Róbert Wessman segir Björgólfi Thor að skammast sín

Róbert Wessman
Auglýsing

Róbert Wess­man, for­stjóri Alvogen, segir að Björgólfur Thor Björg­ólfs­son fjár­festir ættir að „skamm­ast sín“ vegna hans þáttar í efna­hags­hruni lands­ins. Þá sé það „hjá­kát­legt og bein­línis vand­ræða­legt“ þegar hann heldur því fram að aðrir hafi ekki borgað skuldir sínar til baka, í ljósi þess að hann hefur aðeins borgað „lítið brot“ sinna skulda til baka sjálf­ur. Þetta kemur fram í harð­orðri yfir­lýs­ingu frá Róberti.

Eins og greint var frá á vef Kjarn­ans fyrr í dag, þá hélt Björgólfur Thor því fram að Róbert noti sjóði sína til að klekkja á honum í dóm­söl­u­m. Róbert hefur í digra sjóði að sækja, enda gætti hann þess vand­lega að koma auð sínum undan kröfu­höf­um, í stað þess að gera upp millj­arða skuldir sínar við íslensku bank­ana eftir hrun. Auð­vitað gera þeir sér engar vonir um bætur úr minni hendi, enda eina mark­miðið að sverta mann­orð mitt.“ Þetta kemur fram í blogg­færslu á vefnum btb.is.

Kjarn­inn greindi frá því á mið­viku­dag að félag í eigu Árna Harð­ar­son­ar, stjórn­ar­manns og lög­manns lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Alvogen, ætti um 60 pró­sent þeirra hluta­bréfa sem eru að baki hóp­mál­sókn sem nú er rekin gegn Björgólfi. Árni á hluta­bréf­in, sem hann hefur keypt af islenskum líf­eyr­is­sjóðum nýver­ið, í gegnum félag sem heitir Urriða­hæð ehf. Sam­tals hefur Árni greitt á milli 25 til 30 millj­ónir króna fyrir hluta­bréf­in, sem eru verð­laus nema að til tak­ist að fá við­ur­kennt fyrir dóm­stólum að Björgólfur Thor eigi að greiða fyrrum hlut­höfum Lands­bank­ans skaða­bæt­ur. Til við­bótar þarf Urrið­hæð að greiða sinn hluta máls­kostn­að­ar. Hann gæti hlaupið á tugum millj­óna króna.

Auglýsing

Róbert segir í yfir­lýs­ingu sinni að hann hafi hætt að vinna með Björgólfi Thor vegna þess að hann kærði sig ekki um að vera við­loð­andi við­skiptasið­ferði hans og félaga hans leng­ur.

Róbert og Björgólfur Thor hafa deild opin­ber­lega um hin ýmsu mál, alveg frá því að leiðir skildu í við­skipta­sam­bandi þeirra. Hafa málin ratað oftar en einu sinni fyrir dóm­stóla, og sér ekki fyrir end­ann á þeim deil­um.

Yfir­lýs­ingin fer hér að neðan í heild sinni:

„Vegna ummæla ­sem Björgólfur Thor Björg­ólfs­son við­hefur á vef­síðu sinni í dag um starfs­lok mín hjá Act­a­vis, er mér bæði ljúft og skylt að koma eft­ir­far­andi á fram­færi:

Ástæð­ur­ þess að ég hafði ekki lengur áhuga að starfa með Björgólfi Thor og hans við­skipta­fé­lögum var aug­ljós.  Við­skiptasið­ferði þeirra er með þeim hætt­i að ég kærði mig ekki um að vera við­loð­andi það leng­ur. Ein­hverjar aðr­ar eftirá­skýr­ingar hans hafa enga merk­ingu.

Allir vita að ­Björgólfur Thor átti eign­ar­hlut í fjölda fyr­ir­tækja hér á landi sem fóru í þrot. Hann átti sem við­skipta­maður og einn stærsti eig­andi Lands­bank­ans sinn þátt í hruni krón­unn­ar, með afleið­ingum fyrir land og þjóð sem við erum enn öll að að vinna okkur út úr. 

Öllum má ­jafn­framt vera ljóst, að þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir til að halda öðrum fram, hefur Björgólfur Thor ekki gert upp nema örlítið brot af skuldum sínum og ­sinna fyr­ir­tækja. Það er því hjá­kát­legt og bein­línis vand­ræða­leg­t þegar því er haldið fram af hans hálfu að aðrir hafa ekki staðið skil á skuld­um sín­um. 

Að mínu mat­i ætti Björgólfur Thor að hafa vit á að skamm­ast sín fyrir sinn þátt í að kom­a Ís­lend­ingum í þann fjár­hags­legan vanda sem raunin varð, og hætta að reyna að end­ur­skrifa sög­una sér í hag.  Það sjá allir í gegnum það.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None