Tíu staðreyndir um Hildi Þórðardóttur

Hildur Þórðardóttir gefur kost á sér til embættis forseta Íslands.
Hildur Þórðardóttir gefur kost á sér til embættis forseta Íslands.
Auglýsing

1. Hildur Þórð­ar­dóttir er fædd árið 1967 og er 48 ára göm­ul. Hún á tvo syn­i.


2. Hún er rit­höf­undur og hefur gefið út fjórar sjálfs­hjálp­ar­bækur und­an­farin ár og eina hljóð­bók. Hún er mennt­aður tísku­mark­aðs­fræð­ingur og þjóð­fræð­ing­ur. 


3. Hildur seg­ist aldrei hafa verið tengd stjórn­mála­flokki eða verið í póli­tík. Hún er í þjóð­kirkj­unni. 


Auglýsing

4. Hún seg­ist standa fyrir friði í sam­fé­lag­inu og vill brúa bilið á milli þings og þjóð­ar. Hún vill taka allt það besta úr öllum stefnum svo öllum líði vel. Hildur vill að vest­ræn heil­brigð­is­vís­indi not­ist meira við aust­rænar lækn­ing­ar, eins og heilun eða orku­lækn­ingar með­fram alls konar öðrum lækn­ing­um, eins og fram kom í NOVA spjall­inu við hana um dag­inn. 


5. Hildur hélt úti bloggi um tíma, áður en hún fór í for­seta­fram­boð, þar sem hún skrif­aði meðal ann­ars að orsakir krabba­meins ætti rætur að rekja til orku­stöðv­ar­innar og meint brjóstakrabba­mein muni bara finna sér annan far­veg ef ekk­ert verði að gert. Konur fái þá bara lungna­krabba­mein í stað­inn fyrir hjarta­á­fall ef ekk­ert verði að gert. „Gena­rann­sóknir eru á villi­götum því það eru engin gen sem valda sjúk­dóm­um,“ skrif­aði Hild­ur. Á sömu síðu lýsti hún þegar hún upp­lifði 200 ára gamla ást­ar­sorg vegna maka­missis úr fyrra lífi í Englandi. Hún hefur nýlega sagt að áhugi hennar á fyrri lífum sé ein­ungis áhuga­mál. 


6. Hildur á fjöl­breyttan starfs­feril að baki og hefur unnið sem skrif­stofu­stjóri á lög­manns­stofu, skrifað leik­rit, unnið hjá Lista­safni Reykja­víkur og verið sjálf­boða­liði hjá Rauða kross­in­um, á kaffi­stofu Sam­hjálpar og Hug­ar­afli.


7. Hún vill setja siða­reglur fyrir for­seta­emb­ættið og verði hún for­seti ætlar hún að gera það eitt af sínum fyrstu verk­um, nái hún kjöri. Hún vill koma auð­lindum í þjóð­ar­eign.


8. Í For­seta­grill­inu hjá NOVA kom einnig fram að Hildur er mik­ill dýra­vinur og elskar sér­stak­lega hunda. Hún má þó ekki hafa hund­inn sinn, Pílu, hjá sér þar sem hún býr í blokk þar sem má ekki hafa hunda.


9. Und­an­farna mán­uði hefur Hildur verið með í kring um 200 þús­und krónur á mán­uði í laun. 


10. Hún talar mörg tungu­mál; íslensku, ensku, þýsku og dönsku og getur bjargað sér á spænsku og ítölsku. 


Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk
None