Laun forstjóra hækkuðu mun meira en laun annarra

kauphöll
Auglýsing

Laun for­stjóra þeirra félaga sem skráð eru í Kaup­höll Íslands­ hækk­uðu umfram laun ann­arra á síð­asta ári. Alls hækk­uðu laun og hlunn­ind­i ­for­stjór­anna að með­al­tali um 13,3 pró­sent en með­al­árs­hækkun launa­vísi­tölu Hag­stofu Íslands var 7,2 pró­sent.  ­Með­al­laun for­stjóra í Kaup­höll­inni voru 4,9 millj­ónir króna á árinu 2015 en hæst laun fékk Jón Sig­urðs­son, for­stjóri Öss­ur­ar, eða 19,2 millj­ónir króna á mán­uði. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu.

Þar segir einnig að þau laun sem hækki hlut­falls­lega mest milli ára séu laun Finns Odds­son­ar, for­stjóra Nýherja. Laun hans hækk­uðu í 3,1 milljón króna eða um 46 pró­sent frá árinu 2014. Heild­ar­launa­greiðslur Árna Odds Þórð­ar­son­ar, for­stjóra Mar­el, hækk­uðu um 34,3 pró­sent og voru 6,6 millj­ón­ir króna á mán­uði og Björgólfur Jóhanns­son, for­stjóri Icelandair Group og for­mað­ur­ ­Sam­taka atvinnu­lífs­ins, hækk­aði um 17 pró­sent í 4,5 millj­ónir króna á mán­uði.

Þá munu stjórn­ar­laun þeirra sem sitja í stjórnum skráðra ­fyr­ir­tækja hækka að með­al­tali um 8,6 pró­sent milli ára sam­kvæmt þeim til­lög­um ­sem liggja fyrir aðal­fundum þeirra. Með­al­laun stjórn­ar­for­manna félag­anna verða 676 þús­und krónur á mán­uði verði til­lög­urnar sam­þykkt­ar.

Auglýsing

Þor­steinn Víglunds­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­taka atvinnu­lífs­ins, segir við Frétta­blaðið að almennt sé talið svig­rúm til 3-4 pró­senta launa­hækk­unar á ári og nýlega sam­þykkt­ir kjara­samn­ingar feli í sér launa­hækk­anir sem séu umtals­vert umfram það.

Mikil reiði vegna hækk­ana í fyrra

Fyrir um ári síðan geisuðu for­dæma­lausar deilur á íslenskum vinnu­mark­aði. Hart var tek­ist á um launa­hækk­anir launa­fólks og mik­ill rembihnútur var í deil­unni. Það var því sem sprengju hefði verið kastað inn í deil­urnar þegar nokkur þeirra félaga sem skráð eru á markað til­kynntu að aðal­fundir þeirra hefðu sam­þykkt launa­hækk­anir fyrir stjórn­ar­menn upp á tugi pró­senta. Mesta reiði vakti þegar til­kynnt var að laun stjórn­ar­manna hjá HB Granda myndu hækka um 33 pró­sent á sama tíma og fisk­verka­fólk­inu sem vinnur í frysti­húsi félags­ins stóð til boða 3,5 pró­sent launa­hækk­un. Kjarn­inn ákvað í kjöl­farið að kanna laun ­stjórn­ar­manna allra skráðra félaga á Íslandi, hversu mikið þau áttu að hækka sam­kvæmt til­lögum sem lagðar voru fyrir aðal­fundi þeirra  og hversu háar arð­greiðslur voru greiddar til hlut­hafa félag­anna.

Nið­ur­staðan var sú að fjögur af þeim fjórtán félögum sem skráð voru á íslenskan hluta­bréfa­markað vorið 2015 hækk­uðu laun stjórn­ar­manna sinna um tíu pró­sent eða meira á milli ára. Mest var hækk­unin hjá VÍS þar sem stjórn­ar­menn hækk­uðu um 75 pró­sent í laun­um. Sú hækkun var síðar dregin til baka. Hæst laun­aði stjórn­ar­menn­irnir eru hjá Marel en sá lægst­laun­aði hjá Nýherja. Með­al­laun almennra stjórn­ar­manna í skráðum íslenskum félögum eftir aðal­fundi þeirra í fyrra voru, áður en að VÍS dró sínar hækk­anir til bak­a, 279 ­þús­und krónur á mán­uði, eða 21 ­þús­und krónum lægri en kröfur Starfs­greina­sam­bands Íslands um lág­marks­laun fyrir fulla vinnu voru í þeim kjara­deilum sem þá stóðu yfir. Með­al­laun stjórn­ar­for­manna skráðra félaga voru tölu­vert hærri, eða 563 þús­und krónur á mán­uði.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None