Áhrifamenn innan Framsóknar með umsvifamikil viðskipti í Panamafélögum

Félög í eigu Finns Ingólfssonar, Helga S. Guðmundssonar og Hrólfs Ölvissonar á meðal þeirra sem fram koma í Panamaskjölunum. Félag Finns og Helga í Panama keyptu hlutabréf í Landsbankanum með láni frá bankanum.

Framsókn
Auglýsing

Félög í eigu Finns Ing­ólfs­son­ar, Helga S. Guð­munds­sonar og Hrólfs Ölv­is­sonar eru á meðal þeirra sem finn­ast í Panama­skjöl­unum sem lekið hafa frá Mossack Fon­seca,  lög­fræði­stofu í Panama. Félag Finns og Helga, sem skráð var í Pana­ma, keypti meðal ann­ars hlut í Lands­bank­anum á árinu 2007 með láni frá bank­anum sjálf­um. Menn­irnir þrír hafa allir verið áhrifa­menn innan Fram­sókn­ar­flokks­ins á und­an­förnum ára­tugum og Hrólfur er í dag fram­kvæmda­stjóri flokks­ins. Þetta er meðal þess sem fram kom í Kast­ljósi kvölds­ins þar sem fjallað var um aflands­fé­lög mann­anna þriggja. 

Umfjöllun Kast­ljóss er unnin í sam­starfi við Reykja­vík Media uppúr gögnum frá Mossack Fon­seca sem þýska blaðið Südd­eutsche Zeit­ung komst yfir og deildi með alþjóð­legum sam­tökum rann­sókn­ar­blaða­manna, ICIJ, Reykja­vík Media og 109 öðrum fjöl­miðlum víðs­vegar um heim.

Keypti í BM Vallá

Hrólfur Ölv­is­son hefur árum saman gegnt ýmsum­ ­trún­að­ar­störfum fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn og verið fram­kvæmda­stjóri flokks­ins frá árinu 2010. Hann sat meðal ann­ars í banka­ráði Bún­að­ar­bank­ans skömmu áður en að sá banki var einka­væddur og í stjórnum ýmissa opin­berra fyr­ir­tækja eða ­stofn­ana fyrir hönd Fram­sókn­ar­flokks­ins í árarað­ir. Hrólfur var til að mynda ­stjórn­ar­for­maður Vinnu­mála­stofn­unar frá árinu 1998 til 2008. Sam­hliða öll­u­m þessum trún­að­ar­störfum var Hrólfur mjög virkur í við­skipt­um, og er enn.

Auglýsing

Í umfjöllun Kast­ljóss í kvöld kom fram að Hrólfur hefði árið 2003 ­stofnað félagið Chamile Mar­ket­ing á Tortóla í Bresku Jóm­frú­areyj­un­um. Um ­upp­setn­ingu og umsjón félags­ins sá panamíska lög­fræði­stofan Mossack Fon­seca. Hrólfur var með pró­kúru í félag­inu og var ásamt við­skipta­fé­lögum sínum eig­and­i þess.

Á þessum tíma var Hrólfur einn þriggja eig­enda félags­ins Eld­berg ehf. í gegnum annað félag, Jarð­efna­iðnað ehf. Rekstur fyr­ir­tækj­anna snérist um að safna og flytja út vikur­efni. Í Kast­ljósi kom fram að Tortóla­fé­lagið hafi verið notað til að fela fjár­fest­ingu íslensku félag­anna t­veggja í danska félag­inu Scancore ApS. Það var gert með því að Eld­berg lán­að­i ­fé­lag­inu 12 millj­ónir króna vaxta­laust til að kaupa hlut í Scancore. Í lána­samn­ingi milli Eld­bergs og Chamile Mar­ket­ing vegna fjár­fest­ing­ar­inn­ar, sem birtur var í Kast­ljósi í kvöld, sagði að til­gangur láns­ins væri „að tryggja að ­nafn Eld­bergs eða móð­ur­fé­lags þess verði ekki skráð í tengslum við fjár­fest­ingar Chamile Mar­ket­ing.” Í íslenskum skatta­lögum eru ákvæði sem ­tak­marka lán sem þessi.

Kast­ljós greindi einnig frá því að á síð­ustu árum, eftir að Hrólfur tók við sem fram­kvæmda­stjóri Fram­sókn­ar­flokks­ins, hafi hann tekið þátt í kaupum þriggja stórra fyr­ir­tækja. Árið 2012 keypti hann í félagi við aðra fjár­festa hlut Arion banka í BM Vallá sem síðan var sam­einað Björgun og ­Sem­ents­verk­smiðj­unni. Víglundur Þor­steins­son, fyrrum eig­andi BM Vallár, hef­ur ít­rekað ásakað þáver­andi stjórn­völd um marg­háttuð lög­brot sem leitt hafi til þess að hann hafi misst fyr­ir­tækið sitt og undir þann mál­flutn­ing hafa sumir þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins tek­ið. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­and­i ­for­sæt­is­ráð­herra, sagði ásak­anir Vig­lundar slá­andi og að það þyrfti að rann­saka þær. Vig­dís Hauks­dótt­ir, for­maður fjár­laga­nefnd­ar, hefur einnig gagn­rýnt „Víg­lund­ar­mál­ið“ mjög.

Í sam­tali við Kast­ljós sagði Hrólfur að hann hefði ekki séð á­stæðu til að kynna þing­mönnum Fram­sókn­ar­flokks­ins um þessi tengsl sín, en hann situr í stjórn BM Vallár. Hann hafi hins vegar gert Sig­mundi Dav­íð, for­mann­i Fram­sókn­ar­flokks­ins, grein fyrir tengsl­un­um.

Panama­fé­lagið keypti í Lands­bank­anum með láni frá Lands­bank­anum

Í Kast­ljósi var einnig greint frá því að Hrólfur hefð­i ­stofnað aflands­fé­lagið Selco Fin­ance í Panama árið 2003. Skömmu eftir stofn­un þess gerði Selco samn­ing við banda­rískt trygg­inga­fé­lag sem sér­hæfði sig í heil­brigð­is­trygg­ingum um að fá umboð fyrir trygg­ing­unum á Íslandi. Tæpu ári ­síðar kynnti Finnur Ing­ólfs­son, þá for­stjórí Vátrygg­inga­fé­lags Íslands (VÍS), um að félagið hefði gert sams­konar samn­ing við banda­ríska trygg­inga­fé­lag­ið. Í þeirri yfir­lýs­ingu var ekk­ert minnst á panamíska félagið sem Hrólfur hafð­i ­stofn­að. VÍS keypti Selco af Hrólfi á þessum tíma og sagði í Kast­ljósi að ­kaup­verðið hefði verið um 20 millj­ónir króna. Hrólfur sagð­ist þó ekki hafa ­fengið neitt í sinn hlut vegna þessa.  ­Selco var slitið árið 2010.

Finnur Ing­ólfs­son, sem var vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, ­þing­maður við­skipta­ráð­herra og síðar Seðla­banka­stjóri, átti einnig ýmis kon­ar ­per­sónu­leg við­skipti í gegnum aflands­fé­lög. Þau átti hann ásamt félaga sín­um, Helga S. Guð­munds­syni, sem Finnur skip­aði meðal ann­ars for­mann banka­ráðs Lands­banka Íslands á meðan að hann var ráð­herra banka­mála. Síð­ar, árið 2003, var Helgi skip­aður í banka­ráð Seðla­banka Íslands, þar sem hann sat til árs­ins 2008. Helgi, sem nú er lát­inn, var meðal ann­ars for­maður banka­ráðs Seðla­banka Ís­lands frá árinu 2006 og fram á árið 2007. Hann var auk þess áhrifa­maður í S-hópnum svo­kall­aða, sem keypti hlut íslenska rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum í banka­einka­væð­ing­unni árið 2002. VÍS, sem Finnur stýrði á þeim tíma, var einnig hluti af S-hópn­um.

Í gögnum Mossack Fon­seca kemur meðal ann­ars fram að Finnur og Helgi hafi eign­ast félag í Panama í byrj­un ­febr­úar 2007, á meðan að Helgi var enn for­maður banka­ráðs Seðla­banka Íslands­. ­Fé­lagið hét Adair SA. Í Kast­ljósi kom fram að til­gangur félags­ins væri að kaupa og eiga hluta­bréf í Lands­bank­an­um, sem Lands­bank­inn hafði lánað fyr­ir. Finn­ur ­sagði í skrif­legu svari til Kast­ljóss að til­gangur félags­ins hefði ver­ið fjár­fest­ing­ar. Það hefði tapað miklu og því hefðu aldrei orðið til tekjur í fé­lag­inu. Ef þær hefðu orðið þá hefði félagið greitt skatt í Panama en eig­end­ur þess fjár­magnstekju­skatt á Íslandi ef þeir hefðu fengið eitt­hvað út úr því.

Kast­ljós greindi einnig frá til­urð félags­ins Lozanne Inc. í Pana­ma, sem skráð var í eigu Finns. Engar frek­ari upp­lýs­ingar fund­ust um ­fé­lagið og Finnur kann­að­ist ekki við það þegar leitað var upp­lýs­inga hjá hon­um um það.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None