Katrín Júlíusdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur beint fyrirspurn til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra um kostnað við auglýsingar ríkisstjórnarinnar. Í auglýsingunum er vakin athygli á verkum ríkisstjórnarinnar. Auglýsingarnar birtust í dagblöðum og völdum netmiðlum, meðal annars á Eyjan.is.
Fyrirspurn Katrínar er eftirfarandi:
1. Hversu miklu fjármagni hefur verið varið í auglýsingar frá ríkisstjórninni frá og með júní 2013 til dagsins í dag og hvert hefur efni þeirra verið, brotið niður á einstaka miðla með kostnaði?
2. Hversu mikið hefur hingað til kostað auglýsingaherferð, sem nýlega var farið að birta, m.a. um verk ríkisstjórnarinnar og stöðu efnahagsmála og hver er áætlaður heildarkostnaður hennar?
3. Hversu margar auglýsingar hafa verið birtar í þessari herferð, brotið niður á einstaka miðla með kostnaði? Óskað er eftir upplýsingum um birtingaráætlun fyrir frekari auglýsingar.
4. Hvar var ákvörðun tekin um að hefja slíkar auglýsingar og af hvaða fjárlagalið eru þær greiddar?
5. Hvers vegna var ákveðið að ráðast í birtingu auglýsinga til að kynna sérstaklega verk ríkisstjórnarinnar? Telur forsætisráðherra þetta upplýsingar er varða slíka almannahagsmuni að setja beri fjármuni í að auglýsa? Hafa þessar upplýsingar ekki birst í fjölmiðlaumfjöllun um þjóð- og efnahagsmál eða verið aðgengilegar að öðru leyti?
6. Hver er stefna ríkisstjórnarinnar varðandi auglýsingar? Telur forsætisráðherra eðlilegt að auglýsa án þess að um sérstakar leiðbeiningar eða nauðsynlegar upplýsingar til almennings sé að ræða? Hvar liggja mörk upplýsingaskyldu og flokkapólitískrar auglýsingaherferðar að mati ráðherra?
Kjarninn beindi fyrirspurn til forsætisráðuneytisins um sama mál 10. janúar síðastliðinn. Svar hefur ekki borist en málið er sagt í vinnslu. Fyrirspurn Kjarnans var eftirfarandi:
Forsætisráðuneytið keypti í síðustu viku heilsíðuauglýsingapláss í Fréttablaðinu, Morgunblaðinu, Viðskiptablaðinu, DV og Fréttatímanum þar sem vakin er athygli á kaupmáttaraukningu á Íslandi. Auglýsingin er sett fram í nafni ríkisstjórnar Íslands.
Hvað kostuðu umrædd auglýsingakaup?
Hver tók ákvörðun um auglýsingakaupin?
Hvernig var ákvörðun tekin um hvar auglýsingin ætti að birtast?
Hvaða rök liggja að baki því að ríkisstjórn Íslands auglýsi með þessum hætti?
Eru fordæmi fyrir því að auglýst sé með þessum hætti í nafni ríkisstjórnar Íslands?
Í hvaða miðlum hafa auglýsingarnar birst?
Stendur til að birta fleiri?
Ef já, hversu margar og hversu lengi?