Mikil fjölgun á leigumarkaði: Helst í hendur við aldur og tekjur

Um 20 prósent einstaklinga búa í leiguhúsnæði. Tekjulágir eru líklegri til að leigja en eiga.

hús íbúð fasteignir
Auglýsing

Hlut­fall þeirra sem leigðu hús­næði sitt jókst úr 12,9 pró­sentum árið 2008 í 20,8 pró­sent árið 2014, en mikil fjölgun varð á leigu­mark­aði í kjöl­far hruns­ins. Árið 2008 leigðu 6,8 pró­sent íbúa á almenn­um mark­aði og 6,1 pró­sent eftir öðrum leiðum á borð við félags­bú­staði, stúd­enta­garða eða á lækk­uðu verði af nákomn­um. Árið 2014 leigðu 12,4 pró­sent íbúa á almennum mark­aði og 8,3 pró­sent eftir öðrum leið­um.

Hag­stofan greinir frá þróun mála í dag í nýrri skýrslu um stöð­una á hús­næð­is­mark­aði árið 2014. Rann­sókn Hag­stof­unn­ar, sem er hluti af evr­ópsku lífs­kjara­rann­sókn­inni, sýnir að staðan á hús­næð­is­mark­aði teng­ist bæði aldri fólks og tekj­um. Þannig er fólk með lágar tekjur lík­legra til að búa í leigu­hús­næði. Um 37,4 pró­sent fólks í lægsta fimmt­ungi tekju­dreif­ing­ar­innar bjuggu í leigu­hús­næði á síð­asta ári en aðeins 9,3 pró­sent í hæsta tekju­bil­inu.

Í fyrra leigði 35,5 pró­sent fólks á aldr­inum 25-35 ára hús­næði sitt en 7,9 pró­sent bjuggu í skuld­lausu eigin hús­næði. Á sama tíma bjuggu 9,7 pró­sent fólks á aldr­inum 65 ára og eldri í leigu­hús­næði en 48,2 pró­sent í skuld­lausu eigin hús­næði. Þá sýnir rann­sóknin að heim­ili ein­stæðra for­eldra og ein­hleypra og barn­lausra ein­stak­linga undir 65 ára aldri voru lík­legri til að búa í leigu­hús­næði. Inn­flytj­endur voru einnig lík­legri en inn­fæddir til að leigja hús­næði sem það bjó í, 41,1 pró­sent þeirra sem fædd­ust erlend­ist bjuggu í leigu­hús­næði sam­an­borið við 17,8 pró­sent þeirra sem fædd­ust á Íslandi.

Auglýsing

Þrátt fyrir fjölgun á leigu­mark­aði frá 2008 þá var Ísland með lægsta hlut­fall íbúa í leigu­hús­næði af Norð­ur­lönd­unum 2014 og næst­hæsta hlut­fallið sem bjó í skuld­lausu eigin hús­næði.

Skýrsla Hag­stof­unnar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None