Ellefu milljörðum eytt í skyndibita frá risunum á Íslandi í fyrra

Velta Subway, Foodco, Domino´s og KFC var samtals á annan tug milljarða króna á árinu 2014.

hamborgari
Auglýsing

Íslend­ingar keyptu skyndi­bita frá Subway, Dom­in­o´s, KFC og ­Foodco, sem á og rekur sjö vöru­merki og 20 veit­inga­staði á Íslandi, fyrir 10,9 millj­arða króna á árinu 2014. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingum þeirra. Þessir fjór­ir að­ilar eru stærstu skyndi­bita­keðjur lands­ins.

Íslensk heim­ili eru um 125 þús­und tals­ins. Ef gert er ráð fyrir því að þau hafi keypt þennan mat hefur hvert íslenskt heim­ili eytt um 87.200 krónum í skyndi­bita frá veit­inga­stöðum þess­arra fjög­urra fyr­ir­tækja á árin­u 2014. Hluti skyndi­bit­ans hefur þó verið keyptur af erlendum ferða­mönn­um. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingum fyr­ir­tækj­anna, en öll skil­uðu umtals­verðum hagn­aði á hverju ári.

Það er því mjög arð­væn­legt að vera í skyndi­bita­geir­anum á Íslandi í dag.

Auglýsing



Foodco hagnað mikið á und­an­förnum árum

Skyndi­bita­veldið Foodco hagn­að­ist um 144 millj­ónir króna í fyrra. Alls nemur hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins frá árinu 2009 um einum og hálfum millj­arði króna. Foodco á og rekur sjö vöru­merki í veit­inga­geir­an­um. Þau eru Aktu Taktu, Eld­smiðj­an, Saffran, Amer­ican Style, Pít­an, Greif­inn á Akur­eyri og Road­hou­se, sem fyr­ir­tækið keypti í maí ­síð­ast­liðn­um. Yfir 400 manns starfa hjá Foodco sem á alls 20 veit­inga­staði.

Velta fyr­ir­tæk­is­ins var rúm­lega 3,4 millj­arðar króna í fyrra sem gerir það að sölu­hæsta skyndi­bit­ar­isa lands­ins.

Sam­kvæmt árs­reikn­ingi Foodco fyrir árið 2014 dróst hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins saman á milli ára, en hann nam 402 millj­ón­um króna á árinu 2013. Þar mun­aði þó mest um að lán fyr­ir­tæk­is­ins vor­u end­urút­reiknuð sem gerði það að verkum að 377 millj­ónir króna voru tekju­færð­ir. Hagn­aður Foodco fyrir fjár­magns­kostn­að, skatta og afskriftir (EBIT­DA) jókst á milli ára.

Hann var 244 millj­ónir árið 2013 en 377 millj­ónir króna í fyrra. Á sama tíma hefur fyr­ir­tæk­inu gengið vel að greiða af skuldum sín­um. Heild­ar­skuldir þess lækk­uðu um 90 millj­ónir króna í fyrra og ­stöðu í 593 millj­ónum króna í lok árs 2014.

Eig­endur Foodco eru fjór­ir. Þór­ar­inn Ragn­ars­son  á 40 pró­sent hlut, félög  í eigu sona hans, þeirra Jó­hanns Arnar Þór­ar­ins­sonar (40 pró­sent) og Ótt­ars Þór­ar­ins­sonar (tíu pró­sent) eiga helm­ings­hlut og félag í eigu Bjarna Stef­áns Gunn­ars­son­ar  á tíu ­pró­sent.

Vin­sæl­asti skynd­biti lands­ins

Pizza-Pizza ehf., móð­ur­fé­lag Dom­in­o's á Ís­landi sem rekur 19 pítsu­staði á land­inu öllu, hagn­að­ist um 157 millj­ón­ir króna á árinu 2014. Árið áður nam hagn­að­ur­inn 226 millj­ónum króna og árið 2012 var hagn­að­ur­inn 111 millj­ónir króna. Velta Dom­in­o's í fyrra var sam­tals 3,3 millj­arðar króna. Þótt heild­ar­velta Foodco sé aðeins meiri en velta móð­ur­fé­lags­ Dom­in­o's er morg­un­ljóst að pizzu­stað­ur­inn er vin­sæl­asti skyndi­biti lands­ins, enda sam­anstendur velta Foodco af sölu átta mis­mun­andi vöru­merkja.

Í mars síð­ast­liðnum keypti fram­taks­sjóð­ur­inn EDDA, sem er rek­inn af  Virð­ingu en er í eigu líf­eyr­is­sjóða og ann­arra fag­fjár­festa, fjórð­urs­hlut í Dom­in­o's á Íslandi. Aðrir eig­endur eru Birgir Þ. Bielt­ved­t ­stjórn­ar­for­maður félags­ins og eig­in­kona hans Eygló Björk Kjart­ans­dótt­ir, sem einnig situr í stjórn móð­ur­fé­lag­ins, Högni Sig­urðs­son, Birgir Ö. Birg­is­son fram­kvæmda­stjóri og nokkrir aðrir lyk­il­stjórn­endur Dom­in­o‘s á Íslandi.

Ákveðið var að ráð­ast í sölu á hlutn­um til að fjár­magna útrás í Nor­egi og Sví­þjóð.

Íslend­ingar sólgnir í kjúkling og báta

KFC ehf. rekur átta veit­ing­ar­staði víðs­veg­ar um land­ið. Hagn­aður KFC í fyrra var tæp­lega 121 millj­ónir króna og sam­an­lagð­ur­ hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins á síð­ustu fjórum árum er 312 millj­ónir króna. Alls nam velta KFC um 2,4 millj­örðum króna á árinu 2014.

Eini eig­andi félags­ins er fram­kvæmda­stjóri þess, Helgi Vil­hjálms­son, sem oft­ast er kenndur við Góu.

Rekstr­ar­fé­lag Subway á Íslandi heit­ir ­Stjarnan ehf. Alls rekur félagið 23 slíka staði víðs­vegar um land­ið. Það hagn­að­ist um 174 millj­ónir króna í fyrra, en hluti hans var vegna hagn­að­ar­ fast­eigna­fé­lags í eigum Stjörn­unn­ar. Í árs­reikn­ingi félags­ins kemur fram að velta vegna rekst­urs Subway stað­anna hafi verið um 1,8 millj­arðar króna í fyrra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None