Már: Nýi ramminn verður betri en sá gamli en engin töfralausn

Már Guðmundsson seðlabankastjóri sagði í ræðu sinni á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins að rammi um peningastefnuna yrði að liggja fyrir þegar losað yrði um höft.

Már Guðmundsson
Auglýsing

Már Guð­munds­son, seðla­banka­stjóri, sagði í ræðu sinni á aðal­fundi Sam­taka atvinnu­lífs­ins í dag, að rammi um pen­inga­mála­stefn­una í land­inu yrði að liggja fyrir áður en losað yrði um höft­in, eins og til stendur að gera á næstu vikum og mán­uð­um. „Nýr rammi verður betri en sá sem við höfðum fyrir fjár­málakreppu. En hann verður engin töfra­lausn,“ sagði Már.

Hann ítrek­aði síðan í loka­orð­um, að það væri tak­markað sem pen­inga­stefnan gæti skil­að, þar sem hún væri fram­kvæmd við óvissu­skil­yrði í síbreyti­legum heimi.

Már ítrek­aði það sem hann hefur áður komið inn á, að Seðla­bank­inn þyrfti að búa yfir tæki til að vinna gegn óhóf­legu inn­streymi fjár­magns, t.d. vegna vaxta­mun­ar­við­skipta. „Því yrði þó ekki beitt gegn venju­legu flæði sem er eðli­legur þáttur í miðlun pen­inga­stefn­unnar heldur fyrst og fremst þegar flæði verður óhóf­legt og hætta er á að miðlun pen­inga­stefn­unnar um vaxta­fer­il­inn veik­ist of mik­ið.“

Auglýsing

Dregur til tíð­inda

Bjarni Bene­dikts­son, efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra, sagði í gær­kvöldi að á næst­unni muni draga til tíð­inda þegar kæmi að losun hafta, og vís­aði sér­stak­lega til aflandskrón­u­út­boðs­ins sem ætlað er að minnka niður snjó­hengju aflandskróna. Nefndi Bjarni næstu tvær til þrjár vikur sem tímara­mma, í þeim efn­um.

Enn­fremur sagði Már að hreint flot­gengi, það er hafta­laus geng­is­mark­að­ur, myndi ekki verða ofan heldur væri „um að ræða stýrt flot sem hefði þó ekk­ert til­tekið geng­is­mark­mið heldur væri mark­miðið að draga úr óhóf­legum sveiflum vegna tíma­bund­ins fjár­magn­streymis og draga úr skamm­tíma­flökti í geng­i.“

Gott stofn­ana­fyr­ir­komu­lag

Þá sagði hann að stofn­ana­fyr­ir­komu­lag bank­ans, það er að vera með pen­inga­stefnu­nefnd sem tekur ákvarð­anir um breyt­ingu stjórn­tækja bank­ans, svo sem vaxta, sendir frá sér yfir­lýs­ingar og eftir atvikum upp­lýsir þing og þjóð um for­sendur ákvarð­ana, væri gott í sam­ræmi við bestu erlendu fyr­ir­mynd­ir. 

Sagði Már að þetta hefði gengið vel og reynslan til þessa góð, en þessu var breytt þegar viða­miklar breyt­ingar voru gerðar á lögum Seðla­banka Íslands áður en Már tók við sem seðla­banka­stjóri. „Það er verk­efni næstu mán­aða að útfæra ramma pen­inga­stefn­unnar og því verki þarf að ljúka áður en fjár­magns­höft á inn­lenda aðila eru los­uð. End­an­legt form hans er að mínu viti sam­eig­in­leg yfir­lýs­ing rík­is­stjórnar og Seðla­bank­ans eins og gert var fyrir 15 árum, árið 2001. Umræðan heldur því áfram,“ sagði Már.

Inn­grip sem stýri­tæki

Már sagði enn­fremur að inn­grip á gjald­eyr­is­mark­aði væru einnig tæki sem seðla­bank­inn gæti beitt til að auð­velda fram­kvæmd pen­inga­stefn­unnar og tryggja stöð­ug­leika. „Önnur tæki koma til greina eins og bindi­skylda og bein inn­grip á skulda­bréfa­mark­aði. Virkni þeirra er þó alla jafna óviss­ari en vaxta­tæk­is­ins og þeim því beitt sjaldn­ar,“ sagði Már.

Stýri­vextir eru nú 5,75 pró­sent, verð­bólga 1,5 pró­sent og evran kostar 141 krónu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None