ana er því nauð­ugur einn kostur að senda með­fylgj­andi bréf til stofn­ana Evr­ópu­sam­bands­ins til að koma skýr­ingum á fram­færi og upp­lýsa sam­bandið um að rík­is­stjórnin hafi hvorki umboð þings né þjóðar til að breyta stöðu Íslands gagn­vart Evr­ópu­sam­band­inu með þeim hætti sem til­kynnt er í bréfi utan­rík­is­ráð­herra til Evr­ópu­sam­bands­ins,“ segir í til­kynn­ing­unni til fjöl­miðla.

Bréfið er sent til Martin Schulz, for­seta Evr­ópu­þings­ins, Johannes Hahn, fram­kvæmda­stjóra nágranna­stefnu og aðild­ar­við­ræðna hjá fram­kvæmda­stjórn ESB, og Ed­gars Rin­kevics, utan­rík­is­ráð­herra Lett­lands, sem fer með for­mennsku nú um stund­ir. Það er und­ir­ritað af for­mönnum allra fjög­urra stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna á Alþingi, Árna Páli Árna­syni, Guð­mundi Stein­gríms­syni, Katrínu Jak­obs­dóttur og Birgittu Jóns­dótt­ur.

Auglýsing

Í bréf­inu segir að stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir hafi mis­mun­andi skoð­anir á aðild að ESB. Flokk­arnir séu hins vegar sam­mála um að bréfið sem Gunnar Bragi Sveins­son sendi geti ekki breytt stöðu Íslands gagn­vart sam­band­inu. Það sé ein­göngu á valdi Alþingis að ákveða að breyta stöðu rík­is­ins.

Bréf - ESB - Hahn - skannað

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None