Ferðamönnum í apríl fjölgaði um rúmlega 20 prósent á milli ára

kjarninn_ferdamenn.jpg
Auglýsing

Tæp­lega 72 þús­und erlendir ferða­menn fóru frá land­inu í apríl síð­ast­liðnum sam­kvæmt taln­ingum Ferða­mála­stofu í Flug­stöð Leifs Eiríks­sonar eða 12.400 fleiri en í apríl á síð­asta ári. Aukn­ingin nemur 20,9 pró­sentum á milli ára. Þetta kemur fram í frétt á vef­síðu Ferða­mála­stofu.

Þar kemur jafn­framt fram að fjölgun ferða­manna á Íslandi hafi verið við­var­andi það sem af er ári, en þeim fjölg­aði um 34,5 pró­sent í jan­ú­ar, 34,4 pró­sent í febr­úar og 26,8 pró­sent í mars.

Þróun á fjölda ferðamanna í aprílmánuði frá árinu 2002. Mynd: Ferðamálastofa Þróun á fjölda ferða­manna í apr­íl­mán­uði frá árinu 2002. Mynd: Ferða­mála­stof­a

Auglýsing

Tveir af hverjum fimm frá Bret­landi og Banda­ríkj­unum



Um þrír af hverjum fjórum ferða­mönnum í apríl árið 2015 voru af tíu þjóð­ern­um. Bretar voru fjöl­menn­astir eða 26,4 pró­sent af heild­ar­fjölda en næstir komu Banda­ríkja­menn eða 15,2 pró­sent af heild­ar­fjölda.

Af ein­staka þjóð­ernum fjölg­aði Bretum og Banda­ríkja­mönnum mest milli ára en 3.269 fleiri Bretar komu í apríl í ár en í sama mán­uði í fyrra og 3.179 fleiri Banda­ríkja­menn. Bretar og Banda­ríkja­menn báru uppi ríf­lega helm­ings aukn­ingu ferða­manna í apríl milli ára, að því er fram kemur í áður­nefndri frétt frá Ferða­mála­stofu.

Það sem af er ári hafa 288.700 erlendir ferða­menn farið frá land­inu eða 64.200 fleiri en á sama tíma­bili í fyrra. Um er að ræða 28,6 pró­senta aukn­ingu milli ára. Þá fóru tæp­lega 36 þús­und Íslend­ingar utan í apríl síð­ast­liðnum eða álíka margir og í apríl 2014.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None