Kaupþingsmál: Saksóknari segir Sigurð hafa játað lögbrot

14394583361_f669b0db5b_z.jpg
Auglýsing

Björn Þor­valds­son sak­sókn­ari segir Sig­urð Ein­ars­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­mann Kaup­þings, hafa játað lög­brot þegar hann tjáði sig í dóm­sal um ákæru­efnin í mark­aðs­mis­notk­un­ar­mál­inu, þar sem hann er ákærður ásamt átta öðrum fyrr­ver­andi stjórn­endum og starfs­mönnum Kaup­þings. Þetta kemur fram í frétt mbl.is af mála­ferlun­um, en rit­stjórn mbl.is hefur setið öll rétt­ar­höldin og flutt fréttir af þeim dag­lega. Mál­flutn­ingur hefur farið fram í dag, þar sem Björn hefur flutt mál sitt, en síðan taka verj­endur ákærðu við einn af öðr­um.

Í frétt mbl.is af þessu, segir að sak­sókn­ari hafi vís­að til þess að í svör­um sín­um hefði Sig­­urður sagt að Kaup­þing hefði „tryggt að fólk gæti alltaf selt bréf sín í Kaup­þingi og með því hefði verð­mæti fyr­ir­tæk­is­ins verið auk­ið, en auk­inn selj­an­­leiki þýði jafn­­an hærra verð bréfa“ eins og segir í frétt­inni.

Sak­­sókn­­ari sagð­ist sam­­mála þess­um orðum Sig­­urð­ar, sam­kvæmt end­ur­sögn mbl.is. „Það auki vita­skuld verð­mæti bank­ans að bjóða alltaf upp á að kaupa bréf þegar sölu­þrýst­ing­ur eykst. Sagði sak­­sókn­­ari slíka hækk­­un þó veita falska eft­ir­­spurn og ekki gefa raun­veru­­lega verð­mat á bréf­un­­um. Sagði hann að með þessu hafi því Sig­­urður verið að játa brot sitt,“ segir í frétt­inni.

Auglýsing

Sak­­sókn­­ari sagði Sig­­urð og Hreiðar Má Sig­­urðs­son, fyrr­ver­andi for­­stjóra bank­ans, hafa verið „full­kom­­lega upp­­lýsta um kaup deild­ar eig­in við­skipta í bréf­um í Kaup­þingi, en meðal ann­­ars hafi skýrsl­ur verið send­ar reglu­­lega til þeirra“ eins og segir í frétt­irn­ni.

Ákær­an í mál­inu skipt­ist upp í tvær hlið­ar, kaup- og sölu­hlið. Á kaup­hlið­inni er bank­inn sagður hafa keypt hluta­bréf í sjálf­um sér í mikl­um mæli og kem­ur fram í ákær­unni að með því hafi verði bank­ans verið haldið uppi, eða þess gætt að það lækk­aði ekki of hratt. Á sölu­hlið­inni er ákært fyr­ir að bank­inn hafi losað sig við sömu bréf með því að lána fé­lög­um með lítið eða nei­­kvætt eigið fé fyr­ir kaup­um á hluta­bréf­um í bank­an­um, þar sem eina veðið voru hluta­bréf­in sjálf.

Ákærðu í mál­inu eru auk Sig­urð­ar, Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, Ingólfur Helga­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings á Íslandi, Bjarki Diego, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri útlána, Einar Pálmi Sig­munds­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri eigin við­skipta Kaup­þings, Pétur Freyr Guð­mars­son, fyrr­ver­andi starfs­maður eigin við­skipta, Birnir Sær Björns­son, fyrr­ver­andi starfs­maður eigin við­skipta, og Björk Þór­ar­ins­dótt­ir, sem sæti átti í lána­nefnd Kaup­þings.

Sig­urð­ur, Hreiðar og Magn­ús, taka nú út refs­ingu sína sem þeir fengu í Al Thani mál­inu svo­kall­aða, en þeir voru dæmdir fjög­urra til fimm og hálfs árs fang­elsi fyrir umboðs­svik og mark­aðs­mis­notk­un.

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None