Norður-Kórea vill ekki semja um kjarnorkuáætlunina

kim_jong_un.jpg
Auglýsing

Stjórn­völd í Norð­ur­-Kóreu hafa engan áhuga á að hefja sam­ræður við alþjóða­sam­fé­lagið um kjarn­orku­á­ætlun sína, líkt og Íran hefur gert. Liður í því yrði að alþýðu­lýð­veldið á Kóreu­skaga gæfi upp hversu öfl­ugt kjarn­orku­víg­i það hef­ur.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá utan­rík­is­ráðu­neyti Norð­ur­-Kóreu í dag. Þar segir einnig að kjarn­orku­á­ætl­unin sé mik­il­vægt mót­vægi gegn utan­rík­i­s­tefnu Banda­ríkj­anna, sem stjórn­völd í Norð­ur­-Kóreu telja fjand­sam­lega. Frá þessu er meðal ann­ars greint á vef Reuters.

Banda­rík­in, Kína, Rúss­land, Bret­land, Þýska­land og Frakk­land, auk Evr­ópu­sam­bands­ins, gerðu á dög­unum sam­komu­lag við Íran um kjarn­orku, sem á að koma í veg fyrir að Íranir geti þróað kjarn­orku­vopn. Í skiptum fyrir það verður efna­hags­þving­unum gegn Íran létt á næstu árum.

Auglýsing

„Það er ekki rök­rétt að bera saman aðstæður okkar og íranska kjarn­orku­sam­komu­lagið því við þurfum að búa við stans­lausar hót­anir og fjand­sam­legar aðgerðir Banda­ríkja­hers, meðal ann­ars risa­vaxnar her­æf­ingar og yfir­vof­andi kjarn­orku­árás­ir,“ segir í yfir­lýs­ingu Norð­ur­-Kóreu sem var flutt af rík­is­miðl­um, en eignuð tals­manni utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Jafn­framt segir í yfir­lýs­ing­unni: „Við höfum engan áhuga á að frysta eða gefa kjarn­orku­sprengj­urnar okkar ein­hliða.“ Þá full­yrða stjórn­völd í Norð­ur­-Kóreu að þau séu kjarn­orku­veldi og að „kjarn­orku­veldi fylgja sínum eigin hags­mun­um“.

Óvissa um getu Norð­ur­-Kóreu



FILE NORTH KOREA MISSILE LAUNCH Norð­ur­-kóreskt flug­skeyti sent á loft í til­rauna­skyn­i.

Síðan 2003 hefur Norð­ur­-Kórea ekki verið hluti af sam­komu­lagi alþjóða­sam­fé­lags­ins um að fjölga ekki kjarn­orku­vopnum í heim­in­um. Árið 2009 full­yrtu stjórn­völd þar að þeim hafi tek­ist að þróa og fram­leiða kjarn­orku­vopn. Alþjóða­kjarn­orku­mála­stofn­unin og for­stjóri henn­ar, Mohamed El Bara­dei, töldu sig viss um að það væri rétt.

Talið er að kjarn­orku­vopna­búr Norð­ur­-Kóreu sé lítið og frekar ein­falt. Auk þess er talið að ríkið búi yfir efna­vopnum af ein­hverju tagi. Upp­lýs­ingar um vopna­búr Norð­ur­-Kóreu eru að miklu leyti get­gátur vegna þess hversu lokað landið er og fá tæki­færi eru til að afla upp­lýs­inga. Helstu banda­menn Norð­ur­-Kóreu á alþjóða­vett­vangi eru til að mynda Kín­verjar, sem vilja jafn­framt halda spil­unum þétt að sér hvað varðar hern­að­ar­mátt.

Kraftur þess­ara kjarn­orku­sprengja sem talið er að Norð­ur­-Kórea hafi tek­ist að smíða eru, eftir því hver er spurð­ur, á bil­inu 6-40 kílótonn að stærð. Til sam­an­burðar þá var kraftur stærstu sprengj­unnar sem Banda­ríkin pruf­uðu 15 megatonn.

Flug­skeyti Norð­ur­-Kóreu eru heldur ekki ­full­kom­in, borið saman við vopna­búr Vest­ur­landa. Lengsta ­vega­lengd flug­skeytis sem getur borið kjarn­orku­sprengju er talin vera 4.000 kíló­metr­ar. Það mundi þó duga til að senda kjarn­orku­sprengju á nær alla Síberíu í vestri og norðri, á nyrstu eyjar Indónesíu í suðri og í mitt Kyrra­hafið í austri.

NORTH KOREA DEFENCE

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None