Skuldaleiðréttingin eykur verðbólgu og dregur úr ávinningi hækkunar íbúðaverðs

9954243815_70aeb44ba4_z-1.jpg
Auglýsing

Hröð hækkun á kaup­mætti ráð­stöf­un­ar­tekna heim­il­anna og áhrif aðgerða rík­is­stjórn­ar­innar til lækk­unar á verð­tryggðum lánum heim­ila, hin svo­nefnda Leið­rétt­ing, eru und­ir­liggj­andi ástæður þess að hækkun íbúða­verðs hefur verið hröð und­an­far­ið. Alls hefur verð íbúða hækkað um 9,4 pró­sent síð­ustu tólf mán­uði að nafn­virði á land­inu öllu og um 7,7 pró­sent að raun­verði. Þessi hækkun hefur einnig valdið auk­inn­i verð­bólgu og þar með „dregið úr þeim ávinn­ingi mælt í auknu eigin fé heim­il­anna sem hús­næð­is­verð­hækk­unin hefur skil­að.“ Þetta kemur fram í morg­un­korni Grein­ingar Íslands­banka í dag.

Eykur verð­bólgu og rýrir ávinn­ing



Að­gerðir íslenskra stjórn­valda um að lækka hús­næð­is­skuldir hluta Íslend­inga um 80 millj­arða króna eru því að kynda undir hækkun íbúða­verðs. Sú hækkun kemur fram í vísi­tölu neyslu­verðs sem mælir verð­bólgu í land­inu. Sú neyslu­vísi­tala hækk­aði til að mynda um 1,02 pró­sent í febr­úar síð­ast­liðn­um,  sem var skarpasta hækkun hennar í langan tíma.

Grein­ing Íslands­banka segir ljóst að hækkun á verði íbúa hafi verið stór áhrifa­þáttur í verð­bólgu­þró­un­inni und­an­far­ið. „Skýrir hækkun hús­næð­is­verðs þannig alla verð­bólg­una sem nú er og gott bet­ur, enda hefur verð­lag lækkað um 0,1 pró­sent síð­ustu 12 mán­uði skv. vísi­tölu neyslu­verðs án hús­næð­is. Hefur þetta dregið úr þeim þeim ávinn­ingi mælt í auknu eigin fé heim­il­anna sem hús­næð­is­verð­hækk­unin hefur skil­að. Reiknum við með að hækkun hús­næð­is­verðs verði áfram stór þáttur í verð­bólgu­þró­un­innni á spá­tíma­bil­inu og spáum við því að  vístala neyslu­verðs hækka um 0,1 pró­sent á milli mán­aða að jafn­aði á kom­andi mán­uðum vegna þess.“

Áfram miklar hækk­anir



Grein­ingin spáir að nafn­verðs­hækkun á hús­næði á land­inu öllu verði 15,5 pró­sent til loka árs 2017, eða 7,7 pró­sent raun­hækk­un. „Helstu rök fyrir áfram­hald­andi hækkun íbúð­ar­hús­næðis er dágóð hækkun á kaup­mætti ráð­stöf­un­ar­tekna sem kemur til m.a. vegna þess að laun munu á spá­tíma­bil­inu hækka nokkuð umfram verð­bólgu skv. okkar spá og heild­ar­vinnu­stundum fjölga. Áhrifa aðgerða rík­is­stjórn­ar­innar til lækk­unar verð­tryggðra skulda heim­il­anna mun á spá­tíma­bil­inu gæta mest á þessu ári.  Við spáum því að það muni draga úr nafn- og raun­verðs­hækk­unum eftir því sem líður á spá­tíma­bilið sam­hliða því að þessi áhrif skulda­lækk­un­ar­innar fjara út og heldur dregur úr vexti kaup­máttar ráð­stöf­un­ar­tekna.“

Íbúða­verð hefur raunar hækkað nán­ast stans­laust frá því að það náði botni í upp­hafi árs 2010. Síðan þá hefur nafn­verð íbúða hækkað um 39,1 pró­sent og raun­verð um 18,7 pró­sent. „Er þetta umtals­verð verð­hækkun sem hefur bætt hag þeirra heim­ila sem eiga sitt eigið hús­næði, en það eru all­flest íslensk heim­ili eða 73 pró­sent allra heimia á árinu 2013[...]Eru 55 pró­sent heim­il­anna með hús­næð­is­lán, og í flestum til­fellum um verð­tryggt lán að ræða. Eig­in­fjár­staða heim­il­anna hefur í þessum til­fellum auk­ist umtals­vert, en verð­bólgan hefur  verið sér­stak­lega lág und­an­farið og mælist nú 1,6 pró­sent.“

Auglýsing

Engin bóla en aðstæður fyrir hana til staðar



Það ætti ekki að koma neinum á óvart að íbúða­verð fjöl­býlis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur hækkað hraðar en verð sér­býla þar og verð íbúða ann­ars­staðar á land­inu. Grein­ing Íslands­banka telur þó að þær miklu hækk­anir sem átt hafi sér stað séu studdar efna­hags­legum rökum og því sé ekki um verð­bólu að ræða á íbúða­mark­aði „þó svo að aðstæður fyrir slíka bólu séu til staðar þar sem fjár­fest­inga­kostir eru tak­mark­aðri en ella innan gjald­eyr­is­hafta.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None