Deigkenndar pappaskeiðar, mannorð, kæling, glóandi hraun og milljónalífeyrisþegar

Kjarninn rekur einn dýnamískasta umræðuvettvang landsins þar sem ýmiskonar pistlar og skoðanagreinar birtast á hverju ári. Hér eru þeir fimm sem voru mest lesnir á árinu 2022.

aðsent20221
Auglýsing

5. Almenn­ingur japlar á deig­kenndum pappa­skeiðum á meðan þeir ofur­ríku fá ókeypis stæði fyrir einka­þotur í mið­borg­inni (birt­ist 27. júlí)

Krist­ján Godsk Rögn­valds­son dokt­or­snemi skrif­aði aðsenda grein um einka­þotur á Reykja­vík­ur­flug­velli og segir að yfir­gangur þeirra ofur­ríku yfir sam­eig­in­legum gæðum eins og hreinu lofti og tak­mörk­uðu rými fyrir auknum útblæstri gróð­ur­húsa­loft­teg­unda sé óþol­andi „og með­­­virkni yfir­­­valda gagn­vart þess­­ari elítu söm­u­­leið­is“.

Lestu grein­ina í heild hér.

4. Hverjir eru millj­óna­líf­eyr­is­þeg­arn­ir, Bjarni Bene­dikts­son? (birt­ist 5. júlí)

„Allt ætl­aði um koll að keyra þegar dóm­arar og efstu lög þjóð­fé­lags­ins voru krafðir um að end­ur­greiða brota­brot af mán­að­ar­tekjum sínum vegna mis­taka kerf­is­ins. Þeir þurfa ekki að lifa við flóknar skerð­ingar sem er dag­legt brauð líf­eyr­is­þega og í raun ekk­ert annað en ofur­skattur á hlægi­lega inn­komu.“ Ást­þrúður K. Jóns­dóttir skrif­aði um lífs­kjör öryrkja í aðsendri grein.

Auglýsing

Lestu grein­ina í heild hér.

3. Mann­orð Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur (birt­ist 6. febr­ú­ar)

„Sól­­veig Anna þarf að búa við enda­­lausan straum af nafn­­lausum árásum og aðdrótt­unum um glæp­­sam­­lega hegð­un, almenna mann­vonsku og per­­són­u­­leika­bresti; hinnar sönnu sakir hennar eru þó þær einar að hafa tekið að sér að veita kjara­bar­áttu lág­­launa­­fólks for­ystu og vera öfl­­ugur tals­­maður þeirra sem lifa frá einni launa­greiðslu til ann­­arr­­ar.“

Birna Gunn­ars­dóttir skrif­aði um frétta­flutn­ing í aðdrag­anda for­manns- og stjórn­ar­kjörs Efl­ing­ar.

Lestu grein­ina í heild hér.

2. Sagan af mann­inum sem ekki var eitrað fyrir og blaða­mönn­unum sem valdið vildi kæla (birt­ist 20. sept­em­ber)

Þórður Snær Júl­í­us­son skrif­aði um rann­sókn lög­regl­unnar á Norð­ur­landi eystra á fjórum blaða­mönn­um, umfjöllun fjöl­miðla um hana, aðkomu stjórn­mála­manna og það sem gögn máls­ins sýna að átt hafi sér stað.

Lestu grein­ina í heild hér.

1. Hvað ger­ist ef þú fellur í gló­andi hraun (birt­ist 17. apríl 2021)

„​​En þó gló­andi hraunið gleypi þig ekki með húð og hári er harla ólík­­­­­legt að þú sleppir frá því lif­andi. Í stað þess að sökkva í hraunið kviknar ein­fald­­­lega í þér. Gló­andi hraun er allt að 1250° heitt – meira en 10 sinnum heit­­­ara en sjóð­andi vatn - og því munu vít­iseldar umvefja þig á örskots­­stundu með þeim afleið­ingum að þú fuðrar upp. Það eina sem eftir stendur verður aska sem svo bráðnar og rennur saman við gló­andi hraun­ið. Game over.“

Eig­endur Icelandic Lava Show skrif­uðu hraun­mola á Kjarn­ann í kjöl­far þess að eld­­gos hófst við Fagra­­dals­fjall 2021. Sú grein fór aftur á flug í ár þegar gjósa fór að nýju. 

Lestu grein­ina í heild sinni hér. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk