Landsbankastjóri: Nýjar höfuðstöðvar eru ekki bruðl

stein..t.jpg
Auglýsing

Stein­þór Páls­son, banka­stjóri Lands­bank­ans, segir það hag­kvæmt fyrir bank­ann að byggja nýjar höf­uð­stöðvar við hlið Hörpu við Aust­ur­höfn og hafnar því að bygg­ingin sé bruðl. Þetta hefur frétta­stofa RÚV eftir Stein­þóri.

„Við viljum stað­setja bank­ann þar sem verslun og við­skipti eiga sér stað fyrst og fremst í Reykja­vík, á svæð­inu frá miðbæ að Kirkju­sandi og þar í kring. Við höfum verið að skoða kost­ina og nið­ur­staða liggur fyr­ir. Við fengum þessa lóð við Aust­ur­höfn á góðu verði. Búið er að taka grunn­inn og jarð­vinnu er að mestu lok­ið. Bygg­inga­gjöld eru inni­fal­in. Við skoð­uðum aðra kosti og nið­ur­staðan af þeirri skoðun er að þetta væri hag­kvæmara. Þar kemur til lóð­ar­verð. Það er ekki svo mik­ill munur á lóð­ar­verði í Reykja­vík, hvar maður setur sig nið­ur. En kannski er aðal­at­riðið það að með því byggja á þessum stað, þá getur bank­inn sparað í bygg­inga­kostnað í bíla­stæð­u­m,“ er haft eftir Stein­þóri.

Hann segir einnig að aðrir staðir hafi verið teknir til skoð­un­ar, meðal ann­ars í Borg­ar­túni og nágrenni. Bygg­ing við Hörpu hafi reynst ódýr­ari. „Síðan hafa okkur verið boðnir aðrir kost­ir, en við höfum verið að byggja á tölum frá verk­fræði­stofu utan úr bæ hvað það kostar að byggja. Við viljum halda okkur við raun­hæfar töl­ur. En þetta var bara mjög hag­kvæmt já.“

Auglýsing

Stað­setn­ingin harð­lega gagn­rýnd



Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, alþing­is­maður og vara­for­maður fjár­laga­nefnd­ar, sagði í fréttum RÚV um helg­ina að illa væri farið með pen­inga skatt­greið­enda með því að byggja höf­uð­stöðvar Lands­bank­ans á dýrasta stað á land­inu. Elín Hir­st, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, tal­aði á svip­uðum nótum um helg­ina og sagði nýjar höf­uð­stöðvar bank­ans móðgun. Lands­bank­inn er að 97,9 pró­senta hlut í eigu Rík­is­sjóðs Íslands.

Nýbygg­ingin mun hýsa alla mið­læga starf­semi bank­ans og kostn­aður við bygg­ingu húss­ins með lóð­ar­kaupum á að kosta átta millj­arða króna. Nýbygg­ingin verður 14.500 fer­metrar að stærð auk þess sem það verður um tvö þús­und fer­metra kjall­ari fyrir tækni­rými og fleira. Þá verður bíla­kjall­ari undir hús­inu sem nýt­ist öllu svæð­inu við Aust­ur­höfn.

Í til­kynn­ingu frá bank­anum á fimmtu­dag í síð­ustu viku sagði: „Lands­bank­inn hefur með aðstoð sér­fræð­inga skoðað margar lóðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á síð­ustu árum og reynd­ist lóðin í Aust­ur­höfn besti og hag­kvæm­asti kost­ur­inn að mati bank­ans. Stærð lóð­ar­innar er hentug miðað við þarfir bank­ans og verð hennar í útboði var hag­stætt, meðal ann­ars þar sem jarð­vinnu er að mestu lokið og að gatna­gerða­gjöld voru inni­fal­in. Að auki má nefna góðar teng­ingar við almenn­ings­sam­göngur og mögu­leika á samnýt­ingu bíla­stæða á svæð­inu sem sparar umtals­verðar fjár­hæðir í bygg­ing­ar­kostn­aði. Með því að byggja á þessum stað verður Lands­bank­inn áfram með starf­semi í mið­borg Reykja­víkur og styður við öfl­uga og fjöl­breytta atvinnu­starf­semi í mið­bæn­um.“

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None