Páll Jóhann greiðir ekki atkvæði um kvótasetningu á makríl

mynd-2.jpg
Auglýsing

Páll Jóhann Páls­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, hyggst ekki greiða atkvæði um frum­varp sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra um kvóta­setn­ingu á mak­ríl vegna tengsla sinna við útgerð­ar­fé­lagið Vísi í Grinda­vík, þar sem eig­in­kona hans er meðal hlut­hafa.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Páli Jóhanni, sem hann sendi frá sér nú rétt í þessu.

Til­kynn­ingin fer hér eftir í heild sinni.

Auglýsing

„Vegna umræðu um fyr­ir­hug­aða kvóta­setn­ingu á mak­ríl vil ég koma eft­ir­far­andi á fram­færi:

 

Á næstu vikum verða atkvæði greidd á Alþingi um frum­varp sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra um kvóta­setn­ingu á mak­ríl. Vegna tengsla minna við fyr­ir­tæki í sjáv­ar­út­vegi mun ég sitja hjá við afgreiðslu máls­ins, líkt og ég hef gert við afgreiðslu ann­arra mála af sama toga.

 

Í störfum mínum á Alþingi hef ég ekki dregið fjöður yfir þá stað­reynd, að tengsl mín við sjáv­ar­út­veg­inn eru tölu­verð. Ég hef verið til sjós, starfað við sjáv­ar­út­veg í landi og á 5% hlut í útgerð­ar­fé­lag­inu Vísi hf., eins og fram kemur í hags­muna­skrán­ingu á vef Alþing­is. Því til við­bótar er eig­in­kona mín eig­andi og fram­kvæmda­stjóri smá­báta­út­gerð­ar­innar Mar­vers ehf.  Þau tengsl eru ekki til­greind í hags­muna­skrán­ingu, enda er í henni ekki gert ráð fyrir skrán­ingu á eigum maka þing­manna né gef­inn mögu­leiki á að bæta við auka athuga­semdum í þeirri skrán­ingu.

 

Vegna ofan­greindra tengsla hef ég ekki greitt atkvæði í atkvæða­greiðslum þings­ins um kvóta­mál, veiði­leyfa- eða veiði­gjalda­mál.  Hins vegar hef ég áskilið mér rétt til að taka þátt í umræðu um þessa grund­vall­arat­vinnu­grein þjóð­ar­inn­ar, enda er mik­il­vægt að sjón­ar­mið þeirra sem þekkja vel til grein­ar­innar heyr­ist.

 

Það er mik­il­vægt að á Alþingi komi fram ólík sjón­ar­mið um mik­il­væg mál, enda vilja allir þing­menn vinna þjóð­inni gagn.  Sjálfur hef ég lýst yfir efa­semdum um ágæti þess að hlut­deild­ar­setja hand­færa­veiðar smá­báta á mak­ríl (sjá t.d. hér).  Sú skoðun mín breytir ekki þeirri stað­reynd, að ég mun sitja hjá þegar atkvæði verða greidd um mál­ið.“

Virð­ing­ar­fyllst,

Páll Jóhann Páls­son

alþing­is­maður

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None