Kúabændur: Tillögurnar „kollvarpa“ núverandi fyrirkomulagi

Two_cattle_near_Wantastiquet_Mountain.jpg
Auglýsing

Lands­sam­band kúa­bænda og Bænda­sam­tök Íslands segja að raun­verð á mjólk­ur­vörum hafi lækkað á ára­bil­inu frá 2003 til 2013, og því veki það athygli, að „þrátt fyrir þennan árang­ur“ þá séu í skýrslu Hag­fræði­stofn­unar Íslands gerðar „til­lögur að breyt­ingum sem koll­varpa núver­andi fyr­ir­komu­lagi mjólk­ur­fram­leiðslu.“

Í til­kynn­ingu frá Lands­sam­bandi kúa­bænda og Bænda­sam­tök­unum segir að verð á mjólk­ur­vörum hafi verið hag­felld neyt­end­um, og því hefði átt að vera gert hærra undir höfði í skýrslu Hag­fræði­stofn­un­ar. Í skýrsl­unni segir meðal ann­ars að ríkið og neyt­endur hafi greitt átta millj­arða á ári með mjólk­ur­fram­leiðslu.

„Í skýrsl­unni segir að raun­verð á nýmjólk, rjóma, skyri, jógúrt, smjöri og osti hafi verið lægra árið 2013 en 2003. Kemur fram að þó svo verð á mjólk­ur­vörum fari hækk­andi hafi það ekki haldið í við þróun á vísi­tölu neyslu­verðs. Einnig að 70% mat­vara á þessu tíma­bili, 2003 til 2013, hækk­aði meira en sú mjólk­ur­af­urð sem hækk­aði mest. Aðeins 10% mat­vara hækk­uðu minna í verði. Athygli vekur að þrátt fyrir þennan árangur eru í skýrsl­unni gerðar til­lögur að breyt­ingum sem koll­varpa núver­andi fyr­ir­komu­lagi mjólk­ur­fram­leiðslu,“ segir til­kynn­ing­unni.

Auglýsing

Í skýrslu Hag­fræði­stofn­unar segir að hag­kvæmni hafi aukist, og vilja kúa­bændur að horf sé meira til þess­ara þátta. „Hag­kvæmni hefur auk­ist mikið í rekstri íslenskra kúa­búa und­an­farin ár. Með­al­nyt á hverja íslenska kú jókst um nálægt 45% frá 1994-2012, en áður hafði hún lítið auk­ist í ára­tug­i,“ segir í skýrsl­unni og vitna kúa­bændur sér­stak­lega til þess að hag­ræð­ingin hafi skilað sér til neyt­enda. „Á móti kemur fram í skýrsl­unni að auka þurfi mögu­leika til nýliðun í grein­inni og auka skil­virkni greiðslna úr rík­is­sjóði þannig að þær skili sér betur til bænda. Þessi atriði þarf að taka til nán­ari skoð­unar sem og ýmis önnur atriði skýrsl­unnar í kom­andi búvöru­samn­ing­um,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None