Pálmi Guðmundsson: Tæknin er ekki allt

Það eru sögurnar sem drífa sjónvarpsáhorf áfram, að sögn Pálma Guðmundssonar sem stjórnar ljósvakamiðlum Símans. Hann er gestur fyrsta þáttar af Markaðsvarpinu í Hlaðvarpi Kjarnans.

Pálmi Guðmundsson er gestur Trausta og Bjarka í Markaðsvarpinu.
Pálmi Guðmundsson er gestur Trausta og Bjarka í Markaðsvarpinu.
Auglýsing

Það er ekki á hvers manns færi að gera efni fyrir ljós­vaka­miðla, jafn­vel þó ný tækni verði til og hún geri fleirum kleift að fram­leiða afþreyg­ingu. Þetta segir Pálmi Guð­munds­son, for­stöðu­maður ljós­vaka­miðla hjá Sím­an­um, sem er fyrsti gestur Mark­aðsvarps­ins í Hlað­varpi Kjarn­ans. Mark­aðsvarpið hóf göngu sína í dag undir stjórn Bjarka Pét­urs­sonar og Trausta Har­alds­son­ar.

„Meg­in­inntakið er ennþá óbreytt. Það er auð­vitað eitt­hvað efni, ein­hver efni­viður sem við höfum áhuga fyrir og sam­svörum við,“ segir Pálmi. „Tæknin er í sjálfu sér auka­at­riði í þessu sam­hengi. Tæknin þarf að sjálf­sögðu að fylgja með en það eru sög­urnar sem drífa þetta áfram. Við erum öll með ein­hvers­konar filt­er-­kerfi. Við ýtum frá okkur því sem við höfum ekki áhuga á og við drekkjum okkur í því sem við höfum áhuga á.“

Auglýsing

Pálmi ræðir um stefnu Skjás­ins á íslenskum sjón­varps­mark­aði, línu­lega sjón­varps­dag­skrá, þróun tækn­innar og sýn sína á hvernig áhorf og notkun sjón­varps verður árið 2025. „Við getum svo hlegið saman eftir sjö ár þegar spáin mín hefur ekki gengið eft­ir,“ segir Pálmi en hann hefur nær alla sína tíð starfað í fjöl­miðlum og hefur mikla reynslu af stjórnun og rekstri ljós­vaka­miðla.

Mark­aðsvarpið nýr þáttur í Hlað­varpi Kjarn­ans

Mark­aðsvarpið verður á dag­skrá í Hlað­varpi Kjarn­ans á þriðju­dögum þar sem Bjarki og Trausti taka fyrir allt það sem teng­ist mark­aðs­málum í víðum skiln­ingi. Þeir hafa saman yfir 50 ára reynslu af mark­aðs­starfi. Þeir segja mark­aðs­mál vera mjög stórt hug­tak sem tekur á þáttum eins og aug­lýs­inga- og kynn­inga­mál­um, rann­sókn­um, tækni, starfs­manna-, gæða-, sölu- og þjón­ustu­mál­um. „Á manna­máli eru öll fyr­ir­tæki að finna leiðir til að aðgreina sig á mark­að­inum og hámarka arð­sem­ina,“ segja þeir Bjarki og Trausti.

Trausti Haraldsson og Bjarki Pétursson„Stjörn­urnar í þátt­unum eru allir þeir sér­fræð­ingar og stjórn­endur sem lifa og hrær­ast í þessum heimi. Mark­mið Mark­aðsvarps­ins er fyrst og fremst að vera með athygl­is­verðar umræður sem aðrir geta not­fært sér í sínu starf­i,“ segja þeir.

Hægt er að hlusta á fyrsta þátt­inn hér að neðan eða í helstu hlað­varpsöppum.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiHlaðvarp
None