Heiða Kristín hætt í Íslandi í dag – Tekur ekki þingsæti að svo stöddu

15594023008-836b8fe03a-z.jpg
Auglýsing

Heiða Kristín Helga­dótt­ir, sem stýrði Umræð­unni, viku­legum þætti um stjórn­mál á Stöð 2, mun ekki starfa áfram hjá fyr­ir­tæk­inu. Hún seg­ist ekki ætla að taka sæti Bjartar Ólafs­dótt­ur, þing­manns Bjartrar fram­tíð­ar, að svö stöddu, en Björt er komin í fæð­ing­ar­or­lof. Heiða Kristín er vara­þing­maður henn­ar.

Aðspurð hvort hún ætli að fara aftur í stjórn­mál segir Heiða Kristín að það þurfi mikið að ger­ast hjá Bjartri fram­tíð, flokk­inum sem hún tók þátt í að stofna, til að henni finn­ist ákjós­an­legt að stíga inn á þann vett­vang á ný. „Mér finnst vandi Bjartrar fram­tíðar vera inni í Bjartri fram­tíð, hann er ekki vandi kjós­enda. Vand­inn er ekki til­kom­inn vegna þess að kjós­endur skilja ekki flokk­inn heldur er hann vandi for­manns­ins [Guð­mundar Stein­gríms­son­ar] og þeirra sem starfa í Bjartri fram­tíð.“

Heiða Kristín segir vanda Bjartrar framtíðar ekki tilkominn vegna skilningsleysi kjósenda á flokknum heldur sé hann  „vandi formannsins [Guðmundar Steingrímssonar] og og þeirra sem starfa í Bjartri framtíð. Heiða Kristín segir vanda Bjartrar fram­tíðar ekki til­kom­inn vegna skiln­ings­leysi kjós­enda á flokknum heldur sé hann „vandi for­manns­ins [Guð­mundar Stein­gríms­son­ar] og og þeirra sem starfa í Bjartri fram­tíð."Heiða Kristín segir að í nán­ustu fram­tíð ætli hún sér að starfa með nýstofn­uðu fyr­ir­tæki, Borg­ar­brag ehf.,  sem eig­in­maður hennar hafi nýverið sett á fót í sam­starfi við aðra og sinna stjórn­ar­setu í góð­gerð­ar­sjóðnum Best Peace Solution.

Auglýsing

Fylgi Bjartrar fram­tíðar hefur hríð­fallið und­an­far­ið. Í könnun sem MMR birti í dag sögð­ust ein­ungis 4,4 pró­sent kjós­enda ætla að kjósa flokk­inn, sem er versta útkoma hans í mæl­ingum MMR á þessum kjör­tíma­bili. Miðað við það fylgi myndi Björt fram­tíð ekki ná inn manni í kom­andi kosn­ing­um.

Áhorf á Ísland í dag hríð­féll



Í byrjun apríl síð­ast­lið­ins var til­kynnt um breyt­ingar á Íslandi í dag. Í þeim fólst meðal ann­ars að þætt­irnir yrðu að að jafn­aði lengri en áður, eða um 40 mín­útur að lengd, og þeir gerðir í meiri sam­vinnu við frétta­stofu 365. Auk þess yrðu sér­stakir þættir um stjórn­mál, efna­hags­mál og við­skipta­líf undir hatti Íslands í dag. Þannig átti þátt­ur­inn alltaf að fjalla um mál­efni líð­andi stundar og tengj­ast betur þjóð­mála­um­ræð­unni en hann hafði gert und­an­farin ár.

Sér­staki þátt­ur­inn um stjórn­mál hét Umræð­an, var einu sinni í viku og honum var stýrt af Heiðu Krist­ínu.

Áhorf á hið nýja Ísland í dag hefur ekki staðið undir vænt­ing­um. Í lok febr­úar var með­al­á­horf á þátt­inn yfir 16 pró­sent og viku áður en breyt­ingar á honum voru inn­leiddar horfðu 14,1 pró­sent á hann. Sam­kvæmt mæl­ingum Gallup horfðu tólf pró­sent á Ísland í dag fyrstu vik­una eftir breyt­ingar og 8,8 pró­sent vik­una eftir það. Í síð­ustu viku júní­mán­aðar var áhorfið sjö pró­sent. Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans verður þátt­ur­inn stokk­aður tölu­vert upp fyrir næsta vet­ur. Á meðal þeirra sem hverfa á braut er Heiða Krist­ín, en samn­ingur hennar við 365 miðla rann út í lok júní.

Í lok febrúar var meðaláhorf á þáttinn yfir 16 prósent og viku áður en breytingar á honum voru innleiddar horfðu 14,1 prósent á hann. Samkvæmt mælingum Gallup horfðu tólf prósent á Ísland í dag fyrstu vikuna eftir breytingar og 8,8 prósent vikuna eftir það. Í síðustu viku júnímánaðar var áhorfið sjö prósent. Í lok febr­úar var með­al­á­horf á þátt­inn yfir 16 pró­sent og viku áður en breyt­ingar á honum voru inn­leiddar horfðu 14,1 pró­sent á hann. Sam­kvæmt mæl­ingum Gallup horfðu tólf pró­sent á Ísland í dag fyrstu vik­una eftir breyt­ingar og 8,8 pró­sent vik­una eftir það. Í síð­ustu viku júní­mán­aðar var áhorfið sjö pró­sent.

Stofn­aði Besta flokk­inn og Bjarta fram­tíð



Heiða Kristín var ráðin til 365 miðla í jan­úar síð­ast­liðnum til að stýra þætt­in­um. Mán­uði áður hafði hún til­kynnt að hún myndi hætta sem stjórn­ar­for­maður Bjartrar fram­tíðar og hætta öllum afskiptum af stjórn­mál­um.

Heiða Kristín kom að stofnun Besta flokks­ins fyrir sveita­stjórn­ar­kosn­ing­arnar 2010 og síðar Bjartrar fram­tíð­ar. Hún var um tíma aðstoð­ar­maður Jóns Gnarr borg­ar­stjóra, fram­kvæmda­stjóri borg­ar­stjórn­ar­flokks Besta flokks­ins, vara­for­maður Besta flokks­ins, stjórn­ar­for­maður og fram­kvæmda­stjóri Bjartrar fram­tíð­ar. Hún bauð sig fram fyrir hönd Bjartrar fram­tíðar í síð­ustu alþing­is­kosn­ingum en náði ekki kjöri. Hún er fyrsti vara­þing­maður flokks­ins í Reykja­vík norð­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None