Viðbótarlífeyrir fer að hluta til í vexti, ekki inn á höfuðstól húsnæðislána

IMG-0231-1.jpg
Auglýsing

Hluti þeirra sem völdu að nota við­bót­ar­líf­eyr­is­sjóðs­greiðslur sínar til að greiða niður höf­uð­stól hús­næð­is­lána sinna í „Leið­rétt­ing­unni“ svoköll­uðu hafa orðið fyr­ir­ því að greiðslan þeirra hefur farið í að greiða fjár­mála­stofn­unum vexti en ekki til að greiða niður höf­uð­stól­inn. Þetta hefur gerst vegna þess að greiðslan frá líf­eyr­is­sjóði við­kom­andi barst ekki sama dag og gjald­dagi hús­næð­is­láns­ins var.

Því fer hluti af við­bót­ar­líf­eyr­is­sparn­aði þessa fólks í að greiða kostnað þessa hóps. Með öðrum orðum þá nýt­ist þessi hluti við­bót­ar­líf­eyr­is­sparn­að­ar, sem atvinnu­rek­endur og fólkið sjálft leggur til hlið­ar, engum nema þeim fjár­mála­stofn­un­unum sem halda á hús­næð­is­lánum þessa fólks.

Kann­ast við vanda­málið og búið að bregð­ast við



Kjarn­anum barst ábend­ing frá ein­stak­lingi sem hafði kom­ist að því að hluti við­bót­ar­líf­eyr­is­sparn­aðar hans væri að fara í greiðslu á vöxtum vegna þess að greiðsla líf­eyr­is­sjóðs­ins til við­kom­andi fjár­mála­fyr­ir­tækis barst eftir gjald­daga láns­ins. Þá voru vextir næsta gjald­daga á eftir greidd­ir.

Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri. Skúli Egg­ert Þórð­ar­son rík­is­skatt­stjóri.

Auglýsing

Skúli Egg­ert Þórð­ar­son rík­is­skatt­stjóri seg­ist kann­ast við þetta vanda­mál, en emb­ætti hans sér um fram­kvæmd „Leið­rétt­ing­ar­inn­ar“. „Vanda­málið var bundið við ein­stakar lána­stofn­an­ir, einkum Íbúða­lána­sjóð, sem ekki er vitað til ann­ars en að hafi nú þegar brugð­ist við og lag­fært þá óná­kvæmni sem þarna var.“ Ástæða þess að þetta gerð­ist hafi verið sú að lána­kerfi hafi verið mis­sveigj­an­leg til að stýra greiðslu inn á höf­uð­stól láns. Vert er eða taka fram að Íbúða­lána­sjóður er í eigu og á ábyrgð rík­is­ins. Vext­irnir sem hann fær greitt eru því ágóði fyrir rík­ið, eða dregur hið minnsta úr því fjár­magni sem ríkið neyð­ist tilað leggja Íbúða­lána­sjóði til.

Skúli Egg­ert segir að málið verði rætt við verk­efn­is­stjórn „Leið­rétt­ing­ar­inn­ar“ síðar í þess­ari viku og þá undir þeim for­merkjum að komið hafi í ljós vissir ágallar sem nú þegar hafa verið lag­færð­ir.

Stærsta mál rík­is­stjórn­ar­innar



„Leið­rétt­ing­in“ er stærsta málið sem sitj­andi rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks hefur komið í gegn. Í henni felst að rík­is­sjóður greiðir hluta þeirra sem voru með verð­tryggð hús­næð­is­lán á árunum 2008 og 2009 allt að 80 millj­arða króna í nokk­urs konar miska­bætur fyrir það verð­bólgu­skot sem átti sér stað á tíma­bil­inu. Stjórn­völd hafa enn ekki viljað birta tæm­andi upp­lýs­ingar um hvernig þessi upp­hæð skipt­ist á tekju-, eigna- eða ald­urs­hópa en von er á skýrslu um málið á þessu þingi.

­Stjórn­völd hafa enn ekki viljað birta tæm­andi upp­lýs­ingar um hvernig þessi upp­hæð skipt­ist á tekju-, eigna- eða ald­urs­hópa en von er á skýrslu um málið á þessu þingi.

Hin hluti „Leið­rétt­ing­ar­inn­ar“ snérist um að heim­ila fólki að greiða við­bót­ar­líf­eyr­is­sparnað sinn í þrjú ár inn á höf­uð­stól hús­næð­is­lána. Hagur fólks við að gera þetta felst í því að greiðsl­urnar eru skatt­frjáls­ar, en af öðrum við­bót­ar­líf­eyri þarf að greiða skatt við útgreiðslu. Ríki er því að gefa eftir um 20 millj­arða króna í skatt­greiðslur vegna þessa.

Útreikn­ingar sýndu að með þessum hætti ættu Íslend­ingar að geta notað allt að 70 millj­arða króna af við­bót­ar­líf­eyr­is­sparn­aði sínum í að greiða niður höf­uð­stól hús­næð­is­lána sinna. Nú er ljóst að hluti þeirrar upp­hæðar hefur runnið beint til íslenskra fjár­mála­fyr­ir­tækja vegna­vaxta sem urðu til án þess að fólkið sem greiðir þá hafi dregið að greiða nokkur skap­aðan hlut. Það skráði sig ein­fald­lega í þennan hluta „Leið­rétt­ing­ar­inn­ar“ á heima­síð­unni leidrett­ing.is og byrj­aði að greiða. Í því umsókn­ar­ferli er aldrei til­greint að mögu­lega muni hluti við­bót­ar­sparn­að­ar­ins fara í að greiða vexti.

Við­bót klukkan 13:03

Skúli Egg­ert Þórð­ar­son rík­is­skatt­stjóri vill koma á fram­færi að drátt­ar­vextir seú ekki greiddir með inn­borgun við­bót­ar­líf­eyr­is­sparn­aðar nema að lánið sé komið í van­skil. Vextir vegna næsta gjald­daga voru greiddir í þeim málum sem fjallað er um. Frétt­inni hefur verið breytt í takt við þessar upp­lýs­ing­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None