Fyrrum fréttastjóri á móti frekari fjárveitingum til RÚV

Elín Hirst vill ekki að útvarpsgjaldið verði óbreytt. Hún vill að menningarefni verði sett inn á íslenskt Youtube.

Elín hirst
Auglýsing

Elín Hir­st, sem var frétta­stjóri frétta­stofu RÚV á árun­um 2002 til 2008 og starf­aði hjá fyr­ir­tæk­inu í meira en ára­tug, seg­ist fyrir sitt leyt­i ekki geta stutt breyt­ingu á fjár­laga­frum­varp­inu fyrir árið 2016 sem fela mynd­i í sér meira fé til RÚV en nú er. Elín er í dag þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þetta kemur fram í grein sem hún skrifar í Morg­un­blaðið í dag.

Sam­kvæmt gild­andi fjár­laga­frum­varpi á að lækk­a út­varps­gjaldið úr 17.800 krónum í 16.400 krón­ur. Magnús Geir Þórð­ar­son út­varps­stjóri hefur sagt að ef gjaldið verði lækkað þá kalli það á nið­ur­skurð hjá RÚV. Ill­ugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, hefur boðað að hann muni leggja fram frum­varp á næst­unni um að útvarps­gjaldið verði óbreytt. ­Ljóst er að það er fjarri því ein­ing um það frum­varp í Sjálf­stæð­is­flokknum eða í sam­starfs­flokki hans í rík­is­stjórn. Bæð­i Vig­dís Hauks­dótt­ir, for­maður fjár­laga­nefndar og þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, vara­for­maður fjár­laga­nefndar og sam­flokks­mað­ur­ Illuga, hafa sagt opin­ber­lega að þau séu á móti því að fallið verði frá­ ­fyr­ir­hug­aðri lækkun útvarps­gjalds. Þau telja einnig að það sé ekki meiri­hluti á þingi fyrir þeirri aðgerð.

Auglýsing

Í grein Elína segir að ný skýrslu um fjár­hags­stöðu RÚV sýni svart á hvítu að stofn­un­in hefur ekki notað síð­ustu ár vel til að breyta rekstr­inum þannig að jafn­væg­i ­ná­ist. Og ef fram heldur sem horfir verður ástandið bara verra með hverju ­rekstr­ar­ár­inu. Á sama tíma og rík áhersla er að ná stöð­ug­leika í rík­is­fjár­mál­u­m og greiða niður skuldir hins opin­bera til að bæta þjóð­ar­hag til fram­búðar kem­ur í ljós að Rík­is­út­varpið er á allt annarri veg­ferð. Það er óásætt­an­legt fyr­ir­ skatt­greið­end­ur.“

Hún sé þó þeirrar skoð­unar að RÚV hafi menn­ing­ar­hlut­verki aðgegna og þyki vænt um fyr­ir­tæk­ið, sem hún kall­ar ­reyndar stofn­un. „En nú er breyt­inga þörf. Við þurfum að end­ur­skoða hlut­verk RÚV miðað við þá tækni sem við höfum í dag þar sem svokölluð línu­leg dag­skrá er á und­an­haldi og fólk getur í auknum mæli valið sér sjálft það efni sem það vill ­sjá þegar það vill sjá það í gegnum ólíkar efn­isveit­ur.

En þarna fel­ast einmitt tæki­færi fyrir RÚV á nýj­u­m ­tím­um. Nú fara nærri sex millj­arðar árlega í að reka þetta stóra fyr­ir­tæki sem ­reynir eftir mætti að vera efni fyrir alla, erlent sem inn­lent, í langri ­dag­skrá allan árs­ins hring. Það er tíma­skekkja. Í stað­inn á að nota fjár­mun­i til að styrkja íslenska sjón­varps­þátta­gerð svo um munar og gera hana að alvöru ­iðn­aði eins í Skand­in­avíu og Bret­landi, svo dæmi sé tek­ið. Í öðru lagi er hjá RÚV varð­veitt inn­lent ómet­an­legt dag­skrár­efni frá því að það hóf starf­sem­i sína. Nota ætti fé til að koma þessum menn­ing­ar­verð­mætum inn í efn­isveitu; eins ­konar íslenskt YOUTU­BE, sem allir lands­menn hefðu aðgang að“.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None