Tchenguiz-dómurinn: Dómarinn tók enga efnislega afstöðu til meintra sakarefna

jrj.jpg
Auglýsing

Í dómi bresks dóm­stóls í máli sem Vincent Tchenguiz hefur höfðað gegn slita­stjórn Kaup­þings, end­ur­skoð­enda­fyr­ir­tæk­inu Grant Thornton í Bret­landi (Gr­ant Thornton UK) og nokkrum starfs­manna þess­arra aðila, sem birtur var í gær, er ekki tekið nein afstaða til efn­is­at­riða máls­ins heldur ein­ungis hvort rétt­ur­inn hafi lög­sögu yfir þeim sem stefnt var. Þetta tók dóm­ari máls­ins sér­stak­lega fram í nið­ur­stöðu sinni, sem var sú að lög­saga dóms­ins nái ekki yfir slitabú Kaup­þings en að hægt sé að fjalla um meintar sak­ar­giftir á hendur Jóhann­esi Rún­ari Jóhanns­syni, for­manni skila­nefndar Kaup­þings, fyrir hon­um.

Kjarn­inn hefur dóm­inn undir höndum og hann er hægt að lesa í heild sinni hér.

Tchenguiz stefndi Grant Thornton í Bret­landi og tveimur starfs­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins, Kaup­þingi og Jóhann­esi Rún­ari fyrir að hafa lagt á ráðin um, haft frum­kvæði að og tekið þátt í, rann­sókn bresku efna­hags­brota­deild­ar­innar Special Fraud Office (SFO), á honum og fyr­ir­tækjum í hans eigu. Þetta hafi leitt til þess að hann var hand­tek­inn á heim­ili sínu í mars 2011 og leitað var á skrif­stofu hans og í fyr­ir­tækjum í hans eigu. Hann vill fá 2,2 millj­arða punda, um 455 millj­arða króna, í bætur vegna þessa.

Auglýsing

Til­gang­ur­inn, að sögn Vincent Tchengu­iz, var sá að nota rann­sókn SFO á meintum glæpum hans til að knýja hann til að semja um mál­efni sinna félaga gagn­vart Kaup­þingi, afla gagna frá SFO, sem emb­ættið gerði upp­tækt í hús­leit hjá Vincent, sem Kaup­þing hefði ella ekki ­getað aflað og síðan mis­nota þau gögn í sam­skiptum sínum við Vincent Tchengu­iz. Hann telur að með þessu hafi Kaup­þing viljað kom­ast yfir eignir hans og fyr­ir­tæki sem honum tengd­ust. Þetta átti að skila Kaup­þingi auknum eignum og Grant Thornton í Bret­landi auknum greiðsl­um, þar sem starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins myndu sjá um skipti á þeim eignum sem teknar yrðu yfir.

Vincent Tchenguiz  vill fá 445 milljarða króna í bætur. Vincent Tchenguiz vill fá 445 millj­arða króna í bæt­ur.

Segir Tchenguiz vera að reyna að tryggja sér óeðli­lega ávinn­ing



Í jan­úar fóru Kaup­þing og Jóhannes Rúnar fram á að öllum kröfum á hendur þeim yrði vísað frá á grund­velli þess að breskir dóm­stólar hefðu ekki lög­sögu yfir þeim.

Dómur und­ir­réttar í Bret­landi komst að þeirri nið­ur­stöðu í gær að lög­saga enskra dóm­stóla næði ekki yfir slitabú Kaup­þings, enda hefðu íslenskir dóm­stólar einir lög­sögu yfir upp­gjöri slita­bús. Dóm­ari máls­ins komst hins vegar að þeirri nið­ur­stöðu að hægt væri að fjalla um sak­ar­giftir á hendur Jóhann­esi Rún­ari fyrir dóm­stólum í Bret­landi. Það kemur hins vegar skýrt fram í nið­ur­stöðu dóm­ar­ans að ekki væri með neinum hætti verið að fjalla um efn­is­at­riði þeirra ásak­ana sem bornar hafi verið á Jóhannes Rúnar í þessum anga máls­ins.

Í til­kynn­ingu sem slita­stjórn Kaup­þings sendi frá sér í gær vegna máls­ins er haft eftir Jóhann­esi Rún­ari að hann telji að kröfur Tchenguiz séu „lítt dulin til­raun Vincent Tchenguiz til að tryggja sjálfum sér og tengdum skuld­urum óeðli­legan ávinn­ing við slit Kaup­þings. Skuld þess­ara aðila við Kaup­þing nemur meira en 143 millj­ónum sterl­ingspunda, sem jafn­gildir um 30 millj­örðum íslenskra króna. Skuldin er tryggð með per­sónu­legri ábyrgð Vincent Tchenguiz að fjár­hæð 10 millj­ónir sterl­ingspunda, sem jafn­gildir meira en 2 millj­örðum króna.“

Jóhannes Rúnar segir ásak­anir Tchenguiz á hendur sér vera fjar­stæðu­kenndar og að þær eigi sér enga stoð í raun­veru­leik­an­um. „Rann­sóknir erlendra lög­reglu­yf­ir­valda og hand­taka Vincent Tchenguiz eru ákvarð­anir sem teknar voru af þeim og á þeirra ábyrgð og hvorki ég né Kaup­þing leit­uð­umst nokkru sinni við að koma slíkum aðgerðum í kring. Ég mun verj­ast öllum kröfum áður nefndra aðila af festu enda kröfur þeirra til­hæfu­lausar með öllu og allar sak­ar­giftir rang­ar. Ef Vincent Tchenguiz og tengdir aðilar kjósa að halda kröfum á hendur mér til streitu er ég þess full­viss að enskir dóm­stólar muni sýkna mig af öllum kröfum sem hafðar eru uppi á hendur mér.“

Auk þess kom fram í til­kynn­ing­unni að slitabú Kaup­þings muni fara fram á að Tchenguiz greiði allan máls­kostnað sem þegar er til fall­inn vegna stefnu á hendur því.

Vincent Tchenguiz horfir aðeins öðru­vísi á mál­ið. Í til­kynn­ingu sem hann sendi frá sér í gær seg­ir: „Rétt­ur­inn hefur fall­ist á að kröfur mínar er varða atburði sem áttu sér stað í Englandi og verða því rétti­lega bornir undir og leiddir til lykta af enskum dóm­stól­um. Jóhannes Jóhanns­son, sem er með­limur í slita­stjórn Kaup­þings, þarf nú að skýra fyrir enskum dóm­stólum hlut­verk hans í því sem kom fyrir mig og fyr­ir­tækin mín og ég hyggst sækj­ast um áfrýj­un­ar­leyfi til að sjá til þess að mál Kaup­þings þurfi að fara fyrir enska dóm­stóla lík­a.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None