A-hluti Reykjavíkurborgar verður rekinn með 13,4 milljarða króna tapi í ár

Fjárhagsáætlun sem lögð var fram í borgarstjórn í dag sýnir mjög slæma afkomu árið 2015. Borgin ætlar að skila afgangi á næsta ári.

dagur b. eggertsson
Auglýsing

A-hluti Reykja­vík­ur­borgar verður rekin með 13,4 millj­arða króna tapi á árinu 2015 sam­kvæmt útkomu­spá sem kynnt var í borg­ar­stjórn í dag. Til A-hluta telst starf­semi sem að hluta eða öllu leyti er fjár­mögnuð með skatt­tekj­um. Stærsta ástæða þess að hall­inn er jafn hár og raun ber vitni er sú að breyt­ingar á líf­eyr­is­skuld­bind­ingum á árinu 2015 voru 14 millj­arðar króna. Þær munu ekki vera nærri jafn háar á næstu árum og eru áætl­aðar fjórir millj­arðar króna á árinu 2016.

Sam­stæða borg­ar­inn­ar, A- og B-hluti henn­ar, verður rekin með 3,5 millj­arða króna tapi. Til B-hluta telj­ast fjár­hags­lega sjálf­stæð ­fyr­ir­tæki sem að hálfu eða meiri­hluta eru í eigu borg­ar­inn­ar, en rekstur þeirra er að stofni til fjár­magn­aður með þjón­ustu­tekj­um. Fyr­ir­tækin eru: Faxa­flóa­hafn­ir s­f., Félags­bú­staðir hf., Íþrótta- og sýn­inga­höllin hf., Mal­bik­un­ar­stöðin Höfð­i hf., Orku­veita Reykja­vík­ur, Slökkvi­lið höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins bs., Sorpa bs. og ­Strætó bs, auk Afl­vaka hf og Jör­undar ehf.

Þetta kemur fram í frum­varpi að fjár­hags­á­ætlun Reykja­vík­ur­borgar sem lagt var fram í borg­ar­stjórn í dag.

Auglýsing

Áætla afgang á næsta ári

Þar segir einnig að reka eigi A-hluta rekstur Reykja­vík­ur­borg­ar ­með 567 millj­óna króna afgangi á árinu 2016, sam­kvæmt fjár­hags­á­ætlun sem lögð var fram í borg­ar­stjórn í dag. Sam­stæða Reykja­vík­ur­borg­ar, A- og B-hluti, á að vera rekin með 8,1 millj­arða króna afgangi á næsta ári.

Í til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg vegna þessa segir að mark­mið áætl­un­ar­innar sé að gera grunn­rekstur borg­ar­inn­ar ­sjálf­bær­an. Áætl­unin taki mið af því að árinu 2015 tók afkoman að versn­a tals­vert í kjöl­far mik­illa launa­hækk­ana og breyt­inga á gjald­færslu líf­eyr­is­skuld­bind­inga sem verða gríð­ar­háar á þessu ári.Ein ástæðan fyrir vax­andi rekstr­ar­halla borg­ar­innar og ann­arra sveit­ar­fé­laga má rekja til fjár­hags­sam­skipta þeirra við rík­ið. Sveit­ar­fé­lög­in telja og hafa ályktað þar að lút­andi að veru­lega vanti upp á fjár­muni frá­ ­rík­inu til að tryggja þjón­ustu við fatlað fólk og þjón­ustu við eldri borg­ara á hjúkr­un­ar­heim­il­um. Þá hefur ríkið rukkað sveit­ar­fé­lögin um trygg­ing­ar­gjald umfram það sem atvinnustig í land­inu kallar á. Hall­inn á mála­flokki fatl­aðs fólks nemur um 1.100 millj­ónum á þessu ári, hall­inn á hjúkr­un­ar­heim­il­unum nemur 288 millj­ónum og trygg­inga­gjaldið umfram það sem eðli­legt getur talist tæpum 800 millj­ón­um. Alls gerir þetta um 2,1 millj­arð króna,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Dagur B. Egg­erts­son ­borg­ar­stjóri segir að það megi segja að borgin sé að ná tökum á ástand­inu. „Hækk­and­i ­launa­lið­ir, líf­eyr­is­skuld­bind­ingar og fjár­hags­leg sam­skipti við ríkið hafa ­kallað á sterk við­brögð sveit­ar­fé­lag­anna allra á und­an­förnum miss­er­um. Um leið erum við setja fram áætlun um hvernig bregð­ast skuli við hækk­andi útgjöldum og minni tekjum en áætlað var. Þó munu skattar hald­ast óbreyttir og þegar allt er talið verður áfram hag­stæð­ast fyrir fjöl­skyldur að búa og nýta þjón­ustu í Reykja­vík.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None