„Erum við fórnarlömb eineltis?“

Ljósmyndari notar eigin reynslu af einelti til að gera bók sem er ætlað að koma af stað vitundarvakningu um það. Hann safnar fyrir útgáfu hennar á Karolina Fund.

Kristvin Guðmundsson.
Kristvin Guðmundsson.
Auglýsing

Krist­vin Guð­munds­son er ljós­mynd­ari sem hefur starfað sem slíkur und­an­farin ár. Hann út­skrif­að­ist úr ­New York Institu­de of Pho­tograpy og stofn­að­i Iceland.Photo ­fyrir nokkrum árum síð­an. 

Það sem Krist­vin hefur verið að gera und­an­farin ár er að mynda nátt­úru, and­lits­mynd­ir, norð­ur­ljós og margt fleira. Einnig hefur hann myndað vel flesta tón­list­ar­menn Íslands á tón­leik­um. Þá opn­aði Krist­vin grúppu á Face­book ­sem heit­ir Aur­ora Hunter­s Iceland þar sem norð­ur­ljósa upp­lýs­ingar koma fram og hefur hún stækkað gíf­ur­lega und­an­farin ár og telur nú rúm­lega 15 ­þús­und ein­stak­linga um allan heim. 

Nú safnar hann áheitum á Karol­ina fund til að ­gefa út ljós­mynda­bók sem er ætlað að koma af stað vit­und­ar­vakn­ingu um ein­elti. Bók­ina „Erum við fórn­ar­lömb ein­elt­is?“

Krist­vin segir að hug­myndin að bók­inni hafi kviknað vegna eigin reynslu. „Ég varð fyrir gíf­ur­legu ein­elti alla mína skóla­göngu og hef þurft að glíma við það alla ævi síð­an. 

Auglýsing
Eftir að ég náði ákveðnum árangri í minni bar­áttu við þenn­an ­for­tíð­ar­draug lang­aði mig að vekja athygli á þessu mál­efni þannig að ég hugs­aði það lengi hvernig ég gæti látið þetta lifa sem lengst. Börnin mín lentu líka í ein­elti þannig það hvatti mig en meira að fara í þetta verk­efni. En í dag koma reglu­lega fram fréttir af fólki sem er að lenda í ein­elt­i. Þannig fædd­ist hug­myndin af þess­ari bók.“ 

Hann segir að þema bók­ar­innar sé þannig að teknar verða and­lits­myndir af fólki, bæði þekktum og óþekktum and­lit­um. „Það er svo marg­sannað að ein­elti hefur elt ótrú­leg­asta fólk. Ég vill setja fókus á augu við­kom­andi þannig að sá sem sér verður að horfast í augun við mynd­ina og reyna að svara spurn­ing­unn­i.“

Það sem Krist­vin vill gera með þess­ari bók er að sýna fólki að ein­elti hefur plagað fólk á hverjum degi. „Ég vill vekja athygli á að ein­elti er orðið svo stórt mein í dag. Hér áður fyrr eins og þegar ég var yngri þá kom ég heim og þar var minn griða­stað­ur. Í dag eltir það þið hvert og hvenær sem er með til­komu nets­ins. Þetta hefur orsakað að fólk fær hvergi frið. Einnig sýna fram á að hin and­legu sár sem ein­elti býr til gró­a sein­t.“

Hér er hægt að skoða og taka þátt í verk­efn­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk