ESA gerir athugasemdir við íslenska dómstóla í fyrsta sinn

ESA, eftirlitsstofnun EFTA, hefur sent athugasemdir til Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Samkeppniseftirlitsins gegn Norvík og Byko. Þetta er í fyrsta sinn sem ESA sendir slíkt til íslenskra dómstóla.

Samkeppniseftirlitið höfðaði mál gegn móðurfélagi Byko, fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í febrúar síðastliðnum.
Samkeppniseftirlitið höfðaði mál gegn móðurfélagi Byko, fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í febrúar síðastliðnum.
Auglýsing

ESA, eft­ir­lits­stofnun EFTA, sendi athuga­semdir til íslensks dóm­stóls í fyrsta sinn í dag. ESA sendi Hér­aðs­dómi Reykja­víkur skrif­legar athuga­semdir í máli Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins gegn Byko og Nor­vík. Málið varðar ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins frá því í maí 2015. Þar var Nor­vík gert að greiða 650 millj­óna króna sekt fyrir brot dótt­ur­fyr­ir­tæki síns, Byko ehf., á sam­keppn­is­regl­um. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá ESA. 

Nor­vík áfrýj­aði ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins til áfrýj­un­ar­nefndar sam­keppn­is­mála. Nefndin brot Byko ekki jafn alvar­leg og Sam­keppn­is­eft­ir­lit­ið, og taldi ekki sýnt fram á að brotið hefði verið gegn sam­keppn­is­reglum EES-rétt­ar. Sektin var lækkuð um 65 millj­ónir króna. Sam­keppn­is­eft­ir­litið sætti sig ekki við það og höfð­aði mál í febr­úar 2016 fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur þar sem þess er kraf­ist að Nor­vík verði gert að greiða 650 millj­óna króna sekt í mál­in­u. 

Athuga­semdir ráð­gef­andi

Í því máli leggur ESA fram athuga­semd­ir, sem snúa að því hvenær eigi að beita sam­keppn­is­reglum EES-réttar og um varn­að­ar­á­hrif sekta í sam­keppn­is­mál­um. ESA segir málið vekja upp mik­il­vægar spurn­ingar varð­andi túlkun EES-rétt­ar. 

Auglýsing

„Sam­keppn­is­yf­ir­völdum og dóm­stólum aðild­ar­ríkj­anna er skylt að beita sam­keppn­is­reglum EES-réttar þegar máls­at­vik falla innan gild­is­sviðs EES-­samn­ings­ins. Þeim ber einnig að tryggja að regl­unum sé beitt af skil­virkn­i,” segir í til­kynn­ing­unni. ESA hefur heim­ild til að veita ábend­ingar og leggja fram athuga­semd­ir, en þetta er í fyrsta sinn sem sú heim­ild er nýtt fyrir íslenska dóm­stóla. Athuga­semdir ESA eru ráð­gef­andi fyrir dóm­stól­inn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None