Íbúðalánasjóður tapaði 808 milljónum - Betra en áætlanir gerðu ráð fyrir

íbúðir.jpg
Auglýsing

Afkoma Íbúða­lána­sjóðs var nei­kvæð um 808 millj­ónir króna á fyrri helm­ingi árs­ins, sam­an­borið við 1.308 millj­óna tap árið á und­an. Þrátt fyrir tap­ið, var nið­ur­staðan betri en áætl­anir gerðu ráð fyr­ir, að því er segir í til­kynn­ingu frá Íbúða­lána­sjóði.

Árs­hluta­reikn­ingur Íbúða­lána­sjóðs fyrir fyrri hluta árs­ins 2015 var stað­festur af stjórn sjóðs­ins í dag. Sam­stæðu­reikn­ingur Íbúða­lána­sjóðs hefur að geyma reikn­inga Íbúða­lána­sjóðs og dótt­ur­fé­lags hans, Leigu­fé­lags­ins Kletts ehf.

Eig­in­fjár­hlut­fall sjóðs­ins hef­ur hækkað í 4,8 pró­sent en var 4,5 pró­sent í upp­hafi árs, að því er segir í til­kynn­ingu. Hlut­fallið er reiknað með sama hætti og eig­in­fjár­hlut­fall fjár­mála­fyr­ir­tækja. Lang­tíma­mark­mið sjóðs­ins er að hlut­fallið sé yfir fimm pró­sent. Eigið fé Íbúða­lána­sjóðs í lok tíma­bils­ins er 17.279 millj­ónir króna en var 18.087 millj­ónir króna í árs­lok 2014.

Auglýsing

Enn fremur segir að vaxta­tekjur hafi numið sam­tals rúm­lega þrjá­tíu millj­örðum krón­um ­sam­an­borið við vaxta­tekjur upp á 27,5 millj­arða á sama tíma í fyrra. ­Rekstr­ar­kostn­aður var 958 millj­ónir króna og lækk­aði um fimmtán pró­sent eða 170 millj­ónir króna sam­an­borið við sama tíma­bil árið 2014. Stöðu­gildum fækk­aði um níu pró­sent á fyrri hluta árs­ins 2015 og voru 100 sam­an­borið við 109 á sama tíma­bili árið 2014.

Önnur atriði úr til­kynn­ingu, vegna afkomu Íbúða­lána­sjóðs á fyrri  helm­ingi árs­ins, má sjá hér að neð­an.

Virð­is­rýrnun útlána nam 19.590 millj­ónum króna í lok júní 2015 og lækk­aði um 1.538 millj­ónir króna frá ára­mót­um. Lækkun virð­is­rýrn­unar teng­ist umtals­verðri minnkun van­skila heim­ila og sterk­ari trygg­inga­stöðu lána­safns­ins vegna hækk­ana á fast­eigna­mark­aði. Í lok tíma­bils­ins voru 95,7% heim­ila sem eru í við­skiptum við Íbúða­lána­sjóð með lán sín í skil­um.

Útlán



Þann 30. júní 2015 voru útlán sjóðs­ins 691 millj­arður króna og höfðu útlán lækkað um 36 millj­arða króna frá ára­mót­um. Þar af eru um 28 millj­arðar vegna úrræða stjórn­valda. Lán­taka sjóðs­ins nam 801 millj­arði króna og lækk­aði um 5,5 millj­arða á tíma­bil­inu. Heild­ar­eignir sjóðs­ins námu 818 millj­örðum króna.

Van­skil heim­ila hafa minnkað veru­lega á milli tíma­bila. Um 4,3% heim­ila voru með þrjá eða fleiri gjald­daga í van­skilum þann 30. júní 2015 sam­an­borið við 5,5% heim­ila í lok árs 2014.

Trygg­ing­ar­staða lána­safns



Um 94% af bók­færðu virði lána­safns Íbúða­lána­sjóðs liggur á veð­bili innan við 90% af fast­eigna­mati und­ir­liggj­andi veð­and­lags um mitt ár 2015. Fast­eigna­verð hefur hækkað umfram verð­lag á tíma­bil­inu og van­skil minnkað umtals­vert og því hefur trygg­ing­ar­staða lána­safns­ins styrkst. Yfir­gnæf­andi hluti lána sjóðs­ins er á fyrsta veð­rétti auk þess sem fast­eigna­mat er að öllu jöfnu var­kár verð­mats­að­ferð fyrir mark­aðsvirði eign­ar.

Úrræði til handa lán­tak­endum



Á tíma­bil­inu afgreiddi sjóð­ur­inn höf­uð­stólslækkun fast­eigna­lána til handa 24.727 heim­ilum alls að kröfu­virði 34.178 millj­ónir króna. Útlán sjóðs­ins dróg­ust umtals­vert saman og laust fé jókst sam­svar­andi. Stjórn­völd hyggj­ast ljúka greiðslu kaup­verðs leið­rétt­ing­ar­hluta lána­safns­ins í jan­úar 2016 skv. samn­ingi þar um.

Um 10.612 heim­ili hafa nýtt sér þann mögu­leika að greiða lán sín hjá sjóðnum hraðar upp með ráð­stöfun sér­eign­ar­sparn­aðar inn á fast­eigna­lán sín. Umfram­greiðslur vegna ráð­stöf­unar sér­eign­ar­sparn­aðar við­skipta­vina hafa numið 2.887 millj­ónum króna fram til 30. júní 2015.

Fulln­ustu­eignir



Á tíma­bil­inu seldi sjóð­ur­inn 548 íbúðir og leysti til sín 181 íbúð til fulln­ustu. Þann 30. júní voru 1.524 fulln­ustu­eignir í eigu sjóðs­ins og hafði þeim fækkað um 367 eignir frá ára­mót­um. Um 46% eigna til sölu eru í útleigu. Bók­fært virði fulln­ustu­eigna sjóðs­ins tekur mið af kostn­að­ar­-verði eða áætl­uðu gang­virði hvoru sem lægra reyn­ist. Bók­fært virði eigna móð­ur­fé­lags­ins þann 30. júní er 22 millj­arðar króna, á sama tíma og fast­eigna­mat sömu eigna er 26,6 millj­arð­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None