Karolina Fund: Maðurinn sem minnkaði vistsporið sitt

Maðurinn sem minnkaði vistsporið sitt
Auglýsing

Ágangur manna á jörð­ina er orðin slíkur að hún hefur ekki ­lengur undan að fram­leiða hin nátt­úru­legu gæði sem menn­irnir nýta. Fólks­fjölg­un og aukin neysla ræður hér mestu um og er neyslan nú orðin slík að talið er að ­mann­kynið sem heild noti nú auð­lindir sem jafn­ist á við eina og hálfa jörð á ári," segir Sig­urður Eyberg. Í bígerð er heim­ild­ar­mynd um sjálf­bærni í ósjálf­bæru sam­fé­lagi og þar er ­fylgst með honum og til­raunum hans til að minnka vist­spor sitt. Kjarn­inn hitti Sig­urð Eyberg í til­efni þessa verk­efnis og tók hann tali.

Auglýsing

Hvaða hópur stendur á bak­við heim­ilda­mynd­ina „Mað­ur­inn sem minnk­aði vistsporið sitt“? 

Bros­bræð­ur­ eru menn­irnir á bak­við mynd­ina en hún hefði aldrei getað orðið ef ekki hefð­i komið til gríð­ar­lega óeig­in­gjarnt starf margra góðra aðila. Þar ber hæst fram­lag klipp­ar­ans Atla Þórs og hreyfi­mynda­mann­ins Arn­ars Fells Gunn­ars­son­ar.

Maðurinn sem minnkaði vistsporið sitt.Þá er fjöldi tón­list­ar­manna sem leyfir okkur að nota tón­list­ina sína og þar eru Hinir Guð­dóm­legu Neand­er­dals­menn fremstir í flokki en tón­list þeirra set­ur ­mik­inn svip á mynd­ina. Aðrir eru Gálan, Þröstur Jóhann­es­son, Digi­tal Joe og Hálf­tíma­gang­ur.

Ann­ar­s vorum við flest að gera hluti sem við höfðum ekki gert mikið af áður – alla­vega ekki í svona stóru verk­efn­i."

Hvað er vistspor?

 Vistspor er mæli­kvarði á sjálf­bærni. Vistsporið gengur út frá því að hægt sé að rekja alla neyslu mann­kyns til þess frjósama lands sem veitir okkur nátt­úru­auð­inn sem við notum til að fram­leiða vör­urnar sem við erum að neyta. Með sama hætti er hægt að meta hversu mikið land­svæði þarf til að taka við sorp­inu og meng­un­inn­i ­sem neysla okkar veld­ur. Þetta gerir okkur kleift að meta umhverf­is­á­hrif neyslu ein­stak­lings eða stærri heildar eins og fyr­ir­tæk­is, sveit­ar­fé­lags eða þjóð­ar­. Því meiri sem neyslan er því meira þarf af frjósömu landi til að standa und­ir­ henni og því stærra verður Vistspor­ið."

Hvaða spurn­ingum eru þið að reyna að svara með þess­ari heim­ilda­mynd?

 Aðal­ ­spurn­ingin sem lagt var upp með var: Er hægt að lifa sjálf­bæru lífi í íslensku, nú­tíma sam­fé­lag­i? Aðr­ar ­spurn­ingar sem svo óhjá­kvæmi­lega koma upp snú­ast svo um hvað maður þarf að ger­a til að nálg­ast þetta mark­mið, þ.e.a.s. á hverju er best að byrja, hvað veg­ur ­þyngst o.s.frv.

Þessum ­spurn­ingum er svo öllum svarað í mynd­inni eftir því sem Siggi upp­götvar þetta ­sjálfur við það að reyna lifa sjálf­bæru lífi.

Mynd­in verður frum­sýnd í sam­starfi við Umhverf­is- og auð­linda­fræði við Háskóla Íslands­ mið­viku­dag­inn 20. apríl klukkan 15.00, í Háskóla­bíói í Reykja­vík, sal 2. Eng­inn aðgangs­eyrir og allir vel­komn­ir."

Söfn­un er hafin á Karol­ina Fund til að koma mynd­inni á DVD diska, sjá hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk
None