Karolina Fund: Reykjavíkurdæturnar sem urðu til af hreinni tilviljun

Reykjavíkurdætur
Auglýsing

Reykja­vík­ur­dætur hafa nú hafið söfnun fyrir sína fyrst­u ­plötu en sveitin hefur starfað frá árinu 2014. Reykja­vík­ur­dætur er 17 kvenna hópur af röpp­urum sem hafa vakið athygli hér­lendis sem og erlendis fyr­ir­ ­djarfan flutn­ing, tón­list og texta­gerð. Reykja­vík­ur­dætur hafa á ferli sín­um  meðal ann­ars samið þema­lag Druslu­göng­unn­ar, opnað ára­mótaskaup­ið, samið lag fyrir Land­vernd og Dag rauða ­nefs­ins. Ásamt því hafa kon­urnar opnað Nor­disk Panorama Film Festi­val í Mal­mö, ­spilað ásamt Dream Wife út um alla London og eru á leið­inni á sinn fyrsta ­Evr­óputúr í sumar þar sem þær spila meðal ann­ars á Hróa­skeldu. Kjarn­inn rædd­i við tvær Reykja­vík­ur­dæt­ur, Öldu Karen Hjalta­lín og Sölku Vals­dótt­ur, um ­plöt­una.

 

 

Hverjar eru Reykja­vík­ur­dætur og hvað kom til að þið ­stofn­uðuð þessa hljóm­sveit?

 „Reykja­vík­ur­dætur komu til í kjöl­farið á Rapp­konu­kvöldum sem nokkrar okkar innan hóps­ins voru að skipu­leggja eitt sum­ar­ið. Við héldum fyrsta rapp­konu­kvöldið í júlí 2013 við mjög góðar und­ir­tekt­ir. Við héldum síðan tvö­ ­sam­bæri­leg kvöld í við­bót og fyrir það þriðja ákváðum við að gera lag til að aug­lýsa það betur og úr varð lagið ‘Reykja­vík­ur­dæt­ur’. Lagið og við sjálf­ar ­fengum gríð­ar­lega athygli og það má eig­in­lega segja að út frá því stofn­uðum við Reykja­vík­ur­dætur hóp­inn sem íslend­ingar þekkja í dag. Það má því segja að hljóm­sveitin hafi orðið til af ein­skærri til­viljun þar sem konur úr mjög ólík­um áttum deildu sam­eig­in­legu áhuga­máli. “

Auglýsing

Hvaðan sæk­iði inn­blást­ur­inn?

„Við höfum gefið út fjöld­ann allan af lögum eins og sést á spil­un­ar­list­anum inná söfn­un­ar­síð­unni okkar á Karol­ina fund. Við höfum bæð­i ­gefið út hóplög fyrir Reykja­vík­ur­dætur en einnig líka lög eftir smærri ein­ing­ar innan hóps­ins allt frá sóló lögum í ann­að­hvort dúó eða tríó hópa (t.d. Cyper, Hljóm­sveitt og Þrjár Basískar). Á plöt­unni verður nýtt efni sem við erum að vinna í akkúrat núna, þar af fyrsta enska lagið okk­ar. En auð­vitað verð­ur­ eitt­hvað af útgefnu efni líka á plöt­unni. Tón­listin verður jafn fjöl­breytt og ­með­lim­irnir eru margir þar sem hver og eitt lag hefur ólíka sögu og ólíka kon­u á bak­við sig.“

Hvernig tón­list kemur til með að vera á plöt­unni?

„Það mætti næstum segja að platan verði eins og safn­plata þar sem inn­blást­ur­inn kemur víða að og efnið á plöt­unni verður það sem við ­sam­mæl­umst um hvað við erum stoltastar af sem Reykja­vík­ur­dæt­ur.“



Eru ein­hver skila­boð sem þið viljið koma á fram­færi í þessu fyrsta albúmi ykk­ar?

„Platan mun ekki hafa neinn einn ákveðin boð­skap yfir­vof­and­i enda er það ómögu­legt fyrir okkur þar sem við erum stór hópur fullur af ólík­um ­per­són­um. Það er í höndum hlust­and­ans að velta fyrir sér texta og tón­smíð og von­andi hefur með þeirri aðferð platan áhrif á sem flesta.

Því mælum við með að þið tryggið ykkur ein­tak og túlkið boð­skap­inn hver fyrir sig.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk
None