Bjarni Benediktsson: Gera ekki ráð fyrir því að ríkið eignist Arion banka

bjarni_benediktsson.jpg
Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, gerir ekki ráð fyrir því að slita­stjórn Kaup­þings muni leggja til að ríkið eign­ist hlut hennar í Arion banka. Það sé heldur ekki fram­tíð­ar­lausn að ríkið eigi allt hlutafé í Íslands­banka og Lands­bank­an­um. Þetta kemur fram á mbl.­is. 

Fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið sendi frá sér tilkynn­ingu klukkan 4:10 í nótt þar sem til­kynnt var að íslenska ríkið væri að fara að eign­ast annan banka, Íslands­banka, að öllu leyti. Fyrir á ríkið Lands­bank­ann. Eini stóri við­skipta­bank­inn sem verður ekki nán­ast að fullu í rík­i­s­eigu að loknu slita­ferli gömlu bank­anna verður því Arion banki. Þetta var nið­ur­staða funda sem ráð­gjafar stærstu kröfu­hafa Glitn­is, núver­andi eig­anda 95 pró­sent hlutar í Íslands­banka, og fram­kvæmda­hópur um losun fjár­magns­hafta áttu á tíma­bil­inu 25. sept­em­ber til 13. októ­ber vegna breyt­inga á stöð­ug­leika­fram­lagi kröfu­haf­anna.

Kjarn­inn fjall­aði ítar­lega um tíð­indi næt­ur­innar í frétta­skýr­ingu í morg­un.

Auglýsing

Ekki fram­tíð­ar­lausn að ríkið eigi Íslands­banka



Bjarni segir við mbl.is að til­laga kröfu­hafa Glitnis sé mjög jákvætt mál. Það sé ekki komið að því að ríkið taki við bank­an­um, en ef það ger­ist munu ráða­menn taka sér góðan tíma til að fara yfir stöð­una. "Ég sé það ekki fyr­ir mér sem fram­tíð­ar­lausn að ríkið fari með allt eign­­ar­hald bæði í Lands­­bank­an­um og Íslands­­­banka. Það ligg­ur bein­­ast við að vinda sér strax í áætl­an­ir um það hvernig fram­tíð­ar­­­eign­­ar­haldi verður hátt­að. Ég hef ekki áhyggj­ur af því þótt ríkið eigi veru­­leg­an hlut í ein­hvern tíma, en mér finnst mik­il­vægt að við kynn­um áform um það hvernig ríkið hyggst losa um eign­­ar­hlut sinn sem fyrst og við verðum að vanda vel til und­ir­­bún­­ings að því".

Eftir þær breyt­ingar sem kynntar voru í morgun telur fram­kvæmda­hópur um losun hafta að slitabú Glitnis sé að mæta stöð­ug­leika­skil­yrðum stjórn­valda og því séu for­sendur fyrir und­an­þágu frá gjald­eyr­is­höftum fyrir hendi. Og eftir þessa breyt­ingu er íslenska ríkið orðið eig­andi að tveimur af þremur stærstu bönkum lands­ins.

Ekki liggur fyrir um hversu mikið end­an­legt stöð­ug­leika­fram­lag mun hækka við þessa breyt­ingu. Það kemur ekki í ljós fyrr en ríkið selur Íslands­banka, ef það ákveður að gera það.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None