Hlutabréfakrísa í Kína: Eftir 150 prósent hækkun þá hríðfellur hlutabréfaverð

stock.jpg
Auglýsing

Örfáum mín­útum eftir opnun hluta­bréfa­mark­aða í Kína í dag tók verð að hríð­falla og lækk­uðu helstu hluta­bréfa­vísi­tölur mark­að­ar­ins um allt að átta pró­sent. Á innan við tíu mín­útum höfðu hluta­bréf í fleiri en þús­und fyr­ir­tækjum lækkað um meira en tíu pró­sent og voru við­skipti með bréfin stöðv­uð, sam­kvæmt reglum kín­versku kaup­hall­ar­innar um sjálf­virka stöðvun við­skipta við verð­fall. Um 1.400 fyr­ir­tæki, sem telja ríf­lega helm­ing allra fyr­ir­tækja á kín­verska mark­að­in­um, ósk­uðu eftir frestun frek­ari við­skipta til þess að koma í veg fyrir verð­hrun á mark­aðsvirði sínu. Við lokun mark­aða höfðu vísi­tölur lækkað um fimm til sjö pró­sent.

Mikið hefur verið um að vera á kín­verskum hluta­bréfa­mark­aði und­an­farnar vik­ur og verð verið í frjálsu falli, mest á allra síð­ustu dög­um. Kín­versk stjórn­völd hafa á síð­ustu vikum reynt hvað þau geta til þess að ýta undir hluta­bréfa­verð, meðal ann­ars með lækkun stýri­vaxta, reglu­breyt­ingum sem eiga að draga úr hvata til þess að selja hluta­bréf og nú síð­ast beinum kaupum á hluta­bréf­um. Aðgerð­irnar hafa dugað skammt og sölu­þrýst­ingur á mark­að­inum hefur verið gríð­ar­leg­ur. Kín­verskir eft­ir­lits­að­ilar segja skelf­ing­ar­á­stand fjár­festa órök­rétt og róa nú öllum árum að stöð­ug­leika á hluta­bréfa­mark­að­in­um.

Auglýsing


Í síð­asta mán­uði stóð verð hluta­bréfa á mark­að­inum í Sjang­haí í hæstu hæðum og hafði ekki verið hærra í sjö ár. Hluta­bréf höfðu hækkað um rúm­lega 150 pró­sent á síð­ustu tólf mán­uðum en hafa nú fallið um 30 pró­sent á síð­ustu þremur vik­um. Þar af nemur lækk­unin 12 pró­sentum á síð­ustu viku. Verð­lækkun upp á þrjá­tíu pró­sent jafn­gildir öllu fram­leiðslu­virði Bret­lands á síð­asta ári.



Í ljósi stærðar kín­verska hluta­bréfa­mark­að­ar­ins og mögu­legra áhrifa á aðra mark­aði, ekki síst í Asíu, þá hafa erlendir fjöl­miðlar haldið því fram að kín­verska hluta­bréfa­krísan sé jafn­vel alvar­legri en gríska efna­hag­skrís­an. Í umfjöllun The Tel­egraph segir að sumir vilji þegar kalla ástandið „Hið kín­verska 1929“ og vísa þar til sögu­legs verð­falls á hluta­bréfa­mörk­uðum það árs og upp­haf Krepp­unnar miklu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None